Ekki unnt að svara fyrirspurn um bætur

Úttekt vegna fyr­ir­spurnar er of umfangs­mikil að ekki er hægt að taka upp­lýs­ingar saman um hve háar bætur að með­al­tali hafa verið dæmdar brota­þolum vegna ólög­mætrar upp­sagnar, lík­ams­árásar og nauðg­unar síð­ast­liðin 5 ár, sam­kvæmt svari dóms­mála­ráð­herra.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata, spurði í fyr­ir­spurn til dóms­mála­ráð­herr­ans, Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, hve langir fang­els­is­dómar, skil­orðs­bundnir og óskil­orðs­bundnir hefðu verið síð­ast­liðin 5 ár að með­al­tali, í mán­uðum talið, fyrir hverja milljón króna sem stungið hefði verið undan eða stolið, sund­ur­liðað eftir skattsvikum og þjófn­aði.

Í öðru lagi spurði hann hve háar bætur að með­al­tali hefðu síð­ast­liðin 5 ár verið dæmdar brota­þolum vegna ólög­mætrar upp­sagnar, lík­ams­árásar og nauðg­unar.

Í svari dóms­mála­ráð­herra kemur fram að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara sé ekki hægt að svara fyr­ir­spurn­inni út frá þeim upp­lýs­ingum og kerfum sem lög­regla og ákæru­vald býr yfir.

„Skráning í upp­lýs­inga­kerfi dóm­stól­anna býður ekki upp á að hægt sé að taka umbeðnar upp­lýs­ingar út með ein­földum hætti, að því er dóm­stóla­sýslan segir. Þá skráir Fang­els­is­mála­stofnun rík­is­ins lengd refs­inga og hvort um skil­orðs­bund­inn dóm eða óskil­orðs­bund­inn dóm sé að ræða sem og þau laga­á­kvæði sem dóm­þoli brýtur gegn en ekki nánar eðli þeirra brota sem sak­fellt er fyrir, þar á meðal þær fjár­hæðir sem um ræðir,“ segir í svar­inu.

Þá kemur fram að til þess að svara fyr­ir­spurn­inni þyrfti að fara yfir öll mál sér­stak­lega en slík úttekt yrði svo umfangs­mikil að ekki væri hægt að svara fyr­ir­spurn­inni í stuttu máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár