Hver íbúi á Íslandi notar líklega um 110-120 kíló af plasti á ári

Talið er að aðeins 5 pró­sent af öðru plasti en plast­um­búðum skili sér end­ur­vinnslu hér á landi. Í áætlun sem umhverf­is­ráð­herra hefur kynnt er að finna átján aðgerðir sem ætlað er að hafa áhrif á hegðun fólks í þeim til­gangi að draga úr notkun plasts.

Plast brotnar í óteljandi búta í hafinu og skolar svo upp í fjörur. Þessir plastbútar tilheyra ógrynni af plastrusli sem tínt var í fjörum í Árneshreppi á Ströndum í sumar.
Plast brotnar í ótelj­andi búta í haf­inu og skolar svo upp í fjörur. Þessir plast­bútar til­heyra ógrynni af plast­rusli sem tínt var í fjörum í Árnes­hreppi á Ströndum í sumar. Mynd: Sunna Ósk Logadóttir

Á hverju ári eru notuð um 47 kíló af plast­um­búðum að með­al­tali á hvern íbúa Íslands, eða alls um 16.500 tonn á ári. Þessar tölur ná yfir almennar umbúðir sem not­aðar eru á heim­ilum, stofn­unum og hjá fyr­ir­tækjum, svo sem umbúðir utan um mat­væli og annan varn­ing, og þær ná yfir drykkj­ar­vöru­um­búðir úr plasti og plast til að vefja utan um hey.

Á síð­ustu árum hafa að með­al­tali 43 pró­sent af plast­um­búðum sem not­aðar eru hér á landi skilað sér til end­ur­vinnslu. Upp­lýs­ingar um notkun ann­ars plasts en umbúða­plasts liggja ekki fyrir. Um 40 pró­sent af fram­leiddu plasti í heim­inum eru notuð í umbúðir og 60 pró­sent í annan varn­ing. Ef tekið er mið af þessu hlut­falli og gert ráð fyrir að 40 pró­sent af plast­notkun hér á landi sé vegna umbúða má leiða að því líkum að heild­ar­plast­notkun á Íslandi á hverju ári gæti verið á bil­inu 110-120 kíló á hvern íbúa að með­al­tali. Lítið skilar sér til end­ur­vinnslu af öðru plasti en umbúða­plasti, eða lík­lega innan við 5 pró­sent.

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra kynnti á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í gær áætl­un­ina Úr viðjum plast­s­ins. Hún sam­anstendur af 18 aðgerðum sem miða að því að draga úr plast­notkun í sam­fé­lag­inu, auka end­ur­vinnslu plasts og sporna gegn plast­mengun í hafi.

Meira en helm­ingur aðgerð­anna er þegar kom­inn til fram­kvæmda, til að mynda bann við afhend­ingu burð­ar­poka án gjald­töku. Í sumar sam­þykkti Alþingi frum­varp umhverfis- og auð­linda­ráð­herra þar sem bann var lagt við mark­aðs­setn­ingu ýmissa einnota plast­vara, svo sem bómull­arp­inna, hnífa­p­ara og blöðru­prika.

[adspot]

Unnið er að því að skylda flokkun á úrgangi og sam­ræma flokk­un­ar­merk­ingar á land­inu öllu með frum­varpi sem lagt verður fram á alþingi í vetur. Þá á að auka end­ur­vinnslu á plasti með hag­rænum hvötum. Á næsta ára­tug mun ríkið aðstoða sveit­ar­fé­lög á land­inu fjár­hags­lega svo hægt sé að ráð­ast í frek­ari end­ur­bætur á frá­veitu­kerfum og hefta þannig losun örplasts í hafið, til að mynda með grænum ofan­vatns­lausnum. Auglýst verður eftir verk­efnum á heima­síðu ráðu­neyt­is­ins í haust.

„Að ráð­ast gegn plast­mengun er áskorun sem allar þjóðir heims­ins standa frammi fyrir og hafa óæski­leg áhrif plast­meng­unar á líf­ríki komið æ betur í ljós á síð­ustu árum og er mik­il­vægt fyrir íslenskt sam­fé­lag að grípa til aðgerða til að draga úr óábyrgri og óþarfri notkun plasts hér á landi, auka end­ur­vinnslu plasts og lág­marka magn þess plasts sem ratar út í umhverfið, ekki síst til sjávar,“ er haft eftir Guðmundi Inga Guð­brands­syni, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, í til­kynn­ingu vegna aðgerða­á­ætl­un­ar­innar.

Aðgerð­irnar átján byggja á til­lögum sam­ráðs­vett­vangs um aðgerða­á­ætlun í plast­mál­efnum sem ráð­herra skip­aði árið 2018 og í sátu full­trúar stjórn­valda, atvinnu­lífs, félaga­sam­taka og þing­flokka.

Aðgerð­unum er skipt í þrjá hluta eftir eðli þeirra.

Dregið úr notkun plasts

Aðgerð 1: Notkun burð­ar­poka úr plasti verður hætt.

Aðgerð 2: Dregið úr umhverf­is­á­hrifum af til­teknum vörum úr plasti.

Aðgerð 3: Styrkir til rann­sókna og þró­unar á plast­lausum lausnum.

Aðgerð 4: Vit­und­ar­vakn­ing um ofnotkun einnota plast­vara.

Aðgerð 5: Við­ur­kenn­ing fyrir fram­úr­skar­andi plast­lausar lausnir.

Aðgerð 6: Þátttaka í Grænum skrefum í rík­is­rekstri gerð almenn.

Aðgerð 7: Neyt­endum auð­veldað að fá afgreidd mat­væli í eigin umbúðir.

Aðgerð 8: Ábyrg notkun plasts í atvinnu­líf­inu.

Aukin endurvinnsla plasts

Aðgerð 9: Inn­leið­ing skyldu til sam­ræmdrar flokk­unar úrgangs.

Aðgerð 10: Athugun á mögu­leikum til álagn­ingar úrvinnslu­gjalds á fleiri plast­vörur.

Aðgerð 11: Grænar lausnir fyrir atvinnu­lífið - mið­læg upp­lýs­inga­gjöf.

Aðgerð 12: Græn nýsköpun.

Plast í hafi

Aðgerð 13: Sam­ræmdar rann­sóknir á plast­mengun í hafi.

Aðgerð 14: Bætt skólp­hreinsun.

Aðgerð 15: Dregið úr losun örplasts með ofan­vatni.

Aðgerð 16: Tak­mark­anir á mark­aðs­setn­ingu snyrti­vara sem inni­halda örplast.

Aðgerð 17: Hreinsun íslenskra stranda.

Aðgerð 18: Meiri end­ur­heimt tap­aðra veið­ar­færa.

Pólý.... hvað?

Plast er í raun sam­heiti yfir mörg efna­sam­bönd. Þessi efna­sam­bönd eiga það sam­eig­in­legt að vera svo­kall­aðar fjölliður og þau eru jafnan létt en sterk­byggð og brotna ekki niður í umhverf­inu nema á mjög löngum tíma. Að lík­indum tekur það fleiri hund­ruð ár fyrir plast að brotna að fullu niður, sem líf­nið­ur­brjót­an­leg efna­sam­bönd gera á fáeinum dögum eða vikum, segir í aðgerða­á­ætl­un­inni.

Algeng­ustu plast­fjöllið­urnar sem not­aðar eru í vörur til almennra nota eru pólý­etý­len (PE), pólýprópý­len (PP), pólý­vínyl­klóríð (PVC), pólý­etý­lenter­eþalat (PET), pólýkar­bónat (PC), pólý­metýl­metakrýlat (PMMA), akrýlónítríl­bútadíen­stýren (ABS) og pólý­stýren(PS).

Við sem kaupum vörur eigum því í erf­ið­leikum með að átta okkur á hverjar þeirra inni­halda plast. Og plast leyn­ist í fleiri vörum en þeim aug­ljósu, t.d. í snyrti­vörum margs­konar.

Um 40 pró­sent af fram­leiddu plasti í heim­inum eru notuð í umbúðir, 20 pró­sent í bygg­ingar, 10 pró­sent í öku­tæki, 6 pró­sent í raf­tæki og 24 pró­sent í annað, s.s. fatnað, hús­gögn, lækn­inga­tæki og vörur til notk­unar í land­bún­aði.

„Plast sem endar í umhverf­inu veldur umhverf­isvá,“ segir í aðgerða­á­ætl­un­inni og á það ekki síst við um vist­kerfi hafs­ins. Sjáv­ar­dýr fest­ast í plast­úr­gangi og hljóta af því sár eða deyja. Fuglar og önnur dýr taka plast­úr­gang fyrir fæðu og deyja úr vannær­ingu. Efna­sam­böndum sem geta verið skað­leg líf­ríki er gjarnan blandað í plast við fram­leiðslu, til að ná fram til­teknum eig­in­leikum, og í plasti eru jafn­framt leifar af hvar­fefnum sem notuð voru við fram­leiðsl­una. Þessi efna­sam­bönd geta losnað úr plast­inu og ber­ist þau í umhverfið geta þau haft skað­leg áhrif. Þau eru oft það sem kallað er þrá­virk og þau safn­ast því fyrir í líf­verum.

Skaðleg efni

Plast hefur enn fremur þann eig­in­leika að við það vilja loða ýmis efna­sam­bönd og örverur sem það kemst í snert­ingu við á ferða­lagi sínu á leið til sjávar. Sjálft plastið og óæski­leg efna­sam­bönd og örverur sem fylgja því geta því verið skað­leg líf­verum sem inn­byrða plastið og m.a. haft áhrif á inn­kirtla­starf­semi. Örplast sem líf­verur inn­byrða safn­ast jafn­framt fyrir í þeim og fær­ist upp fæðu­keðj­una. Á síð­ustu árum hafa fjöl­margar rann­sóknir leitt í ljós að örplast er að finna í drykkj­ar­vatni um allan heim. Hvort tveggja í drykkj­ar­vatni af krana og í því sem tappað hefur verið á flöskur. „Þótt enn sem komið er hafi ekki komið fram aug­ljósar vís­bend­ingar um að örplast í drykkj­ar­vatni hafi áhrif á heilsu fólks þá er samt sem áður knýj­andi þörf á að grípa til aðgerða til að draga úr streymi plasts út í umhverfið og draga úr plast­mengun,“ stendur í aðgerða­á­ætl­un­inni.

Þótt plast henti í sumum til­fellum vel sem hrá­efni í ýmsar vörur þá er mikið af þeim vörum sem fram­leiddar eru úr plasti gerðar til að vera í notkun ein­ungis stutta stund. Jafnvel ein­ungis til notk­unar einu sinni. Í aðgerða­á­ætl­un­inni er bent á að það sé í engu sam­ræmi við hversu sterkt og end­ing­ar­gott plast jafnan er. Í flestum til­fellum séu til margnota stað­göngu­vörur eða einnota vörur úr öðrum efni­viði sem hafa minni umhverf­is­á­hrif en einnota plast­vörur. „Notkun á einnota plast­vörum er því oft óþörf og teng­ist venjum sem hafa skap­ast á síð­ustu árum og ára­tugum, fremur en nauð­syn.“

Aðgerð­unum átján sem settar eru fram í áætl­un­inni sem nú hefur litið dags­ins ljós, er ætlað að hafa áhrif á hegðun fólks í þeim til­gangi að draga úr notkun plasts meðal almenn­ings, atvinnu­lífs og opin­berra stofn­ana, m.a. með því að stuðla að frek­ari notkun fjöl­nota vara í stað einnota plast­vara. Aðgerð­irnar eiga jafn­framt að stuðla að auk­inni flokkun plast­úr­gangs og er ætl­unin að nýta hag­ræna hvata til að auka end­ur­vinnslu úrgangs­ins. Síðast en ekki síst er aðgerð­unum ætlað að varpa ljósi á hversu mikil plast­mengun er í haf­inu við Ísland, stuðla að hreinsun stranda og að draga veru­lega úr losun plasts út í umhverfið, þ.m.t. í hafið.

Aðgerða­á­ætl­un­inni er ætlað að vera áfangi í bar­átt­unni gegn þeirri vá sem plast í umhverf­inu er. „Um er að ræða umfangs­mikið verk­efni sem er rétt að hefj­ast og er mik­il­vægt að stjórn­völd leggi áherslu á það næstu ára­tugi,“ segir í skýrsl­unni.

Til að fylgja eftir fram­kvæmd áætl­un­ar­innar mun umhverfis– og auð­linda­ráð­herra skipa stýri­hóp full­trúa ríkis, sveit­ar­fé­laga, atvinnu­lífs og mögu­lega fleiri aðila. Hlutverk stýri­hóps­ins verður m.a. að fylgja því eftir að fram­kvæmd aðgerða miði áfram og að vera vett­vangur umræðu um aðgerð­irnar, plast­mál­efni og mögu­legar frek­ari aðgerðir gegn plast­mengun sem fýsi­legt væri að grípa til í nán­ustu fram­tíð. Stýri­hóp­ur­inn getur þannig lagt til við ráð­herra að áætl­unin eða ein­stakar aðgerðir hennar verði end­ur­skoð­aðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

plastmengun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár