Íbúðalánasjóður vill endurskilgreina viðmið um hvað sé hæfilegt leiguverð

Þau leigu­fé­lög sem eru með lán frá Íbúða­lána­sjóði eru að rukka leigu í sam­ræmi við mark­aðs­leigu eða aðeins undir henni. Íbúða­lána­sjóður segir mark­aðs­leigu hins vegar ekki vera rétt­mætt við­mið og vill end­ur­skil­greina hvað sé hæfi­legt leigu­verð.

Húsa­leiga þeirra 20 leigu­fé­laga sem eru með lán frá Íbúða­lána­sjóði, og voru krafin um upp­lýs­ingar um verð­lagn­ingu leigu­í­búða sinna með bréfi sem sent var í maí síð­ast­liðnum, er annað hvort í sam­ræmi við mark­aðs­leigu á við­kom­andi svæði eða aðeins lægri.

Í bréf­inu voru félögin, sem sum hver eru hagn­að­ar­drifin leigu­fé­lög, spurð hvernig þau séu rekin með sem hag­kvæmustum hætti með hags­muni íbúa að leið­ar­ljósi.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið segir þó að í ljósi þess ástands sem nú ríkir á leigu­mark­aði sé það hins vegar mat Íbúða­lána­sjóðs að mark­aðs­leiga geti ekki talist rétt­mætt við­mið um það hvort leigu­fjár­hæð sé við­ráð­an­leg í skiln­ingi laga um hús­næð­is­mál ann­ars vegar og reglna sem gilda um leigu­í­búða­lán sjóðs­ins hins vegar. „Því vinnur Íbúða­lána­sjóður nú að því að skil­greina ný við­mið um hæfi­legt leigu­verð þar sem horft verði til ann­arra þátta, líkt og hversu hátt hlut­fall hús­næð­is­kostn­aður er af ráð­stöf­un­ar­tekjum íbúa á við­kom­andi svæði.“

Ný skil­greind við­mið Íbúða­lána­sjóðs myndu taka til­lit til við­miða Eurostat, hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins, um að hús­næð­is­kostn­aður telj­ist veru­lega íþyngj­andi ef hann er yfir 40 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum, sem og ákvæða íslenskra laga um almennar íbúðir þar sem við­miðið til að hljóta stofn­fram­lög er að hús­næð­is­kostn­aður leigj­enda íbúð­anna nemi að jafn­aði ekki meira en 25 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum þeirra. „Nið­ur­stöður kann­ana sem Íbúða­lána­sjóður hefur látið fram­kvæma hafa leitt í ljós að hlut­fall ráð­stöf­un­ar­tekna sem lág­tekju­hópar verja til leigu hér á landi er hærra en í nágranna­lönd­unum. Einnig er fjár­hags­staða leigj­enda mun verri en fjár­hags­staða ann­arra á hús­næð­is­mark­aði og flestir lands­manna gefa þau svör að óhag­stætt sé að vera á leigu­mark­aði í dag. Meiri­hluti leigj­enda seg­ist í könn­unum sjóðs­ins ekki upp­lifa að þeir búi við hús­næð­is­ör­yggi en telja þrátt fyrir það lík­legt að þeir verði áfram á leigu­mark­aði á næst­unni.“

Tvöfaldast á átta árum

Leigu­verð íbúð­ar­hús­næðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur tvö­fald­ast á átta árum. Á síð­ustu tveimur árum hefur það hækkað um meira en 30 pró­sent. Í könnun sem gerð var fyrr á árinu fyrir Íbúða­lána­sjóð kom fram að þriðji hver leigj­andi borgi meira en helm­ing af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu og fáir þeirra geta safnað sér sparifé vegna hás leigu­kostn­aðar. Ein­ungis 14 pró­sent þeirra sem eru á leigu­mark­aði vilja vera þar.

Stærstu hagn­að­ar­drifnu leigu­fé­lög lands­ins hafa varið hækk­anir sínar með þeim rökum að þau hafi ein­göngu verið að „að­laga“ leigu­samn­inga fast­eigna­safna sem þau hafi keypt af rík­inu að mark­aðs­verði.

Lán til að stuðla að framboði á viðráðanlegum kjörum

Kjarn­inn greindi frá því í maí að Heima­vell­ir, stærsta hagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag lands­ins sem á um tvö þús­und íbúð­ir, sé að stærstum hluta fjár­magnað með lánum frá Íbúða­lána­sjóði. Íbúða­lána­sjóður og Kadeco, annað félag í eigu rík­is­ins, eru líka þeir aðilar sem hafa selt Heima­völlum flestar eign­ir.

Lánin eru að hluta til veitt í sam­ræmi við reglu­gerð Íbúða­lána­sjóðs frá árinu 2013 til sveit­ar­fé­laga, félaga og félaga­sam­taka sem ætl­aðar eru til bygg­ingar eða kaupa á leigu­í­búð­um. Mark­mið þeirrar reglu­gerðar er að „stuðla að fram­boði á leigu­í­búðum fyrir almenn­ing á við­ráð­an­legum kjöru­m“.

Til að upp­fylla skil­yrði reglu­gerð­ar­innar mega félög sem fá slík lán ekki vera rekin í hagn­að­ar­skyni né má greiða úr þeim arð. Heima­vellir voru skráðir á markað í síð­ustu viku og ætla sér í kjöl­farið að end­ur­fjár­magna lán sín hjá Íbúða­lána­sjóði, sem nema 18,6 millj­örðum króna og eru rúm­lega helm­ingur af skuldum félags­ins, svo það geti greitt út arð.

Frá því að Heima­vellir voru stofn­aðir í febr­úar 2015 hefur leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um meira en 40 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár