Fangelsun og brottrekstur af þingi

Inger Støjberg er vafa­lítið umdeild­asti stjórn­mála­maður Dan­merkur á síð­ari árum. Fram­ganga hennar á ráð­herra­stóli hefur nú kostað hana tveggja mán­aða fang­elsi og að lík­indum brott­rekstur af þingi. Slíkt er fáheyrt í Danmörku.

Mánu­dag­ur­inn 13. des­em­ber 2021 líður Inger Støjberg lík­lega seint úr minni. Dómur í Lands­dómi Dan­merkur (Rigs­retten) var loka­punkt­ur­inn í máli sem teygir sig aftur til árs­ins 2016. Í þessum pistli verður stiklað á stóru í Støjberg mál­inu, eins og Danir kalla það. Málinu er þó ekki alveg lokið því næst­kom­andi þriðju­dag, verða greidd atkvæði í danska þing­inu, Fol­ket­inget, um það hvort Inger Støjberg geti setið áfram á þingi. Allt bendir til að hún verði gerð brott­ræk af þingi, mik­ill meiri­hluti þing­manna hefur lýst sig fylgj­andi því.

Upphafið

10. febr­úar 2016 sendi Inger Støjberg, sem þá var ráð­herra inn­flytj­enda­mála í stjórn Lars Løkke Rasmus­sen, frá sér frétta­til­kynn­ingu. Í þess­ari til­kynn­ingu stóð að eng­inn undir lög­aldri (ingen mindreårige under 18 år) megi, sem maki, búa í flótta­manna­búðum. Emb­ætt­is­menn í inn­flytj­enda­ráðu­neyt­inu höfðu marg­sinnis bent ráð­herr­anum á að lögum sam­kvæmt skyldi hvert mál metið sér­stak­lega, og þess yrði að geta í frétta­til­kynn­ing­unni. Jafn­framt, að á til­skipun ráð­herr­ans gætu verið und­an­tekn­ingar. Inger Støjberg mátti ekki heyra á það minnst, engar und­an­tekn­ingar. Í sím­tali frá inn­flytj­enda­ráðu­neyt­inu fékk aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Útlend­inga­stofn­unar að vita að aðskiln­aður para, þar sem annar aðil­inni væri yngri en 18 ára, skyldi hefj­ast strax, og fram­kvæmdin í sam­ræmi við það sem fram kom í áður­nefndri frétta­til­kynn­ingu. Án und­an­tekn­inga. Frétta­til­kynn­ingin var upp­haf Støjberg máls­ins.

16. febrúar 2016

Útlend­inga­stofnun hófst þegar handa við að fram­fylgja skipun inn­flytj­enda­ráðu­neyt­is­ins. 16. febr­úar var fyrsta parið skilið að og sam­tals voru 23 pör skilin að á næstu mán­uðum. Mörg þeirra áttu börn. Ungar stúlkur sem flúið höfðu nauð­ung­ar­hjóna­bönd í heima­land­inu, ásamt kærustum sínum, fyllt­ust örvænt­ingu vegna ákvörð­unar ráð­herr­ans. Síðasta par­inu, af þessum 23, var stíað sundur í ágúst 2016

9. mars 2016

Á fundi Inger Støjberg með emb­ætt­is­mönnum úr inn­flytj­enda­ráðu­neyt­inu var farið yfir fimm mál sem Útlend­inga­stofn­unin hafði sent til ráðu­neyt­is­ins. Mat sér­fræð­inga stofn­un­ar­innar var að í þessum fimm til­vikum bæri ekki að skilja pörin að. Ráð­herr­ann setti spurn­inga­merki við þetta mat sér­fræð­inga. Inger Støjberg sagði síðar, í yfir­heyrslum rann­sókn­ar­nefndar og fyrir Lands­dómi að hún hefði ein­ungis verið að prófa (trykteste) emb­ættimenn Útlend­inga­stofn­unar.

Í bága við lög

Í mars árið 2016 hafði ungt par, flótta­fólk frá Sýrlandi, klagað til umboðs­manns þings­ins. Um var að ræða 26 ára karl og 17 ára ófríska konu, sem höfðu verið aðskilin, sam­kvæmt skipan inn­flytj­enda­ráðu­neyt­is­ins. Nið­ur­staða umboðs­manns þings­ins sem lá fyrir í mars 2017 var að frétta­til­kynn­ing ráðu­neyt­is­ins, frá 10. febr­úar 2016, jafn­gilti fyr­ir­skipun og sú fyr­ir­skipun bryti í bága við lög. Vinnulag ráðu­neyt­is­ins sagði umboðs­maður sér­lega ámæl­is­vert.

Júní 2017, dómur og ný stjórn 2019

Vorið 2017 urðu deilur Inger Støjberg við emb­ætt­is­menn inn­flytj­enda­ráðu­neyt­is­ins og Útlend­inga­stofn­un­ina opin­berar. Í við­tali við dag­blaðið Politi­ken við­ur­kenndi Inger Støjberg að hún hefði sjálf fjar­lægt setn­ingar um und­an­tekn­ingar úr frétta­til­kynn­ing­unni, sem hún kall­aði til­mæli, frá 10. febr­úar 2016 um aðskilnað sam­búð­ar­fólks í flótta­manna­búðum. Málið var rætt fram og til baka í þing­inu, stjórn­ar­and­staðan var rasandi en stjórnin, með full­tingi Danska Þjóð­ar­flokks­ins, vildi ekki haf­ast neitt að í mál­inu.

Í byrjun mars­mán­aðar 2019 kvað Bæj­ar­réttur Kaup­manna­hafnar upp þann úrskurð að aðskiln­aður pars­ins, sem skilið var að í mars 2016 sam­kvæmt fyr­ir­mælum inn­flytj­enda­ráðu­neyt­is­ins, hefði verið ólög­legur.

Í júní 2019 fóru fram þing­kosn­ingar í Danmörku, stjórn Lars Løkke Rasmus­sen féll og núver­andi stjórn undir for­ystu Mette Frederik­sen tók við. Meiri­hluti þing­manna ákvað að skipa rann­sókn­ar­nefnd sem ætlað var kom­ast til botns í Støjberg­mál­inu.

Yfirheyrslur og skúffuskjal

Yfir­heyrslur rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hófust um miðjan maí 2020 og fóru fram í húsa­kynnum bæj­ar­rétt­ar­ins á Frið­riks­bergi. Skjölin varð­andi málin skiptu þús­undum og 42 emb­ættis-og stjórn­mála­menn voru kall­aðir fyrir nefnd­ina. Mikla athygli vakti skjal sem Inger Støjberg dró fram, dag­sett 2. febr­úar 2016, þar var getið um und­an­þágur varð­andi aðskilnað para í flótta­manna­búðum. Rann­sókn­ar­nefndin gaf lítið fyrir þetta „skúffu­skjal“ eins og það var kallað.

Í des­em­ber 2020 skil­aði rann­sókn­ar­nefndin skýrslu sinni. Nið­ur­staðan var að fyr­ir­mæli Inger Støjberg hefðu ekki haft stoð í lögum og hún hefði enn­fremur logið að þing­inu. Geta má þess að Inger Støjberg var kosin var­for­maður Venstre í sept­em­ber 2019 en sagði af sér í árs­lok 2020. Í febr­úar á þessu ári sagði hún sig úr Venstre og hefur síðan setið sem for­maður utan flokka á danska þing­inu.

Landsdómur

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar urðu til þess að þingið fékk tvo lög­fræð­inga til að meta hvort ástæða væri til að mál Inger Støjberg færi fyrir Landsdóm, Rigsret. Nið­ur­staða lög­fræð­ing­anna var að tals­verðar líkur væru á að Inger Støjberg hlyti dóm ef henni yrði stefnt fyrir Landsdóm.

Þingið samþykkti að réttað yrði yfir Inger Støjberg

Í byrjun febr­úar á þessu ári sam­þykkti þingið, með 139 atkvæðum gegn 30, að höfða mál gegn Inger Støjberg fyrir Lands­dómi. Lands­dómur var skip­aður 13 hæsta­rétt­ar­dóm­urum (þeim sem eiga lengstan starfs­aldur) og 13 manns sem þingið skipar. Þeir full­trúar eru skip­aðir til 6 ára í senn og mega ekki eiga sæti á þingi. Lands­dómur dæmir ein­göngu í málum sem varða starf­andi eða fyrr­ver­andi ráð­herra og hefur aðeins fimm sinnum frá stofnun 1849 verið kall­aður saman.Tveir lög­fræð­ingar, full­trúar þings­ins, valdir af Lög­manna­ráð­inu (Advokatrådet), sóttu málið gegn Inger Støjberg. Þeir kröfð­ust fjög­urra mán­aða fang­els­is­dóms yfir henni.

Fangelsisdómurinn mikil vonbrigði sagði Inger Støjberg

Úrskurður Lands­dóms var kveð­inn upp 13. des­em­ber sl. Heyra hefði mátt saum­nál detta áður en Thomas Rørdam, for­seti Hæsta­réttar og for­seti Lands­dóms hóf mál sitt. Inger Støjberg var dæmd í tveggja mán­aða óskil­orðs­bundið fang­elsi. Nið­ur­staðan var afger­andi, 25 af 26 dóm­urum fundu Inger Støjberg seka. Hún bar ábyrgð á því að ráðu­neyti inn­flytj­enda­mála fór á svig við alþjóða­samn­inga og dönsk stjórn­sýslu­lög. Í dómnum er lögð áhersla á sam­fé­lags­lega þýð­ingu þess að ráð­herrar virði lög og rétt og leik­reglur sam­fé­lags sem kennir sig við lýð­ræði. „Inger Støjberg hefur farið út fyrir ramma lag­anna. Þótt hún hafi viljað koma í veg fyrir þving­un­ar­hjóna­bönd ber að fylgja lögum lands­ins“ sagði í úrskurði Lands­dóms.

Danskir frétta­skýrendur sögðu dóm­inn taka af allan vafa um hver það væri sem bæri ábyrgð­ina á ákvörð­unum og gerðum stjórn­valda. Inger Støjberg hefði ásamt lög­mönnum sínum reynt að klína ábyrgð­inni á emb­ætt­is­menn­ina. Lands­dómur hefði hins­vegar kveðið uppúr með að ráð­herr­ann væri ætíð sá sem bæri ábyrgð­ina.

Inger Støjberg sagði dóm­inn mikil von­brigði, hún hefði alla tíð talið full­víst að hún yrði sýknuð.

Verður rekin af þingi

Þegar dómur var fall­inn og ljóst að Inger Støjberg hefði verið fundin sek hófust vanga­veltur um fram­tíð hennar á þingi. Í dönsku stjórn­ar­skránni er kveðið á um hverjir geti setið á þingi og hverjir ekki. Spurning um ,,vær­dig­hed“, eins og það heitir á dönsku. Hver sem er getur boðið sig fram til þings, svo fremi við­kom­andi hafi ekki sætt refs­ingu, sem í augum almenn­ings gerir hann, eða hana, óhæfa (uvær­dig) til að sitja á þingi. Það eru hins­vegar þing­menn sem ákveða, með atkvæða­greiðslu, hvort við­kom­andi sé þess verð­ugur að gegna þing­mennsku. Sú atkvæðags­reiðsla fer fram næst­kom­andi þriðju­dag, 21. des­em­ber. Líkleg nið­ur­staða þeirrar atkvæða­greiðslu virð­ist sú að Inger Støjberg verði gerð brott­ræk af þingi og þá ber henni að yfir­gefa þingsal­inn þegar í stað, sú brott­vikn­ing gildir út kjör­tíma­bilið. Hún getur hins­vegar boðið sig fram þegar næst verður kosið til þings.

Brostinn formannsdraumur?

Eins og fjallað hefur verið um hér í Kjarn­anum, og víðar, ríkir hálf­gert upp­lausn­ar­á­stand í Danska Þjóð­ar­flokknum eftir herfi­lega útreið í síð­ustu þing­kosn­ingum. For­manns­kosn­ing er framundan og margir hafa litið til Inger Støjberg sem hugs­an­legs for­manns. Hún er nú, alla­vega til þriðju­dags, þing­maður utan flokka. Hún hefur ekki tjáð sig um hvort hún muni ganga til liðs við Danska Þjóð­ar­flokk­inn og sækj­ast eftir for­manns­stólnum.

Leiðtogi Venstre andar léttar

Fyrir rúmu ári sagði Jakob Ellemann-Jensen for­maður Venstre að ef nið­ur­staða rann­sókn­ar­nefndar þings­ins hnigi í þá átt að Inger Støjberg hefði farið út fyrir ramma lag­anna myndi hann styðja að mál hennar færi fyrir Landsdóm. Úrskurður Lands­dóms er að vissu leyti sigur fyrir Jakob Ellemann-Jensen. Hefði Inger Støjberg verið sýknuð í Lands­dómi hefði það ugg­laust orðið honum erfitt, ekki síst í ljósi þess að hann neyddi Inger Støjberg til afsagnar sem vara­for­maður flokks­ins.

Mette og minkarnir

Mánuðum saman hefur staðið yfir rann­sókn á minka­mál­inu svo­nefnda. Minka­nefndin, eins og hún er kölluð, reynir að kom­ast til botns í því hver hafi tekið ákvörðun, og gefið fyr­ir­skip­anir um, að aflífa skyldi allan danska minka­stofn­inn. Nú er við­ur­kennt að það hafi verið gert án laga­heim­ildar, rétt eins og aðskiln­að­ar­fyr­ir­skipun Inger Støjberg. Ef nið­ur­staða minka­nefnd­ar­innar, sem vænt­an­leg er með vor­inu, bendir í átt að Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra syrtir í álinn hjá henni. Stjórn­ar­and­staðan mun þá að lík­indum krefj­ast þess að for­sæt­is­ráð­herr­anum verði stefnt fyrir Landsdóm, líkt og Inger Støjberg. Þótt minka­málið og Støjberg málið séu gjör­ó­lík, snú­ast þau bæði um fyr­ir­skip­anir ráð­herra, án laga­heim­ilda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár