Faðmlagaáráttan og dönsku handabandssamtökin

Konunglegt faðmlag: Henrik Danaprins faðmar Margréti drottningu létt fyrir blaðamannafund.
Kon­ung­legt faðm­lag: Henrik Dana­prins faðmar Margréti drottn­ingu létt fyrir blaða­manna­fund. Mynd: EPA

Fyrir til­tölu­lega fáum árum var venjan sú, einkum á Vest­ur­löndum, þegar fólk sem þekkt­ist ágæt­lega hitt­ist, hvort sem var í heima­húsum, fyrir til­viljun á götu eða manna­mótum, bauð það góðan dag og kink­aði kolli, eða aðeins form­legra, heils­að­ist með handa­bandi. Klappaði kannski sam­tímis laust með vinstri hendi á upp­hand­legg eða öxl þess sem verið var að heilsa, það var þó ekki gert nema fólk þekkt­ist þeim mun betur. Smá höf­uð­hneig­ing fylgdi stundum með. Margir létu líka duga að heilsa ætt­ingjum, jafn­vel systk­inum, með handa­bandi. Kysstu for­eld­rana á kinn­ina, en enga aðra. Þetta var sið­ur­inn. Enginn velti þessu sér­stak­lega fyrir sér, svona var þetta barasta. Enda er handa­bandið gam­alt. Til eru lág­myndir frá 4. og 5. öld fyrir Krist þar sem fólk sést heils­ast með hægri hendi einsog við gerum í dag. Þótt ekki sé með vissu vitað af hverju hægri höndin var notuð er hugs­an­leg skýr­ing sú að flestir, aðrir en örv­hentir, báru iðu­lega vopn í hægri hendi og það að færa vopnið yfir í þá vinstri þegar heilsað var tákn­aði traust. 

Handa­band­sið­ur­inn hefur til skamms tíma ekki verið útbreiddur í Asíu, þótt slíkt sé þó meira áber­andi í dag, þar hafa höf­uð­hneig­ingar verið ríkj­andi ásamt því að leggja saman lófa þannig að þumlar nemi við bringu.

Svo komu faðmlögin

Orðið eitt og sér minnir kannski á laga­setn­ingu. Faðm­lögin hafa þó ekki komið til kasta Alþingis. Um faðm­lögin hafa semsé aldrei verið sett lög og reglu­gerðir enda eru regl­urnar um notkun faðm­laga fremur óljósar. Hverja á að faðma og hvenær, hvað á faðm­lagið að vera þétt, á að fylgja með koss á kinn, eða bara svo­kall­aður loft­koss? Ef maður tekur til dæmis þátt í nokk­urra daga nám­skeiði, á maður þá að faðma hina þátt­tak­end­urna þegar nám­skeið­inu lýkur? Og þá alla eða bara suma? Og hvað svo þegar maður hittir þetta sama fólk nokkru síðar, er þá faðm­laga­reglan enn í gildi? Þetta er ekki ein­falt mál, jafn­vel hálf­gert vanda­mál myndu ein­hverjir segja. Sumir koma sér upp ákveðnum faðm­laga­reglum, eru í eins konar faðm­laga­sam­bandi við til­tek­inn hóp, sem í flestum til­vikum fer ört stækk­andi. Þeir sem faðm­ast hafa hleypt hvor öðrum inn í ákveð­inn tengsla­hring.

Hvernig byrjaði þetta með faðmlögin?

Því er fljótsvarað. Það veit eng­inn. Faðmlög í þröngum hópi, t.d. innan fjöl­skyldna, og mjög náins vina­fólks, hafa lengi tíðkast en ekki eru margir ára­tugir síðan sið­ur­inn fór að verða jafn almennur og hann er í dag. Mið-Evr­ópu­búar og þeir sem sunnar búa voru langt á undan okkur í Norðrinu í þessum efnum enda iðu­lega talað um þeir séu miklu „opn­ari” en við sem norðar búum. Fyrir tutt­ugu árum, og kannski löngu fyrr, tíðk­að­ist það t.d. í Belgíu og Frakk­landi að nem­endur smelltu hægri vöngum saman að morgni dags og aftur þegar haldið var heim­leiðis. Á þeim tíma var slíkt vangaflens algjör­lega óþekkt á Fróni. Nú er það breytt. Höfundur þessa pistils var fyrir nokkru síðan á litlu kaffi­húsi í Reykja­vík. Yfir kaff­inu varð hann vitni að hverju faðm­lag­inu á fætur öðru þegar fólk sem greini­lega hafði mælt sér mót heils­að­ist, konur í meiri­hluta. Þótt þetta geti ekki talist vís­inda­leg könnun er greini­legt, eins og flestir þekkja, að sið­ur­inn er orð­inn mjög almennur. Á góðum degi kom­ast margir örugg­lega uppí tugi faðm­laga, fer auð­vitað eftir aðstæðum.

Er hollt að faðmast?

Þótt flestir geti sjálf­sagt (með und­an­tekn­ingum) verið sam­mála um að því að faðm­ast fylgi ákveð­inn hlý­leiki og nota­leg­heit hafa senni­lega fáir velt fyrir sér hinum lík­am­legu áhrifum. En þau hafa sér­fræð­ingar reynt að rann­saka og kom­ist að því að faðm­lagi fylgja lík­am­leg áhrif. Rann­sóknir hafa sýnt að faðm­lag fram­kallar ákveðið hormón, svo­nefnt oxytocin. Lengi vel var þetta hormón nefnt ást­ar­hormón en vís­inda­menn vilja nú, margir hverjir, kalla það vellíð­un­ar­hormón, tengdan snert­ingu. Þetta hefur ekki farið fram­hjá snyrti­vöru­fram­leið­endum, sem sumir aug­lýsa t.d. svita­lykt­areyði með oxytocin. Í aug­lýs­ingum er full­yrt að þetta hafi jákvæð áhrif, t.d á þétt­skip­uðu dans­gólfi. Sannanir í þessum efnum liggja ekki fyrir.

Tólf faðmlög daglega auka þroskann

Virgina Satir, þekktur banda­rískur fjöl­skyldu­ráð­gjafi og rit­höf­undur, taldi faðm­lög ótví­ræða leið til bættrar heilsu. Samkvæmt kenn­ingum hennar þarf fjögur faðm­lög á dag til að lifa af, átta til að halda okkur við og tólf til að þroskast. Þrátt fyrir að faðm­lögum hafi fjölgað mjög á síð­ustu árum er lík­legt að margir nái ekki þessum við­miðum.

Dönsku handabandssamtökin

Þótt fáir séu kannski bein­línis á móti „faðm­lagasiðnum” eru ekki allir jafn hrifnir af fyr­ir­bær­inu. Árið 1998 stofn­uðu nokkrir danskir karlar félags­skap­inn „Dansk Haand­tryks­for­en­ing”. Til­gangur félags­ins er að við­halda þeim gamla og góða sið að takast í hendur. „Það er hlaupin óða­verð­bólga í faðm­lögin og ekki seinna vænna að bregð­ast við” sagði einn af stofn­endum í blaða­við­tali. Þótt þeir handa­bands­menn hafi í sjálfu sér ekk­ert á móti faðm­lögum telja þeir að handa­bandið þurfi áfram að „skipa þann mik­il­væga sess í sam­fé­lag­inu sem það hefur gert öldum saman”. Handa­bandið hefur að mati félaga í sam­tök­unum ýmis­legt umfram faðm­lagið. Mik­il­væg­ast er augn­sam­bandið sem ætíð hefur verið talið mjög mik­il­vægt í sam­skiptum fólks, það fer fyrir ofan garð og neðan í faðm­lag­inu. Handa­bandið er alltaf ekta vara að mati félaga í handa­bands­sam­tök­unum. Ein­kunn­ar­orð sam­tak­anna eru „ekk­ert jafn­ast á við þétt hand­tak”.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár