„Flugfreyjur standa í stórkostlega erfiðri baráttu“ – Valdaójafnvægið hræðilegt

Formaður Eflingar segir að flug­freyjur séu í raun að taka slag­inn fyrir allt vinn­andi fólk. „Gangi ykkur vel, við erum sann­ar­lega öll í þessu með ykkur.“

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Samsett mynd/Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir að flug­freyjur standi í stór­kost­lega erf­iðri bar­áttu og að ekki sé auð­velt að vera bjart­sýnn fyrir þeirra hönd. „Valda­ó­jafn­vægið er hræði­legt. Kvenna­stétt gegn auð­vald­inu. Ég get varla ímyndað mér hvernig þeim líður. En ég veit að þær eiga allan minn stuðn­ing skilið. Og okkar allra. Þær eru í raun að taka slag­inn fyrir okkur öll, vinn­andi fólk. Um það hvað stjór­arnir kom­ast upp með þegar kreppan mætir enn eina ferð­ina.“

Þetta skrifar hún í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag.

Ýmislegt hefur gengið á í kjara­bar­áttu flug­freyja að und­an­förnu og erf­ið­lega hefur gengið að semja. Í frétt RÚV í dag kemur fram að boðað hafi verið til nýs samn­inga­fundar Icelandair og Flug­freyju­fé­lags­ins eftir hádegi en tólf tíma fundi þeirra í gær lauk laust eftir mið­nætti.

Nú kemur í ljós hvað það raunverulega þýðir að við séum öll í þessu saman

Sólveig Anna segir að á flug­freyjur eigi að leggja hræði­legar byrðar; ábyrgð­ina á að fórna rétt­indum sem ára­tuga­bar­átta hafi fært þeim. Auð­stéttin ætli eins og ávallt að ákveða – á algjör­lega ólýð­ræð­is­legan hátt – hvaða áhrif þessi kreppa hafi á vinnu­aflið. Og valda­stétt þessa lands sitji þögul hjá og geri ekk­ert til að aðstoða flug­freyjur.

„Afhjúp­unin heldur áfram. Nú kemur í ljós hvað það raun­veru­lega þýðir að við séum öll í þessu saman; við eigum öll að vera í því saman að tryggja að valda­ó­jafn­vægið hald­ist óbreytt, að stjórar og eig­endur fyr­ir­tækj­anna hafi á end­anum allt um allt að segja og hafi þess vegna valdið til að þröngva samn­ingum upp á fólk sem það vill ekki,“ skrifar hún.

Stillt upp sem óvinum þjóðarinnar

Sólveig Anna bætir því við að hún og félagar hennar í Eflingu þekki „það ömur­lega and­lega ofbeldi betur en flestir á þessu landi“. Í tvö ár hafi þau þurft að hlusta á það – því sem næst stans­laust – að bar­átta þeirra fyrir efna­hags­legu rétt­læti sé hrylli­leg ógæfa. „Okkur hefur verið stillt upp sem óvinum þjóð­ar­innar. Lág­launa­konan hefur verið gerð ábyrg fyrir því sem næst öllu; við­hald stöð­ug­leik­ans hefur oftar en ekki verið alfarið á hennar vinnulúnu herðum. Marg­milljón-króna menn­irnir hafa staðið þétt saman í að reyna að kremja rétt­læt­is­bar­áttu kven-vinnu­aflsins. En við höfum ekki látið það á okkur fá. Og sam­einuð og stað­föst höfum við náð að knýja fram við­ur­kenn­ingu á því að sögu­lega van­metin kvenna­störf ættu inni sína leið­rétt­ingu. Það var erfitt en það tókst.“

Hún seg­ist enn fremur horfa yfir vinnu­mark­að­inn með femínískum stétta­bar­áttu-gler­augum. „Ég veit að bar­átta okkar er rétt að byrja og við eigum eftir að taka ótal­marga slagi. Við eigum eftir að þurfa að berj­ast fyrir því að rík­is­valdið fari ekki í nið­ur­skurð á okkar kostnað. Við eigum eftir að þurfa að berj­ast fyrir því að á okkur sé hlustað og eftir okkar vilja sé farið. En þrátt fyrir þá erf­ið­leika sem við okkur blasa og þá stöðu sem við erum í ætla ég að segja að ég hef trú á því að rót­tæk bar­átta vinn­andi kvenna, sam­staða og stað­festa muni skila okkur árangri. Geti búið til rétt­lát­ara sam­fé­lag,“ skrifar hún.

Að lokum segir hún að við hljótum öll að senda kveðju til flug­freyja. „Gangi ykkur vel, við erum sann­ar­lega öll í þessu með ykkur. Áfram stelpur!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár