Fáheyrðar hagnaðartölur hjá Síldarvinnslunni

Síld­ar­vinnslan í Nes­kaup­stað hefur átt fáheyrðri vel­gengni að fagna í rekstri á liðnum árum, og sést það glögg­lega á rekstr­ar­tölum félags­ins úr árs­reikn­ingum. Sam­an­lagður hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins, eftir skatta, á árunum 2010 til og með 2015 nemur 33,1 millj­arði króna. Þá juk­ust eignir sam­stæðu félags­ins á fyrr­nefndu tíma­bili úr 27 millj­örðum árið 2010 í 54,4 millj­arða í lok árs í fyrra.

Helstu eig­endur Síld­­ar­vinnsl­unnar eru Sam­herji (45% hlut­­ur), Gjögur (34%) og SÚN í Nes­­kaup­­stað (11%).

Hagnaður Síld­ar­vinnsl­unnar, eftir rekstr­ar­árum, hefur verið eft­ir­far­andi:

  • 2010: 3,5 millj­arðar
  • 2011: 4,8 millj­arðar
  • 2012: 7 millj­arðar
  • 2013: 5,6 millj­arðar
  • 2014: 6 millj­arðar
  • 2015: 6,2 millj­arðar

Mak­ríl­veiði og vinnsla hefur verið mik­il­vægur hluti af rekstr­inum á und­an­förnum árum, og má segja að mikil ganga hans inn í íslenska lög­sögu hafi verið mik­ill happa­fengur fyrir fyr­ir­tækið.

Hjá sam­stæðu Síld­ar­vinnsl­unnar störf­uðu 334 til sjós og lands um síð­ustu ára­mót. Launa­greiðslur félags­ins voru rúmar 4,1 millj­örðum króna á árinu 2015 en af þeim greiddu starfs­menn 1.370 millj­ónir í skatta, segir á vef Síld­ar­vinnsl­unnar.

Heild­ar­eignir sam­stæð­unnar í árs­lok 2015 voru bók­færðar á 54,4 millj­arða króna, eins og áður segir. Veltu­fjár­munir voru bók­færðir á 9,1 millj­arða króna og skuldir og skuld­bind­ingar sam­stæð­unnar námu 20,7 millj­örðum króna. Eigið fé sam­stæð­unnar í árs­lok var 33,7 millj­arðar króna. Í árs­lok var eig­in­fjár­hlut­fall sam­stæð­unnar 62 pró­sent.

Á haust­dögum 2014 var til­kynnt um kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu Gull­bergi ehf. á Seyð­is­firð­i. Jafn­framt keypti Síld­ar­vinnslan, sem er með höf­uð­stöðvar og rætur í Nes­kaups­stað, hús­næði og búnað fisk­vinnsl­unnar Brim­bergs sem var í eigu sömu aðila. Með þessum kaupum festi Síld­ar­vinnslan sig í sessi sem risi í íslenskum sjáv­ar­út­vegi.

Afla­heim­ildir hafa safn­ast saman á nokkrum stöðum þar sem öfl­ug­ustu fyr­ir­tækin eru (dæmi nefnd í sviga). Nú eru stærstu útgerð­ar­stað­irnar Vest­manna­eyjar (Ís­fé­lag Vest­manna­eyja og Vinnslu­stöð­in), Nes­kaup­staður (Síld­ar­vinnslan) , Akur­eyri (Sam­herj­i), Sauð­ár­krókur (FISK Seafood), Horna­fjörður (Skinn­ey-­Þinga­nes), Grinda­vík (Þor­björn og Vís­ir) og Reykja­vík (Brim og HB Grand­i). Starf­semi fyr­ir­tækja á þessum stöðum teygir sig hins vegar víða um land­ið.

Síðustu stóru við­skipti í sjáv­ar­út­vegi hér á landi, voru í síð­ustu viku þegar Brim keypti Ögurvík hf. Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri og stærsti eig­andi Brims, sagði við það til­efni við Kjarnann að kaupin styrktu útgerð hans og að stærð­ar­hag­kvæmni náist fram. „Brim gerir út ­þrjá frysti­tog­ara frá Reykja­vík og með­ ­kaup­unum á Vigra styrk­ist rekstur félags­ins. Það hefur sýnt sig að með stærri ein­ingum verða íslensk sjáv­arútvegs­fyr­ir­tæki öfl­ugri. Það á ekki síst við á erlendum mörk­uðum þar sem íslenskur sjáv­ar­út­vegur á í harðri ­sam­keppni um sölu afurð­anna. Það má ekki gleym­ast að þar ræðst afkoma okkar að stórum hluta,“ sagði Guð­mund­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár