Ríkisstjórnarflokkarnir ætla að reyna að láta sambandið ganga

19:52 - Segjum þetta gott í bili

Jæja. Þökkum fyrir annan dag­inn af beinni lýs­ingu atburða hér á Kjarn­anum. Sjáum svo til hvort morg­un­dag­ur­inn verður þess eðlis að við höfum beina lýs­ingu áfram.

19:30 - Einar K. segir fund sinn með forsetanum góðan 

Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, segir fund sinn með for­seta Íslands hafa verið góðan. „Þetta var fyrst og fremst upp­lýs­inga­fundur. Það var engin nið­ur­staða eða neitt slíkt,“ sagði hann í sam­tali við Sunnu Val­gerð­ar­dóttur, blaða­mann Kjarnans, fyrir stundu.

19:20 - Ólafur Ragnar svarar Sigmundi Davíð

„Það var ljóst í sam­ræðum okkar að einn meg­in­til­gangur þess að koma í flýti hingað var að fá slíkt fyr­ir­heit sem hann gæti síðan notað sem vopn í við­ræðum við for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins,“ sagði for­seti Íslands um Sigmund Davíð Gunn­laugs­son í fréttum RÚV nú í kvöld. Hann sagði ekki við hæfi að hann elti ólar við frá­sögn Sig­mundar en það hafi ekki verið neinn mis­skiln­ingur þeirra á milli um það sem fram fór á fund­inum. 

19:01 - Beint frá mótmælunum

Hér má fylgj­ast með mót­mæl­unum í beinni útsend­ingu.

18:58 - Þingmenn Sjálfstæðisflokksins vissu ekki af tillögunni um Sigurð Inga

Þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins vissi ekki af ákvörðun Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar um að stíga til hliðar og leggja til að Sigurður Ingi Jóhanes­son yrði for­sæt­is­ráð­herra í hans stað. Sigurður Ingi til­kynnti um þessa til­lögu Fram­sókn­ar­flokks­ins þegar Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra var á leið á Bessa­staði að hitta for­seta Íslands. Lesið meira um það hér. 

18:50 - Mótmælendur stefna að Valhöll

Mótmælin á Aust­ur­velli voru færð að Fram­sókn­ar­hús­inu við Hverf­is­götu fyrir um það bil hálf­tíma síðan. Svo var ákveðið að fylkja liði í Valhöll, þar sem Bjarni Bene­dikts­son og Sigurður Ingi Jóhanns­son hafa verið að funda. Mót­mæl­endur eru á leið þangað gang­andi núna.

18:14 - Fólk streymir enn á Austurvöll 

Það eru ekki eins margir að mót­mæla og í gær, en fólki fer fjölg­andi á Aust­ur­velli að sögn lög­reglu. Þrír fjórðu hlutar af Aust­ur­velli eru þaktir mót­mæl­endum og enn streymir fólk að, segir á mbl.is.

18:07 - Einar K. veit ekki af hverju hann er kominn á Bessastaði

Einar K. Guð­finns­son for­seti Alþingis er kom­inn á Bessa­staði til fundar við for­seta Íslands. Hann veit ekki hvert til­efni fund­ar­ins er eða hvað verður rætt, sagði hann við fjöl­miðla áður en hann fór á fund­inn.

18:02 - Framsóknarmenn segjast styðja Sigmund Davíð áfram

Þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins styður Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, for­mann flokks­ins og frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, eftir atburði dags­ins. Þing­flokk­ur­inn lýsir ánægju með „þá virð­ing­ar­verðu afstöðu for­manns­ins sem felst í því að hann skuli vera reiðu­bú­inn að stíga þetta skref til að gera rík­is­stjórn­inni kleift að vinna áfram að þeim mik­il­vægu verk­efnum sem nú liggja fyrir.” Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá þing­flokknum. 

17:37 - Sigmundur Davíð ætlar að vera þingmaður áfram

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hyggst sitja áfram á þingi. Ásmundur Einar Daðason, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir við mbl.is að það sé almennur stuðn­ingur við til­lög­una um að hann víki sem for­sæt­is­ráð­herra fyrir Sigurði Inga.

17:30 - Þrjú prósent treystu Sigurði Inga best

Þrjú pró­sent aðspurðra sögð­ust bera mest traust til Sigurðar Inga Jóhann­es­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, af ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­innar í könnun Frétta­blaðs­ins og Stöðvar 2 síðan um miðjan mars. Þetta og fleira má lesa í nýrri frétt Sunnu Val­gerð­ar­dóttur. 

17:23 - Útspilið aldrei að verða sáttagrundvöllur

Sé mið tekið af sam­tölum sem Kjarninn hefur átt í dag, bæði við stjórn­ar­þing­menn og þing­menn stjórn­ar­and­stöðu, þá var þetta útspil aldrei mögu­legt til þess að verða sátta­grund­völlur á Alþingi eða mæta kröfum um nýtt upp­haf, eins og greina mátti með áber­andi hætti í fjöl­menn­ustu mót­mælum á Íslandi í seinni tíð í gær, og stjórn­ar­and­staðan hefur lagt áherslu á. Tillagan kom flestum í stjórn­ar­and­stöð­unni á óvart. Krafan um nýtt upp­haf með kosn­ingum kemur nær ein­róma frá stjórn­ar­and­stöð­unni, segir í frétta­skýr­ingu Magnúsar Hall­dórs­sonar. 

16:49 - Sigmundur Davíð segir forsetann ljúga

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, segir að hann hafi ekki borið fram form­lega til­lögu um þing­rof á fundi sínum með for­seta Íslands fyrr í dag, líkt og skilja hefði mátt af ummælum for­set­ans að fundi loknum. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu sem send var út rétt í þessu. Meira hér. 

16:37 - Við leysum ekkert með stólaskiptum 

Þetta segir Árni Páll Árnason. „Við erum að upp­lifa dauða­teygjur þess­arar rík­is­stjórnar. Þetta er upp­hafið að enda­lok­unum.“

16:35 - Krafan var að Sigmundur stigi til hliðar

Bjarni Bene­dikts­son vill halda sam­starf­inu áfram, það er nið­ur­staðan í bili. Hann segir að krafan hafi verið að Sig­mundur Davíð viki. Nú er að sjá hversu margir mæta á mót­mæli sem búið er að boða að hefj­ist klukkan 17 í dag, rétt eins og í gær.

16:28 - Bjarni ætlar að hugsa málið

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra ætlar að hugsa málið, segir hann að loknum fundi sínum með for­seta Íslands. Hann segir að nú þurfi hann og Sigurður Ingi að ræða saman næstu daga. Hann vill tryggja far­sæla lausn í sam­starfi við Fram­sókn­ar­menn, og mun ekki gera kröfu um að verða for­sæt­is­ráð­herra. Lesið meira um það sem Bjarni segir hér.

16:14 - Ólíklegt að það verði þingfundur í dag

Einar K. Guð­finns­son for­seti þings­ins tal­aði við fjöl­miðla rétt í þessu og segir að það sé ólík­legt að hægt verði að halda þing­fund í dag eins og stjórn­ar­and­staðan hefur óskað eftir. Hann mun funda með for­seta Íslands þegar hann hefur fundað með stjórn­ar­and­stöð­unni.

16:03 - Hvað nú? 

Nú er þess beðið að Bjarni Bene­dikts­son komi út af fundi með for­seta Íslands og skýri von­andi stöð­una sem upp er komin.

Nið­ur­staða Fram­sókn­ar­flokks­ins er algjör kúvend­ing frá því í morgun, þegar for­sæt­is­ráð­herra hót­aði Sjálf­stæð­is­flokknum þing­rofi og kosn­ingum ef þing­menn hans styddu ekki rík­is­stjórn­ina áfram. Nú er það allt í einu ekki inni í mynd­inni hjá fram­sókn­ar­mönnum. En spurn­ingin er hvað Ólafur Ragnar og Bjarni eru að ræða.

15:47 - Fylgst með forsætisráðherraefni framsóknar

Á þess­ari mynd má sjá Óttarr Proppé og Birgittu Jóns­dóttur fylgj­ast með Sigurði Inga Jóhanns­syni til­kynna að hann sé nýtt for­sæt­is­ráð­herra­efni Fram­sókn­ar­flokks­ins.

15:41 - Stjórnarandstaðan óskar eftir fundi með forseta þingsins

Stjórn­ar­and­staðan hefur óskað eftir fundi með Einari K. Guð­finns­syni for­seta Alþingis klukkan 16.15. Þar verður farið fram á að þing verði kallað saman strax til að ráða úr stöð­unni. Það er ennþá krafa stjórn­ar­and­stöð­unnar að boðað verði til kosn­inga. Sunna Val­gerð­ar­dóttir, blaða­maður Kjarnans, greinir okkur frá þessu en hún stendur nú vakt­ina í Alþing­is­hús­inu eftir að hafa verið á Bessa­stöðum fyrr í dag.

15:38 - Eðlilegast að boða til kosninga

Þetta segir Birgitta Jóns­dóttir Pírati um nýj­ustu tíð­indi.

15:30 - Framsóknarflokkurinn samþykkir að Sigurður Ingi taki við

Sigurður Ingi Jóhanns­son vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins til­kynnir nú að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hafi lagt til að Sigurður Ingi taki við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Það hafi þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins sam­þykkt. Búið er að greina Bjarna Bene­dikts­syni for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá þess­ari til­lögu.

15: 23 - Sigmundur segir margt skemmtilegt og áhugavert að gerast

Fram­sókn­ar­menn vildu ekk­ert segja við blaða­menn um nið­ur­stöðu þing­flokks­fundar síns, sem var að ljúka í Alþing­is­hús­inu. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sagði margt mjög skemmti­legt og áhuga­vert að ger­ast, og það væri alveg til­efni fyrir spenn­ingi meðal fjöl­miðla­manna sem reyndu að fá hann til að tjá sig. Hann vildi hins vegar ekk­ert segja meira. Hann sagð­ist ætla að ræða við blaða­menn fljót­lega.

15:12 - Þingmenn framsóknar koma út af fundi

Þingmenn Fram­sókn­ar­flokks­ins vilja ekk­ert segja um það sem fram fór á þing­flokks­fundi þeirra. Það er komin nið­ur­staða í málið en Karl Garð­ars­son þing­maður segir að það ríki trún­aður.

15:05 - Bjarni er á leið á Bessastaði

Bjarni Bene­dikts­son er á leið­inni á Bessa­staði að hitta for­seta Íslands. Hann vildi ekki tjá sig við fjöl­miðla.

14:56 - Júlíus Vífill efldi traust á borgarstjórn

Júlíus Vífill hefur eflt traustið á borg­ar­stjórn með því að víkja úr borg­ar­stjórn vegna skatta­skjóls­mála sinna. Þetta segir Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri. Hann segir þó ljóst að mikið verk sé fyrir höndum. „Traust á póli­tík í land­inu öllu er því miður í lág­marki, og þar se borg­ar­stjórn því miður engin und­an­tekn­ing. Því þurfum við svo sann­ar­lega að breyta.“ Halldór Hall­dórs­son, odd­viti sjálf­stæð­is­manna í borg­ar­stjórn, segir líka að þessi ákvörðun Júlíusar bæti traustið á stjórn­málum. Hann hafi sagt af sér.

14:47 - Framsókn enn að funda og formenn stjórnarandstöðuflokka líka

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er enn að funda, þrátt fyrir að ein­hverjir þing­menn hafi yfir­gefið fund­inn. Formenn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna eru líka að funda í þing­hús­inu um stöð­una sem komin er upp.

14:40 - Þjóðin á rétt á að koma að málum 

Stein­grímur J. Sig­fús­son þing­maður VG og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra segir að þjóðin eigi rétt á að koma að málum eftir svona dramat­íska atburði. Það sé alveg ljóst að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið sé búið.

14:35 - 45 dagar þýðir 20. maí

Eins og greint hefur verið frá verður að boða til kosn­inga innan 45 daga frá þing­rofi. Ef það ger­ist í dag þá er sú dag­setn­ing 20. maí. Það vill svo til að það er sami dagur og fram­boðs­frestur rennur út til for­seta­kjörs.

14:32 - Hildur Sverrisdóttir verður borgarfulltrúi

Þau tíð­indi að Júlíus Vífill Ingv­ars­son hafi sagt af sér þýða að Hildur Sverr­is­dóttir er orðin borg­ar­full­trúi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Sóley Tóm­as­dóttir, for­seti borg­ar­stjórnar, sagði við RÚV nú fyrir skömmu að hún teldi ákvörðun Júlíusar góða.

14:31 - Sveinbjörg Birna ætlar ekki að snúa aftur strax

Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins og flug­vall­ar­vina í Reykja­vík, ætlar ekki að snúa aftur til starfa fyrr en yfir­ferð innri end­ur­skoð­unar Reykja­vík­ur­borgar, um hags­muna­skrá­ingu borg­ar­full­trúa, er lokið en for­sætis­nefnd Reykja­vík­ur­borgar sam­þykkti til­lögu um að fela innri end­ur­skoðun og siða­nefnd Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, að taka til skoð­unar hags­muna­skrán­ingu borg­ar­full­trúa. „Ég styð slíka til­lögu og mun aðstoða fram­an­greinda aðila við þá vinnu í hví­vetna,“ segir Svein­björg Birna í yfir­lýs­ingu. 

14:22 - Þingmenn Sjálfstæðisflokksins funda

Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins funda nú í Valhöll. Jón Gunn­ars­son sagði atburði dags­ins vera óvænta og reyfara­kennda atburð­ar­rás.

14:12 - Júlíus Vífill segir af sér 

Júlíus Vífill Ingv­ars­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur sagt af sér emb­ætti. Þetta gerð­ist á borg­ar­stjórn­ar­fundi rétt í þessu. Innan skamms verður hægt að lesa meira um þetta hér.

14:07 - Össur Skarphéðinsson rýfur þögnina

Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ingar, hefur rofið þögn sína um mál­efni dags­ins. Hann var eini þing­maður stjórn­ar­and­stöð­unnar sem tal­aði ekki um van­traust­s­til­lögu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna á Alþingi í gær. „Tortóla virð­ist í beinni útsend­ingu vera orð­inn bana­biti rík­is­stjórn­ar­innar.“ 

„Í fyrsta lagi er lík­legt að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn komi mjög illa út úr kosn­ingum við þessar aðstæður og hótun for­sæt­is­ráð­herr­ans felur í reynd í sér að stærstum hluta þing­flokks hans verði rutt af þingi út á hinar eilífu veiði­lendur. Flestir flokkar, þ.á.m. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er lík­legri til að koma betur út úr kosn­ingum en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

Í öðru lagi er það krafa stjórn­ar­and­stöð­unnar að þing verði rofið og nýjar kosn­ingar boð­aðar. Hótun for­sæt­is­ráð­herra um að beita sér fyrir kosn­ingum færir því stjórn­ar­and­stöð­unni sigur í núver­andi þrætu á silf­ur­bakka. Tillagan um van­traust virð­ist eig­in­lega búin að fella rík­is­stjórn­ina áður en hún kemur á dag­skrá þings­ins. Ég man ekki eftir sér­kenni­legri vend­ingum í stjórn­málum.“

13:56 - Þingrofsréttur ekki kúgunarréttur forsætisráðherra

Árni Páll Árnason for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að þing­rofs­réttur sé ekki tæki for­sæt­is­ráð­herra á hverjum tíma til að kúga sam­starfs­flokk. „Krafa um afsögn SDG og kosn­ingar er á borð­inu og SDG getur ekki skotið sér undan henni með klækja­brögðum. Gott að sjá að for­set­inn stoppar hann af. Nú blasir bara við sam­þykkt van­trausts og kosn­ingar innan 45 daga.“

13:47 - Þessi ríkisstjórn er „splundruð, sprungin, horfin, farin“

Splundruð, sprungin, horfin, farin voru orðin sem Guðni Th. Jóhann­es­son sagn­fræð­ingur not­aði um rík­is­stjórn­ina.

13:37 - Þorgerður Katrín vill alla flokka í stjórn

13:33 - Ráðuneytin í hefðbundnum verkefnum

Það er svo­lítið fyndið að fylgj­ast með upp­lýs­inga­full­trúum ráðu­neyta, sem senda frá sér frétta­til­kynn­ingar um hin ýmsu mál. Manni finnst ein­hvern veg­inn eins og það sé ekki alveg í takti við stemmn­ing­una í þjóð­fé­lag­inu í dag, þegar við vitum ekki einu sinni hvort rík­is­stjórnin lifi dag­inn.

13:26 - Þingflokkur Framsóknarflokksins fundar án formannsins

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er ekki á fundi þing­flokks Fram­sókn­ar­flokks­ins. Frá þessu er greint á Vísi, sem segir að for­sæt­is­ráð­herra sé í stjórn­ar­ráð­inu.

13:22 - Einleikur Sigmundar Davíðs

Sig­mundur Davið Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra er að leika mik­inn ein­leik um þessar mundir. Fundur hans með Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í morgun fór ekki vel, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans. Hann virð­ist ekki hafa rætt við neinn um ákvörðun sína um að fara á Bessa­staði og óska eftir þing­rofi. Lestu frétta­skýr­ingu Kjarnans um ein­leik for­sæt­is­ráð­herr­ans. 

13:14 - Á að vera úrlausnarefni þingsins

Staðan á að vera úrlausn­ar­efni þings­ins, segir Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG. Henni hugn­ast ekki hug­myndin um utan­þing­stjórn.

13:13 - Orðið á götunni að forsetinn ætli kannski að mynda utanþingstjórn

Það kom fram í fréttum RÚV að „orðið á göt­unni“ í þing­hús­inu sé að mögu­lega ætli Ólafur Ragnar sér að mynda utan­þing­stjórn.

13:00 - Í meira lagi óvenjulegt hvernig forsetinn bregst við

Björg Thoraren­sen pró­fessor í stjórn­skip­un­ar­rétti þekkir ekki dæmi þess að for­seti hafi form­lega og með rök­studdri afstöðu hafnað til­lögu for­sæt­is­ráð­herra um þing­rof, eins og Ólafur Ragnar hafi gert í dag. Hann hafi tekið það upp á sína arma að gæta hags­muna meiri­hluta þings­ins, sem sé í meira lagi óvenju­legt. Það sé búið að breyta stjórn­skipan lands­ins þannig að þingið sjálft geti tek­ist á við þessa stöðu sem upp er komin. For­set­inn taki hins vegar að sér að verða gæslu­maður rík­is­stjórn­ar­innar og passa upp á að vilji meiri­hluta þings­ins liggi fyrir.

„Hann gengur gegn þeirri venju sem alltaf hefur verið byggt á þegar óskað er þing­rofs. Þingið sjálft á að takast á við afleið­ingar af því að ákvarð­anir séu teknar gegn vilja þess.“ Hún sagði að henni væri ómögu­legt að spá fyrir um það hvað ger­ist næst.

12:58 - Ólafur Ragnar slítur blaðamannafundinum

Þetta eru stórpóli­tísk tíð­indi, það er ljóst.

12:55 - Spurning um hvers konar ríkisstjórn situr

Það gæti komið til greina að rjúfa þingið áður en van­traust­s­til­laga er borin fram. Þetta er ekki bara spurn­ing um að þingið sé rofið heldur líka um það hvers konar rík­is­stjórn situr og hvort fólk sé sátt við að rík­is­stjórnin sitji í óbreyttri mynd fram að kosn­ingum, segir for­set­inn.

12:52 - Svarar ekki hvort hann íhugi að halda áfram sem forseti

Ólafur Ragnar Grímsson svarar ekki spurn­ingu um það hvort hann hygg­ist end­ur­skoða ákvörðun sína um að hætta sem for­seti.

Myndband af forsætisráðherra að yfirgefa Bessastaði

12:49 - Þjóðin sé sæmilega sátt

Mik­il­vægt að ná sam­stöðu um far­sæla lend­ingu í mál­inu segir for­set­inn. Mik­il­vægt fyrir þjóð­ar­hag og heiður bæði út á við og inn á við. Þjóðin eigi að vera sæmi­lega sátt og þurfi ekki dag eftir dag að halda til mót­mæla. Lestu frétt um orð for­set­ans hér.

12:46 - Ætlar að funda með Bjarna í dag

Fundi lauk á Bessa­stöðum þannig að Ólafur Ragnar neit­aði að veita fyr­ir­heit um það hvenær hann sam­þykkir beiðni um þing­rof. Hann hefur ákveðið að eiga síðar í dag fund með Bjarna Bene­dikts­syni for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála­ráð­herra. Hann mun svo mögu­lega óska eftir fundi með for­seta Alþingis í fram­hald­inu og mögu­lega ann­arra flokka.

12:44 - Ólafur Ragnar ekki tilbúinn að samþykkja þingrof strax

For­set­inn ætlar ekki að veita Sigmundi Davíð heim­ild til að rjúfa þing fyrr en hann ræðir við for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins og aðra. Hann gefur ekk­ert fyr­ir­heit um það hvort hann sam­þykkir þá beiðni fyrr en hann hefur átt sam­töl við for­ystu­menn ann­arra flokka um þeirra afstöðu.

12:42 - Sigmundur Davíð bað forsetann um þingrof

For­set­inn leggi sjálf­stætt mat á það hvort hann sam­þykki ósk for­sæt­is­ráð­herra um þing­rof. Ólafur Ragnar segir að for­seti hljóti að meta hvort stuðn­ingur sé við þá ósk hjá rík­is­stjórn­ar­flokkum og hvort lík­legt sé að þing­rof leiði til far­sællar nið­ur­stöðu.

12:40 - Ólafur Ragnar byrjaður að tala

For­set­inn segir að hann hafi nú ekki ætlað að halda blaða­manna­fund en það væri óhjá­kvæmi­legt eftir ummæli Sig­mundar Davíðs í morgun og fund þeirra tveggja að hann geri skýra grein fyrir sínum sjón­ar­miðum og afstöðu.

Sig­mundur Davíð vildi flýta fundi með for­set­anum og Ólafur Ragnar varð við því.

12:33 - Ólafur ætlar að ræða við fjölmiðlamenn

Fjöl­miðla­fólki var hleypt inn á Bessa­staði og Ólafur Ragnar hlýtur því að ætla að ræða við það. Það er troð­fullt eins og sjá má hér að neðan.

12:27 - „Við sjáum til með það allt saman“

Sig­mundur Davíð sagði ekki mikið við fjöl­miðla­menn nú þegar hann fór út af fundi með for­set­anum. Hann var spurður hvort það yrði þing­rof og sagði „við sjáum til með það allt saman“ áður en hann fór inn í bíl og lok­aði á eftir sér.

12:22 - Hugnast ekki tilhugsunin um kosningar

Karl Garð­ars­son segir að honum hugn­ist ekki til­hugs­unin um kosn­ingar eftir 45 daga.

12:18 - „Það ber okkur enginn til hlýðni“

Þetta sagði Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, starf­andi þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, rétt í þessu um það hvort Sig­mundur Davíð hafi ekki verið að hóta flokknum. Guð­laugur Þór sagði að sjálf­stæð­is­menn hefðu talað var­lega hingað til þess að huga að því sem skipti máli, sem sé þjóð­ar­hagur. Stjórn­mála­upp­lausn sé ekki þjóð­inni í hag.

12:14 - Enn fundur á Bessastöðum - enginn Bjarni

Það eru fimmtán mín­útur frá því að Sig­mundur Davíð fór inn á fund Ólafs Ragnars Gríms­sonar for­seta Íslands. Minnst 20 blaða- og frétta­menn bíða eftir þeim fyrir utan Bessa­staði. Ekkert bólar á Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra.

12:07 - Viðbrögð Sigmundar komu Karli á óvart

Sig­mundur Davíð greindi þing­flokki sínum ekki frá þeirri ákvörðun sinni að hann væri reiðu­bú­inn að rjúfa þing og boða til kosn­inga. Það stað­festi Karl Garð­ars­son í fréttum RÚV, sem sagði að við­brögð Sig­mundar Davíðs í mál­inu kæmu honum á óvart. „Hann hefði kannski átt að segja þing­flokknum þetta fyrst,“ sagði Karl.

12:04 - Kosningar yrðu innan 45 daga

Ef verið er að ákveða að rjúfa þing á Bessa­stöðum kemur hann vænt­an­lega á Alþingi á eftir og les upp for­seta­bréf um þing­rof, segir Björg Thoraren­sen pró­fessor í fréttum RÚV. Þetta hefði þær afleið­ingar að boða verður til kosn­inga innan 45 daga en þing­rofið tekur ekki gildi fyrr en þann dag sem kosn­ingar eru haldnar. Fram að þeim tíma heldur þingið áfram að starfa.

12:00 - Aukafréttatímar á RÚV og Stöð 2

Auka­frétta­tímar eru bæði á RÚV og Stöð 2 fyrir áhuga­sama.

11:53 - Kominn á Bessastaði og vildi ekkert segja

Sig­mundur Davíð er kom­inn á Bessa­staði, eins og sjá má í með­fylgj­andi mynd­skeiði frá RÚV. Hann vildi ekk­ert segja við frétta­menn sem eru á staðnum.

Sigmundur Davíð á leiðinni á Bessastaði

Já það virð­ist vera að hótun Sig­mundar Davíðs hafi ekki virkað til að halda rík­is­stjórn­inni saman. Hann er á leið­inni á Bessa­staði núna. Frétta­maður og ljós­mynd­ari Kjarnans eru á leið­inni þangað og við munum segja ykkur frá þessu um leið og fréttir ber­ast. Kannski er þetta bara fund­ur­inn sem búið var að boða að þeir Bjarni myndu eiga með Ólafi Ragnari.

Stjórnarandstaðan bregst við og er tilbúin í kosningar

Leið­togar stjórn­ar­and­stöð­unnar eru til­búnir í kosn­ingar, eins og kemur fram í þess­ari frétt.

Er hann að hóta Sjálfstæðisflokknum?

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son fund­uðu í morgun. Nú rétt í þessu sendi Sig­mundur Davíð frá sér yfir­lýs­ingu á Facebook þar sem hann talar um öll góðu málin sem rík­is­stjórnin hafi unnið að, en að ef þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins treysti sér ekki til að styðja rík­is­stjórn­ina áfram þá muni hann rjúfa þing og boða til kosn­inga.

Hvað þýðir þetta? Í morgun var talað um að mögu­lega yrði Sigmundi ýtt til hliðar en reynt yrði að halda rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu áfram, en Sig­mundur virð­ist slá þann mögu­leika út af borð­inu. Hann leggur þetta þannig upp að það séu bara tveir mögu­leikar í stöð­unni. Annað hvort sé haldið áfram með óbreytta rík­is­stjórn eða boðað til kosn­inga.

Velkomin í dag númer tvö

Velkomin í beina útsend­ingu af vett­vangi stjórn­mál­anna í dag. Það hefur mikið gengið á það sem af er degi og við­búið að það haldi áfram. Við ætlum að safna hér saman öllu því helsta sem fram kemur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár