Sigmundur Davíð hættir sem forsætisráðherra - Sigurður Ingi á að taka við

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra lagði fram til­lögu við þing­flokk sinn í dag um að hann stigi til hliðar sem for­sæt­is­ráð­herra og að Sigurður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks, taki við. Sig­mundur Davíð ætlar að vera áfram for­maður flokks­ins. Málið hefur verið kynnt Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, en sam­þykki Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir þess­ari ráð­stöfun liggur ekki fyrir. Þetta til­kynnti Sigurður Ingi blaða­mönnum eftir þing­flokks­fund Fram­sókn­ar­flokks­ins í dag.

Þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins fund­aði fyrr í dag og Bjarni Bene­dikts­son hélt í kjöl­far þess fundar á fund for­seta Íslands. Afstaða Sjálf­stæð­is­flokks­ins til þess að Sigurður Ingi verði for­sæt­is­ráð­herra í rík­is­stjórn­inni liggur ekki fyrir. Bjarni ætlar að ræða við frétta­menn þegar fundi hans með for­seta Íslands lýkur á eftir.

Fyrr í dag fór Sig­mundur Davíð á fund Ólafs Ragnars Gríms­sonar, for­seta Íslands, og bað um heim­ild til þing­rofs. Því hafn­aði for­set­inn þar sem for­sæt­is­ráð­herra tókst ekki að sann­færa hann um að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi fall­ast á hug­mynd­ina. Þegar þeirri bón Sig­mundar var hafnað fór Sig­mundur Davíð á þing­flokks­fund og lagði til að Sigurður Ingi tæki við sem for­sæt­is­ráð­herra. Hann ætlar hins vegar sjálfur að sitja áfram sem for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár