Feta má ekki heita Feta

Evr­ópu­dóm­stóll­inn hefur sett ofan í við Dani og bannað að hvítur mjólkur­ostur, sem Danir fram­leiða í stórum stíl til útflutn­ings, verði fram­vegis kall­aður Feta. Einungis Grikkir og Kýp­verjar mega nota feta nafnið.

Aðeins má kalla ost feta innan Evrópu ef hann var framleiddur í Grikklandi.
Aðeins má kalla ost feta innan Evrópu ef hann var fram­leiddur í Grikk­landi. Mynd: EPA

Síð­stlið­inn fimmtu­dag (14.7.) kvað Evr­ópu­dóm­stóll­inn upp úrskurð í því sem kallað hefur verið „feta­málið“. Í stuttu máli sagt er dönskum fram­leið­endum bannað að nota orðið „feta“ um hvítan mjólkur­ost.

Feta­málið er ekki nýtt af nál­inni. Fyrir tæpum 30 árum lögðu Grikkir fram kvörtun til fram­kvæmda­stjórnar ESB. Þar var þess kraf­ist að orðið feta yrði skil­greint sem upp­runa­hug­tak, sem ein­ungis Grikkjum og Kýp­verjum yrði heim­ilt að nota. Fram­kvæmda­stjórnin tók undir kröfur Grikkja en Evr­ópu­dóm­stóll­inn sneri álit­inu við eftir kvörtun frá Dönum. Árið 2005 úrskurð­aði þessi sami dóm­stóll hins vegar að orðið feta mætti ein­ungis nota um hvítan mjólkur­ost sem fram­leiddur væri í Grikk­landi og á grísku land­svæði.

Salatostur innan ESB, annars feta

Danir brugð­ust við nið­ur­stöðu Evr­ópu­dóm­stóls­ins árið 2005 með því að breyta um nafn á þeim hvíta mjólkur­osti sem seldur var á heima­mark­aði og í löndum Evr­ópu­sam­bands­ins. Þar var hann kall­aður sal­atostur, eða hvítur ten­inga­ostur. Ætíð í glærum krukkum þannig að ekki gæti farið á milli mála hvert inni­haldið væri.

Danskir osta­gerð­ar­menn, stór­fyr­ir­tækið Arla lang fyr­ir­ferð­ar­mest, ákváðu hins vegar að úrskurður Evr­ópu­dóm­stóls­ins næði ein­ungis til landa innan ESB og evr­ópska efna­hags­svæð­is­ins. Þannig að ostur sem fluttur væri til landa utan ESB gæti áfram heitið feta. Arla flytur út geysi­mikið magn af mjólk­ur­vörum, þar á meðal umræddum osti. Mið­aust­ur­lönd eru lang stærsti kaup­andi hvíta osts­ins, sem fram til þessa hefur ein­fald­lega heitið feta á þeim slóðum.

Hvað er feta?

„Ekta“ feta ostur er grískur ostur, gerður úr sauða­mjólk (kindur eru líka sauðir) og stundum bland­aður geita­mjólk. Í dag er mjólkin sem notuð er ger­il­sneydd og hituð í allt að 30 gráðum og þá settur í hana osta­hleypir. Eftir um hálf­tíma er blandan „hlaupin“ eins og það er kallað og þá skorin í litla ten­inga, sneiðar eða stærri stykki. Ten­ing­arnir eru svo settir í fín­gerða grisju til að sía vökvann frá. Eftir þetta er ost­ur­inn lagður í salt­lög í allt að þrjá mán­uði, til að koma í veg fyrir að úr verði myglu­ostur, sem hefur allt annað bragð og útlit.

Danski ost­ur­inn, sem nú má ekki kalla feta, er fram­leiddur úr kúa­mjólk. Þá er sér­stöku próteini, lipase-enzym, blandað í ost­inn og hvítu lit­ar­efni,titandi­oxid, til að ná gula kúa­mjólk­ur­litnum úr ost­inum. Ostur sem fram­leiddur er með þessum hætti er sagður bragð­ast öðru­vísi en „ekta“ grískur feta.

Nýi dómurinn

Eins og áður var getið féll dómur í „feta­mál­inu“ sl. fimmtu­dag. Fram­kvæmda­stjórn ESB, með stuðn­ingi Grikk­lands og Kýpur, höfðu stefnt Danmörku fyrir Evr­ópu­dóm­stól­inn og kraf­ist þess að notkun orðs­ins feta yrði hætt, ekki bara innan landa ESB heldur hvar sem hvíti ost­ur­inn frá Danmörku (og reyndar líka Þýska­landi) er seldur. Samkvæmt dóms­nið­ur­stöð­unni ber Dönum, og öðrum fram­leið­endum þegar í stað, eða eins og fljótt og auðið er að hlíta dómnum. Engar refs­ingar, sektir eða slíkt, eru til­greindar í úrskurði dóm­stóls­ins. Ef ekki verður brugð­ist við og notkun feta nafns­ins hætt getur fram­kvæmda­stjórn ESB höfðað nýtt mál og kraf­ist refs­inga, í formi sekta.

Einskonar gæðastaðfesting

Til­gang­ur­inn með því að lög­festa feta heitið og tak­marka notkun þess við fram­leiðslu í Grikk­landi og á Kýpur er að hjálpa fram­leið­endum í við­kom­andi löndum að njóta ávaxt­anna af starfi sínu ef svo mætti að orði kom­ast. Hliðstæð dæmi um slíka tak­mörkun er hið franska Champagne og ítalska Parma­skinkan.

Grikkir hafa bent á, kröfum sínum til stuðn­ings, að feta ost­ur­inn sé alda­gam­all og sam­of­inn grískri sögu. Hans sé meðal ann­ars getið í Ódysseifs­kviðu sem talin er vera frá 8. öld fyrir Krist.

Dómurinn vonbrigði en hvað er til ráða?

Danskir osta­gerð­ar­menn segja nið­ur­stöðu Evr­ópu­dóm­stóls­ins von­brigði. Fram­kvæmda­stjóri sam­taka danskra mjólk­ur­vöru­fram­leið­enda sagð­ist í við­tali frétta­stof­una Ritzau von­ast til að þessi dómur yrði end­ur­skoð­aður, þótt það væri ekki lík­legt.

Eins og áður var nefnt eru Mið­aust­ur­lönd lang stærsti kaup­andi á hvíta danska ost­inum. Þar er nafnið feta mjög þekkt og nú velta danskir osta­fram­leið­endur fyrir sér hvað sé til ráða. Bann Evr­ópu­sam­bands­ins nær ekki til osts, sem fram­leiddur er, eða settur í umbúðir í löndum utan ESB. Hugs­an­legur mögu­leiki er því að flytja ost­inn frá Danmörku, án merki­miða, og setja miða, með feta nafn­inu, á krukk­urnar í við­kom­andi landi. Annar mögu­leiki er að flytja ost­inn frá Danmörku í stórum pakkn­ingum og setja á krukkur þegar komið er á „áfanga­stað“.

Þriðji mögu­leik­inn er að setja upp osta­gerð í ein­hverju Mið­aust­ur­land­anna og flytja þangað danska mjólk til osta­gerðar. Þessi mögu­leiki er þó tal­inn fremur ólík­legur að mati tals­manns osta­fram­leið­enda.

Þess má í lokin geta að fyrir tveimur árum hætti Mjólk­ur­sam­salan notkun orðs­ins feta á hvíta ost­inum, sem kall­aður var Dala Feta. Sú ákvörðun var tekin í kjöl­far bréfs frá fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins. Grískur þing­maður hafði þá vakið athygli á að á Íslandi væri seldur hvítur ostur, þar sem umrætt feta nafn kæmi við sögur. Mjólk­ur­sam­salan brást skjótt við og nú heitir ost­ur­inn Sal­atostur eða jafn­vel veislu­ostur. Sömu leið hefur fram­leið­and­inn Arna farið. Áður­nefndur grískur þing­maður mun líka hafa nefnt gríska jógúrt í bréfi sínu til fram­kvæmda­stjórnar ESB. Sú mjólk­ur­af­urð hefur þó ekki breytt um nafn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár