Manngert rusl mun safnast í miklu magni á hafsbotni við Ísland ef ekkert breytist

Myndir af hafs­botni við Ísland veita dýr­mæta sýn á ástandið á hafs­botni. 92 pró­sent rusls sem þar finnst er plast og magnið er allt að fjórum sinnum meira en á hafs­botni við Noreg, sam­kvæmt nýrri skýrslu Haf­rann­sókna­stofn­unar.

Trollnet, fiskilínu og áldósir eru dæmi um rusl sem finna má á hafsbotni við Ísland.
Trollnet, fiski­línu og áldósir eru dæmi um rusl sem finna má á hafs­botni við Ísland. Mynd: Hafrannsóknastofnun

Rusl á hafs­botni við Ísland má nær ein­göngu rekja til sjáv­ar­út­vegs og 92 pró­sent alls rusl þar finnt er úr plasti. Þetta er meðal þess sem lesa má út úr nýrri skýrslu Haf­rann­sókna­stofn­unar um rusl á hafs­botni við Ísland.

Í skýrsl­unni má finna sam­an­tekt á skrán­ingu rusls við kort­lagn­ingu búsvæða á hafs­botni 2004-2019. Nið­ur­stöður skýrsl­unnar byggja á dreif­ingu og sam­setn­ingu rusls á hafs­botni út frá myndefni sem var tekið fyrir verk­efnið Kort­lagn­ing búsvæða á hafs­botni.

[adspot]Frá árinu 2004 hafa verið farnir átta leið­angrar til að mynda hafs­botn­inn fyrir verk­efnið, sem er ætlað að kort­leggja mis­mun­andi búsvæði á hafs­botni, skrá teg­undir og meta vernd­ar­gildi þeirra. Ýmis svæði hafa verið mynduð við Suður‐ og Vest­ur­land, en enn hafa engir leið­angrar farið fram úti fyrir Aust­ur­landi.

Trollnet, önglar, plastpokar og áldósir

Alls fund­ust 307 rusla­ein­ingar á 15 svæðum, allt frá önglum til troll­neta. Veið­ar­færi voru algeng­asta teg­und rusls, eða 94 pró­sent, og var megnið af því fiski­lína, eða 81%. Almennt rusl eins og plast­pokar, plast­filmur, áldósir, hrein­læt­is­vörur og fleira fannst sjaldnar, eða í um sex pró­sent til­vika.

92 pró­sent rusls­ins sem fannst á hafs­botni er úr plasti, með þeim fyr­ir­vara að gert er ráð fyrir að fiski­línur, troll­net, reipi og band­spottar séu úr plasti. „Flest nútíma veið­ar­færi eru gerð úr sterkum plast­efnum sem taka afar langan tíma að brotna niður. Því mun magn rusls á hafs­botni ein­ungis aukast með tím­anum,“ segir í skýrsl­unni.

Möguleg lausn er þó í sjón­máli þar sem verið er að þróa veið­ar­færi úr nið­ur­brjót­an­legum efnum sem gætu komið í stað veið­ar­færa úr plasti. „Ef það verður að veru­leika gæti það minnkað magnið af veið­ar­færum úr plasti sem enda á hafs­botni í fram­tíð­inni,“ segir í skýrsl­unni.

Fjórfalt meira rusl á hafsbotni við Ísland en í Noregi

Þétt­leiki rusls­ins var einnig rann­sak­aður og mælist þétt­leiki rusls á hafs­botni við Ísland um fjór­falt meiri en við strendur Noregs.

272 ein­ingar af rusli fund­ust á 13 af 21 svæði á árunum 2010-2019. Upp­reikn­aður með­al­þétt­leiki rusls mæld­ist 872 ein­ingar á fer­kíló­metra, sam­an­borið við 230 ein­ingar af rusli á fer­kíló­metra í Noregi og 200 ein­ingar á fer­kíló­metra við land­grunn­inn í Evrópu.

Í skýrsl­unni er þó bent á að í raun er ennþá lítið vitað um dreif­ingu og áhrif rusls í haf­inu í kringum Ísland en rann­sóknir hafa hins vegar auk­ist nýlega. Í því sam­hengi er bent á nið­ur­stöður rann­sókna sem sýna að örplast hefur fund­ist í vefja­sýnum í allt að 50 pró­sent af kræk­ling með­fram vest­ur­strönd lands­ins. Þá eru einnig til rann­sóknir sem sýna tölu­vert magn af plasti sem fund­ist hefur í melt­ing­ar­vegi íslenskra lang­reyða og ufsa.

[links]Umhverf­is­stofnun hefur frá árinu 2018 vaktað rusl á nokkrum ströndum í kringum landið og er allt að 99 pró­sent af rusl­inu plast, oft tengt sjáv­ar­út­vegi. Er það í takt við nið­ur­stöður skýrslu Haf­rann­sókna­stofn­unar, sem og erlendar rann­sóknir.

Nýleg rann­sókn á „rusla­eyj­unni“ í norð­ur­hluta Kyrra­hafs­ins (e. the Great Pacific Gar­bage Patch) sýnir að á bil­inu 75 til 86 pró­sent plast­leifa sem mynda þennan stærsta plast­fláka heims má rekja til úrgangs fisk­veiði­skipa fimm iðn­væddra sjáv­ar­út­vegs­ríkja.

Dýrmæt sýn á ástandið á hafsbotni við Ísland

Hingað til hefur aðeins brota­brot af hafs­botni innan efna­hags­lög­sögu Íslands verið myndað „en ljóst er að mynd­irnar gefa dýr­mæta sýn á ástandið á hafs­botn­inum,“ að því er fram kemur í skýrsl­unni.

Skýrslu­höf­undar telja hins vegar mik­il­vægt að fleiri svæði á hafs­botni verði mynduð og kanna þarf betur hvar rusl er að finna í kringum landið. Þá þurfi að reyna að tak­marka magn rusls sem endar í haf­inu og passa upp á við­kvæm búsvæði svo eyði­legg­ing af manna­völdum verði ekki meiri en raun ber vitni. „Þar til búið er að finna lausnir við þessu mikla vanda­máli sem mann­gert rusl er, þá mun það áfram safn­ast í miklu magni í haf­inu ef ekk­ert breyt­ist,“ segir í skýrsl­unni.

„Enn er lítið vitað um örlög og áhrif rusls í haf­inu og því mik­il­vægt að stunda frek­ari rann­sóknir á því hvar rusl safn­ast saman og hvernig það hefur áhrif á vist­kerfi í haf­inu ásamt því að skoða sam­spil veiði­á­lags og rusls á hafs­botni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

plastmengun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár