Fjórir hafa boðið sig fram til formanns Neytendasamtakanna

Breki Karlsson, Guð­mundur Hörður Guð­munds­son, Guðjón Sig­ur­bjarts­son og Jakob S. Jónsson hafa boðið sig fram til for­mennsku í Neyt­enda­sam­tök­unum. Fram­boðs­frestur er til 15. ágúst.

Frambjóðendur - Breki Karlsson, Guðmundur Hörður Guðmundsson, Guðjón Sigurbjartsson og Jakob S. Jónsson.
Fram­bjóð­endur - Breki Karlsson, Guð­mundur Hörður Guð­munds­son, Guðjón Sig­ur­bjarts­son og Jakob S. Jónsson. Mynd: Samsett mynd.

Fjórir ein­stak­lingar hafa nú ákveðið að bjóða sig fram til for­mennsku í Neyt­enda­sam­tök­unum, þeir Breki Karlsson for­stöðu­maður Stofn­unar um fjár­mála­læsi, Guð­mundur Hörður Guð­munds­son fyrr­ver­andi for­maður Land­verndar, Guðjón Sig­ur­bjarts­son við­skipta­fræð­ingur og Jakob S. Jónsson leið­sögu­maður og leik­stjóri. Fram­boðs­frestur er til 15. ágúst.

Nýr for­maður verður kjör­inn á þingi Neyt­enda­sam­tak­anna 27. októ­ber næst­kom­andi.

Stjórn NS aug­lýsti eftir fram­boðum til for­manns og stjórnar um miðjan júní síð­ast­lið­inn og verður kosn­ingin raf­ræn. Allir sem skrá sig á þingið hafa rétt til að taka þátt í kosn­ingu for­manns og stjórnar.

Stað­setn­ing þings­ins verður til­kynnt síðar en þingið verður jafn­framt raf­rænt til að auð­velda fólki þátt­töku m.a. þeirra sem búa utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, segir á vef­síðu sam­tak­anna. Samkvæmt lögum sam­tak­anna þurfa félags­menn að skrá sig á þingið eigi síðar en á hádegi þann 20. októ­ber. Þeir einir geta tekið þátt í þingi sam­tak­anna sem eru félags­menn og eru skuld­lausir við sam­tökin viku fyrir þingið. Greiðsla félags­gjalda er ekki mögu­leg á þing­inu.

Segir enn fremur á vef­síðu sam­tak­anna að skrán­ingar full­gildra félags­manna sé grunnur að kjör­skrá. „Rafrænar kosn­ingar til stjórnar verða fram­kvæmdar með notkun per­sónu­auð­kenna þar sem fólk notar ýmist raf­ræn skil­ríki eða Íslykil. Hvorki verður fylgst með mæt­ingu á þingið né verður þátt­tak­enda­listi birtur. Kjörskrá verður eytt að loknum kosn­ingum. Gert er ráð fyrir að kosn­ingar hefj­ist um hádegi þann 27. októ­ber og standi til hádegis dag­inn eftir. Þann 28. októ­ber mun kjör­nefnd til­kynna úrslit kosn­inga, ný stjórn tekur við og þingi slitið.“

Hægt er að skrá sig á þingið á vef­síðu sam­tak­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár