Framsóknarflokkurinn styður Sigmund áfram

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir forseta Íslands ekki hafa sagt satt á blaðamannafundi á Bessastöðum í hádeginu.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son segir for­seta Íslands ekki hafa sagt satt á blaða­manna­fundi á Bessa­stöðum í hádeg­inu. Mynd: Birgir Þór

Þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins styður Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, for­mann flokks­ins og frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, eftir atburði dags­ins. Þing­flokk­ur­inn llýsir ánægju með „þá virð­ing­ar­verðu afstöðu for­manns­ins sem felst í því að hann skuli vera reiðu­bú­inn að stíga þetta skref til að gera rík­is­stjórn­inni kleift að vinna áfram að þeim mik­il­vægu verk­efnum sem nú liggja fyrir.” Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá þing­flokknum. „Formaður, vara­for­maður og aðrir þing­menn flokks­ins eru sam­mála um að mik­il­vægt sé að halda áfram að upp­lýsa um þann fjölda fyr­ir­tækja í eigu Íslend­inga sem skráð eru erlendis til að tryggja að allir standi skil á sínu til sam­fé­lags­ins eins og for­maður flokks­ins og kona hans hafa gert,” segir í til­kynn­ing­unni.

Frosti segir Sigmund hafa gert mistök

Frosti Sig­ur­jóns­son, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir í stöðu­færslu á Facebook að með afsögn sinni hafi Sig­mundur Davíð skapað for­sendur fyrir áfram­hald­andi sam­starfi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna og rík­is­stjórn­inni færi til að ljúka þeim mik­il­vægu verk­efnum sem hún hefur unnið að. Afsögn hans beri vott um fórn­fýsi. Frosti und­ir­strikar þó að Sig­mundur hafi gert mis­tök með því að tengj­ast félagi á Tortóla og einnig að upp­lýsa ekki um hags­muni félags­ins gagn­vart slita­búum föllnu bank­anna.

Sigmundur segir Ólaf Ragnar ljúga

Þá kom önnur til­kynn­ing frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu þar sem fram kom að á fundi for­seta Íslands og for­sæt­is­ráð­herra hafi sá síð­ar­nefndi upp­lýst for­seta um stöðu mála í stjórn­málum hér á landi og greint jafn­framt frá áformum sínum um að leggja til við for­seta að þing yrði rofið og boðað yrði til almennra alþing­is­kosn­inga ef í ljós kæmi að meiri­hluta stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina væri brost­inn.

„Formleg til­laga um þing­rof var hvorki borin upp á fund­inum né kynnt for­seta eins og skilja mátti af ummælum for­seta Íslands að fundi loknum. For­sæt­is­ráð­herra tjáði for­seta að hann hyggð­ist bera þing­rof­s­til­lögu form­lega upp við for­seta ef nið­ur­staða um fram­an­greint lægi fyrir,” segir í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár