Endurskoðun siðareglna staðið yfir síðan á síðasta ári – engin siðanefnd nú starfandi

Á starfs­tíma siða­nefndar RÚV hafa henni borist tvær kvart­anir, árin 2017 og 2019. Báðum kvört­unum var vísað frá nefnd­inni.

Stefán Eiríksson
Stefán Eiríks­son Mynd: Samsett mynd

End­ur­skoðun siða­reglna RÚV hefur staðið yfir síðan á síð­asta ári og hefur því ekki verið end­ur­skipað í siða­nefnd sem síð­ast var skipuð haustið 2016 til þriggja ára. Þetta kemur fram í svari Stefáns Eiríks­sonar útvarps­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Kjarninn greindi frá því í morgun að lög­maður Sam­herja hefði lagt fram kæru fyrir siða­nefnd Rík­is­út­varps­ins á hendur ell­efu nafn­greindum frétta- og dag­skrár­gerð­ar­mönnum vegna „þátt­töku þeirra í þjóð­fé­lags­um­ræðu um mál­efni Sam­herja á sam­fé­lags­miðl­u­m“.

Frétta- og dag­skrár­gerð­ar­menn­irn­ir ­sem um ræðir eru þau Aðal­steinn Kjart­ans­son, Freyr Gígja Gunn­ars­son, Helgi Selj­an, Lára Ómars­dótt­ir, Rakel Þor­bergs­dótt­ir, Sig­mar Guð­munds­son, Snærós Sindra­dótt­ir, Stígur Helga­son, Sunna Val­gerð­ar­dótt­ir, Þóra Arn­órs­dóttir og Tryggvi Aðal­björns­son.

Tvær kvartanir borist sem vísað var frá

Á starfs­tíma siða­nefnd­ar­innar hafa henni borist tvær kvart­anir, árin 2017 og 2019. Báðum kvört­unum var vísað frá nefnd­inni, að því er fram kemur í svari útvarps­stjóra.

[links]„Í ljósi fram­kom­innar kæru til siða­nefndar hefur verið óskað eftir til­nefn­ingum í nefnd­ina og að þeim fengnum verður kæran send nefnd­inni til með­ferðar,“ segir enn fremur í svar­inu.

Þá kemur fram að siða­nefnd RÚV hafi verið skipuð haustið 2016 til þriggja ára í sam­ræmi við siða­reglur RÚV. Gunnar Ingi Jóhanns­son var þá skip­aður for­maður nefnd­ar­innar. Aðrir nefnd­ar­menn voru Guð­mundur Heiðar Frí­manns­son, aðal­maður fyrir hönd Sið­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands og Grétar J. Guð­munds­son til vara og Sigríður Árna­dóttir, aðal­maður fyrir hönd Starfs­manna­sam­staka RÚV og G. Pétur Matth­í­as­son til vara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár