Rusla­eyjan í norð­ur­hluta Kyrra­hafs­ins, sem stað­sett er á milli Hawaii og Kali­forníu, er stærsta plast­eyjan, eða plast­fláki, sem flýtur um heims­höfin. Mynd: Ocean Cleanup

Iðnvædd sjávarútvegsríki bera ábyrgð á ruslaeyjunni í Kyrrahafi

Meiri­hluta af tug­þús­undum tonna af plasti sem mynda „rusla­eyj­una“ á Kyrra­haf­inu má rekja til sjáv­ar­út­vegs fimm iðn­ríkja. Rann­sak­endur segja tíma­bært að við­ur­kenna að plast­mengun á hafi sé hnatt­rænt vanda­mál en ekki bundið við fátæk sjáv­ar­út­vegs­ríki.

Á bil­inu 75 til 86 pró­sent plast­leifa sem mynda „rusla­eyj­una“ í norð­ur­hluta Kyrra­hafs­ins (e. the Great Pacific Garbage Patch) má rekja til úrgangs fisk­veiði­skipa fimm iðn­væddra sjáv­ar­út­vegs­ríkja.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri rann­sókn sem birt­ist í Scientific Reports, rit­rýndu vís­inda­fræði­riti. Vís­inda­menn á vegum óhagn­að­ar­drifnu sam­tak­anna The Ocean Cleanup standa á bak við rann­sókn­ina. 120 verk­fræð­ingar, rann­sak­endur, vís­inda­menn, auk ann­arra, eiga aðild að sam­tök­unum sem vinna dag­lega að lausnum til að losna við plast úr heims­höf­unum.

Plast leys­ist ekki upp heldur brotnar það niður í smærri og smærri agn­ir. Áhrifin sem plast hefur á umhverfi sjávar eru bæði marg­breyti­leg og afdrifa­rík. Rusla­eyjan í norð­ur­hluta Kyrra­hafs­ins, sem stað­sett er á milli Hawaii og Kali­forníu, er stærsta plast­eyjan sem flýtur um heims­höfin og hefur orðið að tákni um áhrif plast­meng­unar á hafi. Áætlað er að um 80 þús­und tonn af plast­leifum myndi plast­eyj­una. Það jafn­ast á við 500 breið­þotur að þyngd.

Í raun er ekki um að ræða eyjur í orðs­ins fyllstu merk­ingu, eins og segir í umfjöllun Vís­inda­vefs­ins um plast­eyjur, þar sem þær eru engan veg­inn svo fastar fyrir að hægt sé að ganga þar um. Það sé því rétt­ara að tala um plast­fláka.

Plast­flák­arnir eru fimm tals­ins, auk stærsta flák­ans á norð­an­verðu Kyrra­hafi er annar í sunn­an­verðu Kyrra­hafi, sá þriðji er í norð­an­verðu Atl­ants­hafi, sá fjórði í sunn­an­verðu Atl­ants­hafi og loks sá fimmti í Ind­lands­hafi.

Áætlað er að um 80 þús­und tonn af plast­leifum myndi ruslaeyjuna í norðurhluta Kyrrahafi. 6.093 plastleifum, tæpum 600 kílóum, var safnað og þær rannsakaðar í þaula.
Áætlað er að um 80 þús­und tonn af plast­leifum myndi rusla­eyj­una í norð­ur­hluta Kyrra­hafi. 6.093 plast­leifum, tæpum 600 kílóum, var safnað og þær rann­sak­aðar í þaula.

Tug­þús­undir tonna af plast­leifum fljóta um millj­ónir fer­kíló­metra á norð­ur­hluta Kyrra­hafs­ins. Stór hluti leif­anna sam­anstendur af fisk­veiði­netum og veið­ar­færum en þar er einnig að finna harð­plast af ýmsu tagi. Hægt er að rekja upp­runa sumra leif­anna.

Vísindamenn settu sig í spor rannsóknarlögreglumanna

Rann­sóknin sem nið­ur­stöð­urnar byggja á hófst árið 2019 þegar 6.093 plast­leifum í norð­an­verðu Kyrra­hafi, stærri en fimm sentí­metrar, var safnað. Leif­arnar voru síðar vigtaðar og flokk­aðar í 120 mis­mun­andi flokka og hver flokkur var svo rann­sak­aður í þeim til­gangi að kom­ast að upp­runa leif­anna. Alls voru 573 kíló af harð­plasti rann­sökuð. Elstu leif­arnar sem tókst að skil­greina var bauja frá 1966.

Fyrri rann­sóknir sýna að tæp­lega helm­ingur plast­leifa sem mynda stærsta flák­ann, um 46 pró­sent, má rekja til fisk­veiði­neta. Afgang­ur­inn er harð­plast en nið­ur­stöður nýju rann­sókn­ar­innar sýna að í heild­ina má rekja um 80 pró­sent plast­leif­anna til sjáv­ar­út­vegs.

„Eins og rann­sókn­ar­lög­reglu­menn erum við að skoða hvert smá­at­riði til að leita vís­bend­inga sem geta hjálpað okkur að greina hvaðan plastið kemur, af hverju það end­aði í sjónum og, mögu­lega, eitt­hvað sem getur hjálpað okkur að finna lausn hvernig koma megi í veg fyrir að það end­ur­taki sig,“ segir dr. Wouter Jan Stri­et­man, einn höf­unda rann­sókn­ar­innar.

Japan, Kína, Suður-Kórea, Bandaríkin og Taívan

Rann­sak­endum kom tölu­vert á óvart að stærstan hluta plast­leif­anna má rekja til fimm stórra sjáv­ar­út­vegs­ríkja en ekki minna þró­aðra ríkja líkt og jafnan er gert ráð fyrir. 34 pró­sent plast­leif­anna má rekja til Japans, 32 pró­sent til Kína, 10 pró­sent til Kóreu­skag­ans, sjö pró­sent til Banda­ríkj­anna og sex pró­sent til Taívans.

Ekkert þess­ara ríkja telst bera mesta ábyrgð á plast­mengun í sjó sem kemur frá landi en eru skil­greind sem umfangs­mestu sjáv­ar­út­vegs­ríkin í norðu­hluta Kyrra­hafs­ins.

Hingað til hefur plastmengun á sjó að stórum hluta verið rakin til strandlengja vanþróaðra ríkja og áa þar sem plast safnast saman og berst til sjávar. Niðurstöður rannsóknarinnar benda hins vegar til að ábyrgðin liggi að stórum hluta hjá stórum sjávarútvegsríkjum.
Hingað til hefur plast­mengun á sjó að stórum hluta verið rakin til strand­lengja van­þró­aðra ríkja og áa þar sem plast safn­ast saman og berst til sjávar. Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar benda hins vegar til að ábyrgðin liggi að stórum hluta hjá stórum sjáv­ar­út­vegs­ríkjum.

Ekki hægt að tengja plastmengun í sjó við fátækt

Eitt það mark­verð­asta við nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar að mati Laurent Lebreton, sem fer fyrir hópi rann­sak­end­anna, er að hingað til hefur verið litið á plast­mengun í sjónum sem fylgi­fisk sjáv­ar­út­vegs í van­þró­aðri ríkjum.

„Oftar en ekki hefur plast­mengun verið tengd við fátækt. En hér er það ekki til­fellið, plastið kemur frá ríkum hag­kerfum og iðn­væddum sjáv­ar­út­vegs­ríkjum sem sýnir að sjáv­ar­út­veg­ur­inn hefur stóru hlut­verki að gegna þegar kemur að plast­mengun og það skiptir öllu máli að við við­ur­kennum og ræðum það,“ segir Lebreton.

Sarah-Jeanne Royer, sjáv­ar­líf­fræð­ingur og einn af höf­undum rann­sókn­ar­innar, tekur í sama streng og segir að um hnatt­rænt vanda­mál sé að ræða. „Við getum ekki gert þetta ein. Við erum að gera rann­sóknir, við erum að reyna að svara vís­inda­legum spurn­ingum, en við vonum að sam­tök og stofn­anir um allan heim nýti sér þessi gögn til að hugsa lengra um hvernig leysa megi þetta gríð­ar­stóra vanda­mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

plastmengun

Mest lesið undanfarið ár