Samherji kærir ellefu frétta- og dagskrárgerðarmenn til siðanefndar RÚV

Lögmaður Samherja hefur lagt fram kæru fyrir siða­nefnd Rík­is­út­varps­ins á hendur ell­efu nafn­greindum frétta- og dag­skrár­gerð­ar­mönnum vegna „þátt­töku þeirra í þjóð­fé­lags­um­ræðu um mál­efni Samherja á sam­fé­lags­miðlum“.

Lögmaður Samherja hefur lagt fram kæru fyrir siða­nefnd Rík­is­út­varps­ins á hendur ell­efu nafn­greindum frétta- og dag­skrár­gerð­ar­mönnum vegna þátt­töku þeirra í þjóð­fé­lags­um­ræðu um mál­efni Samherja á sam­fé­lags­miðlum. Þetta kemur fram á vef­síðu Samherja í dag.

Kæran til siða­nefndar byggir á reglu í siða­reglum Rík­is­út­varps­ins sem er svohljóð­andi: „Starfs­fólk, sem sinnir umfjöllun um fréttir, frétta­tengt efni og dag­skrár­gerð tekur ekki opin­ber­lega afstöðu í umræðu um póli­tísk mál­efni eða umdeild mál í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni, þ. á m. á sam­fé­lags­miðlum.“

Frétta- og dag­skrár­gerð­ar­menn­irnir sem um ræðir eru þau Aðal­steinn Kjart­ans­son, Freyr Gígja Gunn­ars­son, Helgi Seljan, Lára Ómars­dóttir, Rakel Þor­bergs­dóttir, Sigmar Guð­munds­son, Snærós Sindra­dóttir, Stígur Helgason, Sunna Val­gerð­ar­dóttir, Þóra Arn­órs­dóttir og Tryggvi Aðal­björns­son.

Fram kemur á vef Samherja að öll þau til­vik sem fjallað er um í kærunni varði starfs­menn Rík­is­út­varps­ins sem sinni umfjöllun um fréttir, frétta­tengd efni og dag­skrár­gerð. Í færslum þeim, sem starfs­menn­irnir birtu á sam­fé­lags­miðlum og fjallað er um í kærunni, hafi þeir tekið afstöðu í umræðu um mál­efni Samherja.

„Er þar einkum um að ræða mál vegna ásak­ana sem settar voru fram vegna starf­sem­innar í Namibíu og hið svo­kall­aða Seðla­banka­mál en einnig ýmis önnur mál sem tengj­ast Samherja með beinum og óbeinum hætti. Má þar nefna eign­ar­hald fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi og eign­ar­hald á hluta­bréfum í Eimskip.

Ljóst má vera að með ummælum sínum hafa umræddir starfs­menn Rík­is­út­varps­ins gerst brot­legir við siða­regl­urnar. Þá virð­ist sem um sé að ræða sam­an­tekin ráð þar sem margar þeirra færslna, sem fjallað er um í kærunni, voru birtar á sam­fé­lags­miðlum því sem næst sam­tímis. Gerir það brotin enn alvar­legri. Í kærunni er þess kraf­ist að horft verði sér­stak­lega til þess að sumir frétta­mann­anna brjóta siða­regl­urnar ítrekað,“ segir á vef Samherja.

Hægt er að sjá kæruna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár