Katrín og Árni Páll tilbúin í kosningar - Birgitta segir Sigmund hóta Sjálfstæðisflokknum

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir yfirlýsingu forsætisráðherra ekki koma sér á óvart.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, segir yfir­lýs­ingu for­sæt­is­ráð­herra ekki koma sér á óvart. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ef Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son ákveður að rjúfa þing og boða til kosn­inga hafa flokk­arnir 45 daga til þess að halda kosn­ingar eftir að þing er rofið. Samkvæmt stjórn­ar­skrá verður að halda kosn­ingar í fyrsta lagi eftir þrjár vikur og í síð­asta lagi eftir 45 daga.

Sig­mundur sagði í yfir­lýs­ingu eftir fund sinn með Bjarna Bene­dikts­syni nú fyrir hádegi að ef þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks treystu sér ekki til að styðja rík­is­stjórn­ina við að ljúka sam­eig­in­legum verk­efnum rík­is­stjórn­ar­innar myndi hann rjúfa þing og boða til kosn­inga hið fyrsta.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, segir yfir­lýs­ingu Sig­mundar ekki koma sér á óvart.

„Miðað við við­brögð for­sæt­is­ráð­herra miðað við þær kröfur sem hafi verið settar fram um hans afsögn. Hins vegar erum við í VG búin að leggja fram til­lögu um þing­rof og kosn­ingar þannig að við erum til­búin í þetta.”

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, seg­ist fagna því að kosn­ingar fari fram hið fyrsta.

„Það er greini­legt að þessir flokkar ráði ekki við stjórn lands­ins. Þeir eru rúnir trausti baðir tveir. Og það hvernig for­ystu­menn­irnir hafa haldið á þessu máli und­an­farnar vikur er alvar­legur áfell­is­dómur yfir því hvernig þeir verja hags­muni þjóð­ar­innar," segir hann. „Þetta mál snýst ekki um þessa flokka eða þessa menn, heldur snýst það um heil­brigð stjórn­mál, að menn segi satt og að fólk fái að ganga til kosn­inga með alla hluti upp á borði."

Birgitta Jóns­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, segir yfir­lýs­ing­una ótrú­lega.

„Það er ótrú­legt að reyna að kúga þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks til að styðja for­sæt­is­ráð­herra með svona hót­unum. Ég get ekki talað fyrir þá en mér finnst þetta ekki vera leið til að ná sáttum eða kom­ast út úr ómögu­legum kring­um­stæðum fyrir ráð­herr­ann.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár