Lára Björg hættir sem upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar

Upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar kveður for­sæt­is­ráðu­neytið.

Lára Björg Björnsdóttir
Lára Björg Björns­dóttir Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lára Björg Björns­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar, hefur sagt upp störfum. Frá þessu greinir hún í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni. Hún seg­ist kveðja for­sæt­is­ráðu­neytið og ynd­is­legt sam­starfs­fólk þar og í öðrum ráðu­neytum með sökn­uði og hlýju.

Lára Björg var ráðin í stöð­una í des­em­ber árið 2017 en hún hafði áður starfað við almanna­tengsl og skipu­lagn­ingu við­burða, sem og blaða­mennsku og frétta­skrif um ára­bil.

„Ég hef verið heppin að fá að vinna við það sem elska síð­ustu tvö árin. Mér þykir ótrú­lega vænt um þennan tíma sem er því miður á enda,“ skrifar hún en hún hættir af per­sónu­legum ástæðum.

„Ég kveð því for­sæt­is­ráðu­neytið og ynd­is­legt sam­starfs­fólk þar og í öðrum ráðu­neytum með sökn­uði og hlýju. Og ekki má gleyma fjöl­miðl­unum góðu fyrir ánægju­leg sam­skipti, fjöl­marga kaffi­bolla og skemmti­legar stundir á alls­konar blaða­manna­fundum við alls­konar aðstæður -og á ýmsum tímum sól­ar­hrings! Takk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár