Krafan um nýtt upphaf nær einróma frá stjórnarandstöðu

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir hafa gengið í gegnum nær for­dæma­lausar fylg­is­sveiflur á kjör­tíma­bil­inu. Kosn­ingar í bráð gætu skapað mikil tæki­færi fyrir suma, en eru ógnun fyrir aðra.

Rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins mun ekki starfa áfram með Sigmund Davíð Gunn­laugs­son í brúnni, það liggur nú fyrir, eftir darraða­dans og dramat­íska atburða­rás í dag. Sem hófst raunar með skýrum yfir­lýs­ingum Sig­mundar Davíðs um að hann myndi ekki hætta og ekki rík­is­stjórnin heldur.

Tillaga sem kom á óvart

Eftir fund með þing­flokki Fram­sókn­ar­flokks­ins til­kynnti Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, að hann myndi taka við sem for­sæt­is­ráð­herra og Sig­mundur Davíð hætta. Þetta væri til­laga Fram­sókn­ar­flokks­ins, eins og hún var á borð borin.

Sé mið tekið af sam­tölum sem Kjarninn hefur átt í dag, bæði við stjórn­ar­þing­menn og þing­menn stjórn­ar­and­stöðu, þá var þetta útspil aldrei mögu­legt til þess að verða sátta­grund­völlur á Alþingi eða mæta kröfum um nýtt upp­haf, eins og greina mátti með áber­andi hætti í fjöl­menn­ustu mót­mælum á Íslandi í seinni tíð í gær, og stjórn­ar­and­staðan hefur lagt áherslu á. Tillagan kom flestum í stjórn­ar­and­stöð­unni á óvart.

Erfitt að spá fyrir í óvissuskýi

Óvissu­ský, sem síðan getur horfið hratt, er nú yfir fram­hald­inu og í raun ótíma­bært að spá fyrir með mik­illi vissu um það sem mögu­lega geti gerst. Hins vegar er stjórn­ar­and­staðan uppi með skýra kröfu um kosn­ingar og að almenn­ingur ráði ferð­inni í gegnum þær. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, hefur talað fyrir því sér­stak­lega - bæði í við­tölum og á göng­unum á Alþingi - að stjórn­ar­and­stæð­ingar standi saman í því að knýja fram van­traust á rík­is­stjórn­ina og kosn­ingar í kjöl­farið. Flokkur hennar mælist með um 11 pró­sent fylgi þessi miss­erin.

Það sem flækir stöð­una hjá stjórn­ar­and­stöð­unni er afar veik staða flokka inn­byrðis, og ójafn­vægi milli þing­manna­styrks þeirra og síðan kann­anna. Það sem er skýr­ast í þeim efnum er staða Pírata, sem mæl­ast nú með 36,1 pró­sent fylgi, en eru með þriggja manna þing­flokk. Sam­fylk­ingin er með afar veika for­ystu­sveit og lítið fylgi í sögu­legu sam­hengi (9,5 pró­sent), og hefur ákveðið að styrkja innra starfið með kosn­ingu nýs for­manns og for­ystu á næsta lands­fundi. Þegar hafa komið fram nokkrir flokks­menn sem vilja leiða flokk­inn inn í nýja tíma, þar á meðal Helgi Hjörvar, Oddný Harð­ar­dóttir og Magnús Orri Schram. Eins og staða mála nú, er því Árni Páll Árnason, for­maður flokks­ins, með afar veikt umboð til for­ystu­verk­efna í íslenskum stjórn­málum og ekki víst að kosn­ingar sé það besta í stöð­unni, sé horft á málin út frá hags­munum Sam­fylk­ing­ar­innar sér­stak­lega.

Berst fyrir tilveru sinni

Björt fram­tíð (3,2 pró­sent) er í reynd að berj­ast fyrir til­veru sinni, þrátt að ein­staka þing­menn flokks­ins hafa verið nokkuð áber­andi í því verk­efni þings­ins, að reyna að byggja upp traust og trúnað að und­an­förnu, eftir að áhrifa Panama­skjal­anna fór að gæta í íslenskri stjórn­mála­um­ræðu. Sér­stak­lega má nefna Óttar Proppé í þeim efnum.

Þessi staða gerir stjórn­ar­and­stöð­unni erfitt fyrir að stilla saman strengi, og ná vopnum sínum fyrir kosn­ingar sem geta farið fram innan tíðar, jafn­vel skömmu fyrir for­seta­kosn­ingar í júní eða nokkrum mán­uðum eftir þær. En þrátt fyrir það, þá mælist stjórn­ar­and­staðan nú sam­an­lagt með 59,3 pró­sent fylgi, sam­kvæmt könn­unum Gallup.

Stórkostlegur sigur Pírata virðist líklegur möguleiki

En und­an­tekn­ingin er óneit­an­lega staða Pírata, sem gætu unnið stór­kost­legan kosn­inga­sigur eftir kosið yrði á næst­unni, sem myndi skapa nýtt upp­haf á stjórn­mála­svið­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár