Samkomulag um helstu skilmála sameiningar Kviku og Virðingar undirritað

Stjórnir Kviku banka og Virð­ingar hafa und­ir­ritað sam­komu­lag um helstu skil­mála fyr­ir­hug­aðs sam­runa félag­anna með fyr­ir­vara um nið­ur­stöður áreið­an­leikakann­ana, sam­þykki hlut­hafa­funda og eft­ir­lits­að­ila. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar. Þar segir einnig að í byrjun næsta árs muni hefj­ast vinna við áreið­an­leikakann­anir og við­ræður um nán­ari útfærslu á sam­ein­ingu félag­anna. Nið­ur­stöður þeirrar vinnu verða lagðar fyrir hlut­hafa Kviku og Virð­ingar til end­an­legs sam­þykkis.

Stjórnir Virð­ingar hf. og Kviku banka und­ir­rit­uðu vilja­yf­ir­lýs­ingu um að und­ir­búa sam­runa félag­anna tveggja undir nafni Kviku í lok nóv­em­ber síð­ast­lið­ins. Í aðdrag­anda sam­ein­ingar verður eigið fé Kviku lækkað um 600 millj­ónir króna og lækk­unin greidd til hlut­hafa bank­ans. Hlut­hafar Kviku munu eftir sam­runa eiga 70 pró­sent hlut í sam­ein­uðu félagi og hlut­hafar Virð­ingar 30 pró­sent hlut. 

DV greindi frá því í októ­ber að Virð­ing væri að reyna að eign­ast stóran hlut í Kviku. Hannes Frí­­mann Hrólfs­­son, for­­stjóri Virð­ing­­ar, og Ármann Þor­­valds­­son, fram­­kvæmda­­stjóri fyr­ir­tækja­ráð­gjafar og einn hlut­hafa félags­­ins, hefðu vik­urnar á undan fundað með nokkrum af stærri hlut­höfum Kviku og lýst yfir áhuga á að kaupa hlut þeirra í bank­an­­um. Þá kom fram að það gæti skýrst á næstu vikum hvort af sam­run­anum yrði. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem félögin tvö reyna sam­runa. Um haustið 2014 áttu sér stað for­m­­legar við­ræður milli Virð­ingar og MP banka, sem síðar breytti nafni sínu í Kviku, um sam­ein­ingu sem runnu út í sand­­inn.

Í til­kynn­ing­unni vegna und­ir­rit­unar vilja­yf­ir­lýs­ingar um sam­runa sagði: „Með sam­ein­ingu Kviku og Virð­ingar yrði til öfl­ugt fjár­mála­fyr­ir­tæki sem væri leið­andi á fjár­fest­inga­banka­mark­aði. Sam­einað félag yrði einn stærsti aðili í eigna­stýr­ingu á Íslandi með um 220 millj­arða króna í stýr­ingu og fjölda sjóða í rekstri s.s. verð­bréfa­sjóði, fjár­fest­inga­sjóði, fram­taks­sjóði, fast­eigna­sjóði, veð­skulda­bréfa­sjóði og ýmsa fag­fjár­festa­sjóði. Auk þess myndi sam­einað félag ráða yfir öfl­ugum mark­aðsvið­skipt­um, fyr­ir­tækja­ráð­gjöf, sér­hæfðri lána­starf­semi og einka­banka­þjón­ustu.

Á næstu vikum verður unnið að sam­komu­lagi um helstu skil­mála fyrir sam­run­an­um, þ.m.t. um for­send­ur, gerð áreið­an­leikak­ann­ana, end­an­lega samn­ings­gerð og aðgerð­ar- og tíma­á­ætl­un. Ef sam­ein­ing félag­anna nær fram að ganga er stefnt að því að hún taki gildi um mitt næsta ár.“ Nú liggur sam­komu­lagið um helstu skil­mála sam­komu­lags­ins fyrir.

Bók­­fært eigið fé Kviku nam tæp­­lega 6,2 millj­­örðum króna í lok sept­­em­ber á þessu ári. Stærstu hlut­hafar bank­ans eru Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, félagið Varða Capi­tal ehf. ( í eigu Gríms A. Garð­ars­son­ar, Edward Schmidt og Jónasar H. Guð­munds­son­ar), félagið Sigla ehf. (í eigu Tómasar Krist­jáns­son­ar, Finns Reys Stef­áns­sonar og Stein­unnar Jóns­dótt­ur) og Títan B ehf. (fé­lags í eigu Skúla Mog­en­sen).

Virð­ing sam­ein­að­ist Auði Capi­­tal í byrjun árs 2014. Hlut­hafar Virð­ingar eru félag í eigu Krist­ínar Pét­­ur­s­dótt­­ur, Líf­eyr­is­­sjóður Versl­un­­ar­­manna, Sam­ein­aði líf­eyr­is­­sjóð­­ur­inn, félag í eigu Guð­­bjargar Eddu Egg­erts­dótt­­ur, Stafir líf­eyr­is­­sjóð­ir, félag í eigu Ármanns Þor­­valds­­sonar og með­­fjár­­­festa, félag í eigu Vil­hjálms Þor­­steins­­sonar og félag í eigu Krist­ína Jóhann­es­dóttur og Ásu Karenar Ásgeir­s­dótt­­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár