Mikið högg að missa loðnuna

Þó loðnan sé ekki eins stór hlut­falls­lega í gjald­eyr­is­köku þjóð­ar­búss­ins og hún var, þá er mikið högg að eng­inn loðnu­kvóti verði gef­inn út.

Enginn loðnu­kvóti verður gef­inn fyrir þessa ver­tíð, eins og greint var frá fyrr í dag. Það verður að telj­ast mikið högg fyrir þjóð­ar­búið og útgerð­irnar sem stunda loðnu­veiðar, vinnslu og sölu.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Hagstofu Íslands var loðnu flutt út á erlenda mark­aði fyrir 18 millj­arða í fyrra, og 18,3 millj­arða árið 2016. Árið 2015 var ver­tíðin mun betri en þá feng­ust rúm­lega 29 millj­arðar fyrir loðn­una.

Til sam­an­burðar nam heild­ar­út­flutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða um 197 millj­örðum í fyrra, 232,2 millj­örðum árið 2017 og 264 millj­örðum árið 2015. Gengi krón­unnar spilar þarna stóra rullu, en gengi krón­unnar styrkt­ist nokkuð gagn­vart helstu við­skipta­myntum árin 2016 og 2017, sem skýrir að hluta mik­inn munn á heild­ar­verð­mæti frá árinu 2015.

Í fund­ar­gerð bæj­ar­ráðs Fjarða­byggð, þar sem loðnu­vinnsla er mikið hryggjar­stykki í atvinnu­lífi, hefur verið bókað að staðan sé áhyggju­efni.

„Óvíða er upp­sjáv­ar­vinnsla meiri en í Fjarða­byggð og ljóst er að loðnu­brest­ur mun hafa mik­il áhrif á fjár­hag sveit­ar­fé­lags­ins. Þá er einnig mikið áhyggju­efni að ekki er búið að ljúka samn­ing­um um kol­munna­veiðar í Fær­eyskri lög­sögu, sem ekki síður hef­ur mik­il áhrif á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­in í Fjarða­byggð,“ seg­ir í fund­ar­gerð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár