Leiguverð hæst í Reykjavík borið saman við hin Norðurlöndin

Hvergi á Norð­ur­lönd­unum er að finna jafn hátt leigu­verð í höf­uð­borg­inni og hér á landi.

Mið­svæðis í Reykja­vík leig­ist tveggja her­bergja íbúð á um 190.000 kr. á mán­uði að með­al­tali. Hvergi á Norð­ur­lönd­unum er að finna jafn hátt leigu­verð í höf­uð­borg­inni og hér á landi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Leigu­mark­aðs­deild Íbúða­lána­sjóðs um íbúðar- og leigu­verð í höf­uð­borgum Norð­ur­land­anna.

Samkvæmt skýrslu­höf­undum er leigu­mark­að­ur­inn á Íslandi að mörgu leyti ólíkur því sem þekk­ist í nágranna­lönd­unum.

„Þótt leigu­mark­að­ur­inn hér á landi hafi stækkað að und­an­förnu er hann ennþá hlut­falls­lega lít­ill í alþjóð­legu sam­hengi og að mörgu leyti óþrosk­aður.

Reglu­verk hans og umgjörð er til að mynda önnur hér en á hinum Norð­ur­lönd­unum. Aðilum sem eiga í leigu­sam­bandi hér á landi er frjálst að semja um lengd samn­ings og eins hver leigu­fjár­hæðin skuli vera og hvort og með hvaða hætti hún skuli taka breyt­ingum á leigu­tíma,“ segir í skýrsl­unni.

Leiguverð hæst bæði í miðborg og utan hennar

Í skýrsl­unni kemur fram að leigu­verðið er hæst í Reykja­vík, bæði í mið­borg og utan mið­borg­ar­innar, hvort sem horft er til tveggja eða fjög­urra her­bergja íbúða.

Mið­svæðis í Reykja­vík er leiga fyrir tveggja her­bergja íbúð um 188.000 krónur á mán­uði. Á eftir Reykja­vík er leigu­verð tveggja her­bergja íbúðar mið­svæðis hæst í Kaup­manna­höfn eða um 164.000 íslenskar krónur á mán­uði að með­al­tali. Lægst er leiga slíkrar íbúðar í Þórshöfn á um 110.000 krónur á mán­uði.

Það sama á við um tveggja her­bergja íbúðir utan mið­borgar. Þar er leigu­verðið hæst í Reykja­vík, eða rúm­lega 150.000 krónur, en á eftir Reykja­vík er hæsta leigu­verð slíkrar íbúðar í Osló þar sem það er um 122.000 krónur.

Fjögurra her­bergja íbúðir eru einnig dýrastar í Reykja­vík, hvort sem horft er til með­al­í­búðar í mið­borg­inni eða utan mið­borgar. Í mið­borg­inni leig­ist slík íbúð á tæp­lega 300.000 krónur á mán­uði. Á eftir Reykja­vík er leigu­verð fjög­urra her­bergja íbúðar hæst í mið­borg Kaup­manna­hafnar eða á tæp­lega 290.000 krónur.

„Hátt leigu­verð en hlut­falls­lega lágt hús­næð­is­verð kann að vera skýr­ingin á háu hlut­falli ungs fólks í for­eldra­húsum, en hvergi á Norð­ur­lönd­unum er hlut­fallið jafn hátt og hér á landi,“ segir í skýrsl­unni. Um 14 pró­sent fólks á aldr­inum 25 til 34 ára hér á landi býr í for­eldra­húsum á meðan hlut­fallið er innan við 6 pró­sent víð­ast hvar ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum.

Hátt leiguverð gerir leigjendum erfitt fyrir að safna

Í skýrsl­unni kemur jafn­framt fram að íbúða­verð í Reykja­vík sé lágt í hlut­falli við tekjur miðað við höf­uð­borgir ann­arra landa. Hlut­falls­lega lágt hús­næð­is­verð á móti háu leigu­verði geri það að verkum að hag­stæð­ara er fyrir fólk að kaupa. Á móti þessu kemur að hátt leigu­verð geri leigj­endum erf­ið­ara fyrir að safna sér upp í þá útborgun sem þarf fyrir íbúð.

Sé íbúða­verð í Reykja­vík borið saman við íbúða­verð í höf­uð­borgum nágranna­land­anna sést að það sker sig úr en aðeins í Þórshöfn er íbúða­verð lægra en í Reykja­vík, sam­kvæmt skýrsl­unni.

Hæst er kaup­verð íbúða í mið­borg Stokk­hólms en þar selst fer­metr­inn á yfir 1,1 milljón íslenskra króna. Fer­metra­verð utan mið­borgar Stokk­hólms er lægra eða um 663.000 krónur. Á eftir Stokk­hólmi mælist verðið hæst í Osló en þar er verð á hvern fer­metra í mið­borg­inni örlítið lægra en í mið­borg Stokk­hólms eða um 960.000 krónur.

Lægsta fer­metra­verðið er að finna í Þórshöfn en þar selj­ast íbúðir mið­svæðis á tæp­lega 359.000 krónur á hvern fer­metra en 263.000 krónur utan þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár