Ólafur Ragnar: Sigmundur vildi nota þingrof sem vopn í viðræðum við Bjarna Ben

Ólafur Ragnar að ræða við fjölmiðla í dag.
Ólafur Ragnar að ræða við fjöl­miðla í dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, segir að það hafi ekki verið neinn mis­skiln­ingur á milli hans og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra á fundi þeirra í dag. „Atburð­ar­rásin var nákvæm­lega eins og ég lýsti,“ sagði for­set­inn í beinni útsend­ingu á RÚV rétt í þessu. Hann sagði samt ekki vera við hæfi að hann „elti ólar við frá­sögn hans.“

Ólafur Ragnar segir að Sig­mundur Davíð hafi mætt með rit­ara rík­is­s­ráðs og ráðu­neyt­is­stjóra og skrif­stofu­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu með sér á fund þeirra í morgun. Aldrei fyrr hafi svona lagað gerst í hans emb­ætt­is­tíð. Með í för hafi verið rík­is­ráðs­skjalataskan, sem geymi skjöl rík­is­ráðs­ins.

Það hafi verið ljóst að Sig­mundur Davíð hafi viljað að Ólafur Ragnar vildi sam­þykkja þing­rofs­beiðni hans, og þegar ljóst hafi orðið að for­set­inn ætl­aði ekki að gera það hafi hann viljað fá fyr­ir­heit um að það yrði gert seinna.

„Eins og hann gaf í skyn á blogg­síðu sinni þá tvinn­aði hann saman ann­ars vegar þing­rofið og síðan við­ræður sínar við forman Sjálf­stæð­is­flokks­ins...Það var ljóst í sam­ræðum okkar að einn meg­in­til­gangur þess að koma í flýti hingað var að fá slíkt fyr­ir­heit sem hann gæti síðan notað sem vopn í við­ræðum við for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins,“ sagði for­seti Íslands. Hann seg­ist ekki hafa talið við hæfi að for­seta­emb­ættið væri notað með þessum hætti í póli­tískum deilum.

Ólafur Ragnar vildi við RÚV ekki úti­loka að hann end­ur­skoð­aði ákvörðun sína um að hætta sem for­seti í sumar. Hann sagði hins vegar að það ætti að vera fólki alveg ljóst að atburð­ar­rásin í dag sýni ótví­rætt að ákvarð­anir for­set­ans geti haft mikil áhrif.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár