Af handaböndum og faðmlögum

Stundum er haft á orði að ekk­ert sé svo ein­falt að ekki sé hægt að gera úr því stór­mál. Fram til þessa hefur handa­band og ein­falt faðm­lag ekki talist til stór­mála en umræða um slíkt hefur nú ratað inn í sveita­stjórnir í Danmörku, og danska þingið.

Víðast hvar á Vest­ur­löndum þykir handa­band sjálf­sagður og eðli­legur hlutur. Heilsast og kveðj­ast með handa­bandi. Þannig er það ekki alls staðar og í sumum trú­ar­siðum bein­línis litið horn­auga, ef ekki bannað, að ein­stak­lingar af gagn­stæðu kyni tak­ist í hendur.

Í Danmörku er saga handa­bands­ins rakin til árs­ins 1241, þegar Jósku lögin, fyrstu rík­is­lög lands­ins voru stað­fest. Það gerði Valdimar kon­ungur annar (Valdemar Sejr) og athöfnin fór fram í Vor­ding­borg á Suður-Jótlandi. Formáli lag­anna hefst á orð­unum „Mæth logh skal land bygiæs“, með lögum skal land byggja. Þegar skrifað hafði verið undir laga­skjalið tók­ust menn í hendur. Eftir þetta handa­band varð siður í Danmörku að takast í hendur til að stað­festa sam­komu­lag.

Johs Nør­regaard Frandsen pró­fessor við Syddansk Uni­versitet telur að handa­band sé upp­haf­lega evr­ópskur siður sem svo hafi breiðst út um víða ver­öld. Ekki nota þó allir handa­band til að heils­ast og kveðj­ast eða inn­sigla sam­komu­lag. Sums­staðar leggur fólk lófa, gjarna hægri á hjarta­stað, aðrir leggja saman lófa þannig að þumlar nemi við bringu og hneigja sig lít­il­lega, indjánar lyfta hendi og snúa opnum lófa að þeim sem heilsað er og fleira mætti nefna. Áður­nefndur pró­fessor segir í við­tali við Danska útvarpið að það hafi ekki verið fyrr en í lok 19. aldar að Danir byrj­uðu að nota handa­bandið til að heil­ast og það voru það fyrst og fremst jafn­ingjar sem slíkt gerðu. Bóndi og hátt­settur emb­ætt­is­maður heils­uð­ust eða kvödd­ust ekki með handa­bandi fyrr en á síð­ustu öld, fram til þess tíma lyftu menn hatti eða hneigðu sig. Í dag þykir handa­band sjálf­sögð kurt­eisi, en er ekki endi­lega tákn um gagn­kvæma virð­ingu.

Innflytjendur og handabönd

Fyrr á þessu ári kynnti danska rík­is­stjórnin nýjar reglur varð­andi skil­yrði þess að öðl­ast danskan rík­is­borg­ara­rétt. Regl­urnar gera ráð fyrir að hver umsækj­andi taki þátt í sér­stakri athöfn í sínu lög­sagn­ar­um­dæmi og skuld­binda sig til að halda í heiðri dönsk gildi. Þar var sér­stak­lega til­greint að við áður­nefnda athöfn skuli umsækj­and­inn taka í hönd emb­ætt­is­manns sem stjórnar athöfn­inni.

Fyrr á árinu kom upp til­vik í Sviss þar sem hjónum var neitað um rík­is­borg­ara­rétt eftir að annað þeirra neit­aði að taka í hönd emb­ætt­is­manns af gagn­stæðu kyni. Inger Støjberg, ráð­herra inn­flytj­enda­mála hefur margoft lýst yfir að handa­bandið sé ófrá­víkj­an­legt skil­yrði fyrir rík­is­borg­ara­rétti í Danmörku. Líklegt má telja þeim sem sækja um danskan rík­is­borg­ara­rétt fjölgi mikið á næstu árum og í hópi umsækj­enda verði margir sem ekki geta hugsað sér að taka í hönd­ina á ein­hverjum af gagn­stæðu kyni. Ráðherra inn­flytj­enda­mála segir þetta ekki flókið mál, þeir sem ekki sætta sig við danskar reglur fari bara úr landi. Punktur og basta.

Faðmlögin

Í Suður- og Mið Evrópu hafa faðm­lög, þegar ætt­ingjar og vinir hitt­ast, tíðkast árum saman. Þar faðm­ast skóla- og vinnu­fé­lagar iðu­lega að morgni dags og jafn­vel líka þegar haldið er heim á leið. Hér í norðr­inu var slíkt vangaflens hins­vegar lengst af bundið við fjöl­skyldu og nán­ustu vini, handa­band ann­ars staðar talið full­nægj­andi. Nú er þetta breytt. Nú faðm­ast fólk í tíma og ótíma, og margir telja faðm­lagið bein­línis hollt, bæði fyrir lík­ama og sál. En ekki eru allir jafn hrifnir af þessu „faðm­laga­fári“.

Banna faðmlög

Sveit­ar­stjórnin í Hørsholm á Sjálandi sam­þykkti fyrir fjórum árum að ekki væri æski­legt að emb­ætt­is­menn sveit­ar­fé­lags­ins og kjörnir pói­tískir full­trúar föðm­uð­ust þegar þeir hitt­ust vegna starfa sinna. Þá voru þetta til­mæli. En fyrir skömmu hnykkti sveit­ar­stjórnin á þessum til­mælum og bætti reyndar um betur. Bannaði ein­fald­lega þetta „krammeri“ eins og borg­ar­stjór­inn Morten Slotved, orð­aði það. Faðm­laga­bannið vakti mikla athygli og varð víða aðhlát­ursefni.

Borg­ar­stjór­inn reyndi síðar að draga í land og sagði í við­tali við Danska útvarpið að þetta væri ekki bann, heldur ein­dregin til­mæli. Þegar hann var spurður hvers­vegna væri ástæða til að fjalla um faðm­lög, og jafn­vel banna, svar­aði hann því til að faðm­lag hefði ákveðna merk­ingu og nefndi dæmi: „Barnið þitt á í erf­ið­leikum í skól­anum, þú hefur hitt skóla­stjór­ann og það skilar engu. Fyrir þitt til­stilli er hald­inn fundur þar sem þú mætir, ásamt skóla­stjór­anum og einum bæj­ar­full­trúa. Þeir eru báðir karlar. Þegar bæj­ar­full­trú­inn kemur til fund­ar­ins faðm­ast þeir, hann og skóla­stjór­inn, en báðir heilsuðu þér með handa­bandi. Þetta eru skýr skila­boð um að þú sitjir ekki við sama borð.“

„Faðm­laga­málið“ hefur verið rætt í stjórnum margra sveit­ar­fé­laga en hvergi hafa, enn sem komið er, verið settar reglur um þessi mál.

Þingmenn vilja ekki faðmlagabann

Umræðan um faðm­laga­bannið (eða til­mælin) í Hørsholm hefur ratað inn í þingsal­ina á Krist­jáns­borg. Þar var tals­vert um það rætt fyrir nokkru þegar lög­reglu­kona í ein­kenn­is­bún­ingi faðm­aði múslíma­konu, sem bar niqab. Atvikið átti sér stað á mót­mæla­fundi vegna búrku­banns­ins svo­nefnda, sem tók gildi fyrir skömmu, en sam­kvæmt því varðar sektum að hylja and­lit sitt, á almanna­færi.

Margir þing­menn tjáðu sig um þetta atvik, og sýnd­ist sitt hverjum og myndir af faðm­lag­inu birt­ust í fjöl­miðlum víða um heim. Frétta­menn danska útvarps­ins spurðu marga þing­menn hvort þeir væru fylgj­andi faðm­laga­banni á þing­inu. Meiri­hluti þeirra sem rætt var við sögð­ust ekki fylgj­andi slíku banni á Krist­jáns­borg en nokkrir þeirra sögðu að „krammeri“ þing­manna væri allt of mikið. „Maður getur varla snúið sér við á göngum þing­húss­ins án þess að mæta ein­hverjum sem endi­lega vill faðma mann“ sagði Bertel Haarder sem setið hefur mjög lengi á þingi og bætti við „ég kann ekki við þetta en hvað getur maður gert“. Hann sagð­ist þó ekki vilja setja ein­hverjar sér­stakar reglur, slíkt væri frá­leitt. Margir þing­menn hafa gert góð­lát­legt grín að faðm­laga­bann­inu í Hørsholm og einn úr þeirra hópi sagð­ist hafa kíkt á daga­talið þegar hann las frétt­ina um bannið og bætti hann við: „En það var ekki 1. apríl.“

P.s. Fyrir áhuga­fólk um faðm­lög og handa­bönd má vekja athygli á pistli sem birt­ist hér í Kjarn­anum fyrir nokkru undir heit­inu: Faðm­laga­áráttan og dönsku handa­bands­sam­tökin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár