Brim hf. kaupir Ögurvík - „Smellpassar við okkar rekstur“

Eigendur Ögur­víkur hf. og Brim hf. hafa gert sam­komu­lag um að Brim hf. kaupi allt hlutafé í Ögurvík hf. Þetta stað­festi Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri og aðal­eig­andi Brims, í sam­tali við Kjarnann. „Þetta smellpassar við rekst­ur­inn hjá okkur. Þetta er gam­al­gróið og öfl­ugt fyr­ir­tæki, og við styrkjum okkar mark­aðs­sókn erlendis með þessum kaupum,“ sagði Guð­mundur.

Ögurvík hf. á og gerir frysti­togar­ann Vigra RE-71 út frá Reykja­vík. Þá hefur Ögurvík hf., rekið sölu­skrif­stofu fyrir sjáv­ar­af­urðir og vél­smiðju sem m.a. fram­leiðir tog­hlera.

Á Vigra RE-71 eru tvær áhafnir, sem skipta með sér veiði­ferðum, alls 54 manns. Afla­heim­ildir skips­ins á þessu fisk­veiði­ári eru um 10.000 tonn upp úr sjó.

Brim hf. á og gerir út þrjá frysti­tog­ara frá Reykja­vík, Guðmund í Nesi RE-13, Brimnes RE-27 og Kleifa­berg RE-70. Afla­heim­ildir skip­anna nema um 24.000 tonnum upp úr sjó. Hjá fyr­ir­tæk­inu vinna um 150 manns til sjós og lands.

Brim hf. hyggst gera Vigra RE-71 áfram út frá Reykja­vík. Hjörtur Gíslason fram­kvæmda­stjóri Ögur­víkur hf. segir við­skiptin vera fagn­að­ar­efni. „Það er okkur eig­endum Ögur­víkur hf. mikið fagn­að­ar­efni að nú þegar við hyggj­umst róa á önnur mið þá skuli öflug útgerð í Reykja­vík taka við Vigra. Það er okkur mik­ils virði að sem minnst röskun verði á högum sjó­mann­anna en margir þeirra hafa unnið hjá fyr­ir­tæk­inu í ára­tugi,“ segir Hjörtur.

Guð­mundur segir útgerð­ina styrkj­ast, og stærð­ar­hag­kvæmni nást fram. „Brim gerir út þrjá frysti­tog­ara frá Reykja­vík og með kaup­unum á Vigra styrk­ist rekstur félags­ins. Það hefur sýnt sig að með stærri ein­ingum verða íslensk sjáv­arútvegs­fyr­ir­tæki öfl­ugri. Það á ekki síst við á erlendum mörk­uðum þar sem íslenskur sjáv­ar­út­vegur á í harðri sam­keppni um sölu afurð­anna. Það má ekki gleym­ast að þar ræðst afkoma okkar að stórum hluta,“ segir Guð­mundur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár