Þrjú prósent Íslendinga segjast treysta Sigurði Inga mest

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, nýtur mest traust þrjú pró­sent aðspurða í könnun síðan í mars. 17 pró­sent sögð­ust treysta Sigmundi Davíð mest.

Sigurður Ingi tilkynnti blaðamönnum á Alþingi í dag að hann væri næsta forsætisráðherraefni Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi til­kynnti blaða­mönnum á Alþingi í dag að hann væri næsta for­sæt­is­ráð­herra­efni Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Sunna

Þrjú pró­sent aðspurðra sögð­ust bera mest traust til Sigurðar Inga Jóhann­es­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, af ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­innar í könnun Frétta­blaðs­ins og Stöðvar 2 síðan um miðjan mars. 17 pró­sent sögð­ust bera mest traust til Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra í sömu könnun. Sigurður Ingi er nýtt for­sæt­is­ráð­herra­efni Fram­sókn­ar­flokks­ins eftir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son ákvað að segja af sér því emb­ætti, en halda þó áfram sem þing­maður og for­maður flokks­ins.

Sigurður Ingi, Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra og Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, fá öll þrjú pró­sent í könn­un­inni. Tvö pró­sent sögð­ust treysta Illuga Gunn­ars­syni, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, mest og eitt pró­sent Sigrúnu Magn­ús­dóttur umhverf­is­ráð­herra.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra er lang­vin­sæl­asti ráð­herr­ann, en 40 pró­sent segj­ast treysta honum mest. Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra mæld­ist með 21 pró­sent og Sig­mundur Davíð, eins og áður segir, með 17 pró­sent.

Hringt var í 1.082 þar til náð­ist í 794 sam­kvæmt lag­skiptu úrtaki dag­ana 8. og 9. mars. Svar­hlut­fallið var 73,4 pró­sent. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár