„Ennþá svolítið hugsi þrátt fyrir álit Persónuverndar“

For­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar er efins um að birta eigi lista yfir þau fyr­ir­tæki sem hafa nýtt sér hluta­bóta­leið­ina – sér­stak­lega í sam­bandi við smáu fyr­ir­tækin. Listinn verður birtur í næstu viku.

Unnur Sverrisdóttir
Unnur Sverr­is­dóttir Mynd: Lögreglan

Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, sagði á dag­legum blaða­manna­fundi almanna­varna í dag að listi yfir þau fyr­ir­tæki sem nýtt hafa sér hluta­bóta­leið stjórn­valda yrði birtur. Listinn væri þó ekki enn til­bú­inn.

„Þetta tölvu­kerfi var ekki hannað til þess að taka út lista yfir fyr­ir­tækin eða greið­endur. Það þarf heil­mikla handa­vinnu til. Þessu tölvu­kerfi var „riggað upp“ á met­tíma, fyrst og fremst til þess að taka við umsóknum frá ein­stak­lingum og greiða þeim. [...] Fyr­ir­tækin voru í raun í auka­hlut­verki,“ sagði hún.

Hún sagði að í þessum töl­uðu orðum væri verið að skoða með hvaða hætti Vinnu­mála­stofnun næði þessum upp­lýs­ingum úr kerf­inu þannig að hægt væri að setja þær í birt­ing­ar­hæfan bún­ing.

[links]Unnur lýsti sinni per­sónu­legu skoðun á mál­inu á fund­inum í dag. „Ég er ennþá svo­lítið hugsi þrátt fyrir álit Per­sónu­verndar – og hef stuðn­ing per­sónu­vernd­ar­full­trúa stofn­un­ar­innar í því – hvort að það sé rétt að birta lista yfir fyr­ir­tæki, til dæmis með fimm starfs­menn eða færri. Og þá er ég nátt­úru­lega að hugsa um það traust sem ég tel að þurfi að ríkja á milli okkar og skjól­stæð­inga okkar.“

Hún sagði að það hefði verið heil­agt hjá Vinnu­mála­stofnun að það myndi aldrei fara út fyrir veggi stofn­un­ar­innar hverjir væru að leita til þeirra.

Unnar nefndi einnig frum­varp sem kynnt var á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun þar sem sett yrði í lög leyfi til að birta þessar upp­lýs­ingar. Henni finnst að bíða ætti eftir þeim lögum.

„En það verður að minnsta kosti – svo því sé til haga haldið – ekk­ert að frétta af þessu um þessa helgi og varla fyrr en ein­hvern tím­ann um miðja næstu viku. Við þurfum aðeins að skoða þetta og hafa sann­fær­ingu fyrir því að list­inn sé réttur og að hann sé birtur með þeim hætti sem við sættum okkur við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár