Þingflokkur Sjálfstæðisflokks ekki látinn vita af tillögum Sigmundar

Þing­flokkur Sjálf­stæð­is­manna var ekki lát­inn vita af til­lögum for­svars­manna Fram­sókn­ar­flokks­ins um að Sigurður Ingi Jóhanns­son tæki við sem for­sæt­is­ráð­herra. Forseti Alþingis fór á fund for­seta Íslands að ræða stöð­una.

Bjarni Benediktsson hitti forseta Íslands á Bessastöðum í dag.
Bjarni Bene­dikts­son hitti for­seta Íslands á Bessa­stöðum í dag. Mynd: Birgir Þór

Þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins vissi ekki af ákvörðun Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar um að stíga til hliðar og leggja til að Sigurður Ingi Jóhanes­son yrði for­sæt­is­ráð­herra í hans stað, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Sigurður Ingi til­kynnti um þessa til­lögu Fram­sókn­ar­flokks­ins þegar Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra var á leið á Bessa­staði að hitta for­seta Íslands. Sigurður Ingi seg­ist hafa til­kynnt Bjarna um þessar vend­ingar sím­leiðis.

Bjarni sagð­ist eftir fund sinn með for­set­anum að hann myndi hitta Sigurð Inga og fara yfir mögu­leik­ana með honum. Hann mundi ekki gera þá kröfu að verða for­sæt­is­ráð­herra.

Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, fór einnig á fund Ólafs Ragnars nú undir kvöld. Hann hitti fyrst full­trúa stjórn­ar­and­stöð­unnar á þingi sem vilja að Alþingi komi saman án tafar í ljósi aðstæðna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár