Bjarni mun ekki gera kröfu um að verða forsætisráðherra

Bjarni Benediktsson eftir fund hans með forseta Íslands á Bessastöðum í dag.
Bjarni Bene­dikts­son eftir fund hans með for­seta Íslands á Bessa­stöðum í dag.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að hann og Sigurður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, þurfi að ræða hvort að það gangi að rík­is­stjórnin starfi áfram. Nýjar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður eru því framundan milli þeirri flokka sem þegar mynda rík­is­stjórn lands­ins. Bjarni mun ekki gera kröfu um að verða for­sæt­is­ráð­herra heldur vilji hann tryggja far­sæla lausn í sam­starfi við Fram­sókn­ar­menn. Það sé mik­il­vægur þáttur í að end­ur­nýja stjórn­ar­sam­starfið að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi gert þær breyt­ingar sem gerðar hafa verið, og í fel­ast að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son stígi til hliðar sem for­sæt­is­ráð­herra.

Bjarni sagði við frétta­menn á Bessa­stöðum í dag, eftir fund hans með Ólafi Ragnari Gríms­syni, for­seta Íslands, að hann líti svo á að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hafi sóst eftir þing­rofs­heim­ild fyrr í dag til að veifa framan í sig. Hann hafi svarað Sigmundi Davíð því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ótt­að­ist ekki að ganga til kosn­inga.

Bjarni sagði frá því að hann hefði greint Sigmundi Davíð frá því að það þyrfti að bregð­ast við þeirri stöðu sem upp var komin. Engum hafi dulist að það væri krafa um að Sig­mundur Davíð myndi víkja. „Ég er ekki blindur." Það væri hins vegar óabyrgt að fara til kosn­inga núna.

Sig­mundur Davíð hafi boðið tvo kosti í stöð­unni, annað hvort óskor­aðan stuðn­ing við sig og áfram­hald­and rík­is­stjórn­ar­innar eða þing­rof. Bjarni hafi hins vegar séð fleiri kosti í stöð­unni, meðal ann­ars þann sem nú er að fæð­ast.

Í við­tali við RÚV sagði Bjarni enn fremur frá að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi ein­dregið óskað eftir sam­tali við Sjálf­stæð­is­flokk­inn um að halda rík­is­stjórn­ar­starf­inu áfram. Hann þakk­aði þar for­seta Íslands fyrir að bregð­ast við beiðni Sig­mundar Davíðs um þing­rof með þeim hætti sem hann gerði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár