Mesta niðurrif í sögu Danmerkur

Á næstu árum verða minka­hús á meira en tólf hund­ruð dönskum minka­búum rifin. Kostn­að­ur­inn við nið­ur­rifið, sem tekur sex til sjö ár, nemur millj­örðum danskra króna. Bætur til minka­bænda nema marg­faldri þeirri upp­hæð.

Þann 4. nóv­em­ber árið 2020 boð­aði Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur til frétta­manna­fundar á Krist­jáns­borg. Full­trúar fjöl­miðla fjöl­menntu á fund­inn enda höfðu þeir kvöldið áður fengið veður af að búast mætti við miklum tíð­indum. Sem kom á dag­inn. For­sæt­is­ráð­herr­ann til­kynnti að allur minka­stofn, á öllum minka­búum lands­ins, skyldi felldur. Samtals um 17 millj­ónir dýra. Ráð­herr­ann sagði ástæð­una vera nýtt afbrigði kór­ónu­veirunnar, sem greinst hefði í minkum, og einnig fólki á Norður-Jótlandi. Veiran gæti myndað smit­keðjur, og hugs­an­lega borist til ann­arra landa. Engan tíma mætti missa, sagði ráð­herr­ann og „strax í dag“ þarf að hefj­ast handa við að fella minka­stofn­inn. Daginn áður hafði ráð­herr­ann fengið í hendur mat dönsku sótt­varn­ar­stofn­un­ar­innar (Statens Serum Institut) þar sem fram kom að „áfram­hald­andi minka­eldi meðan veiran geisar“ gæti ógnað heilsu lands­manna. 
5. nóv­em­ber, hélt Mette Frederik­sen annan frétta­manna­fund. Þar til­kynnti hún að Norður-Jótlandi yrði „skellt í lás“ eins og hún komst að orði. Ferðir til og frá Norður- Jótlandi yrðu bann­aðar nema brýna nauð­syn bæri til. Íþrótta­hús, bóka­söfn, veit­inga- og kaffi­hús yrðu lokuð, sam­komu­hald bannað. Skóla­hald yrði lagt af, nema fyrir nem­endur í yngri deildum.

Þungt högg

Minka­eldi á sér ára­tuga sögu í Danmörku og dönsk skinn haft á sér gæða­stimpil. Danir hafa verið mjög umsvifa­miklir í skinna­fram­leiðsl­unni og um ára­bil kom um það bil þriðj­ungur allra seldra minka­skinna í heim­inum frá Danmörku. Þegar for­sæt­is­ráð­herr­ann til­kynnti um lógun minka­stofns­ins voru tals­vert á annað þús­und bú í land­inu, lang flest á Norður- og Vestur Jótlandi.

[adspot]Rekstur minka­bús er ekki mann­frekur en um fjögur þús­und manns sam­tals unnu við búin, en við þessa tölu bæt­ast svo mörg störf sem tengj­ast búskapnum, fram­leiðsla fóð­urs, flutn­ingur, full­verkun skinna o.s.frv. Til­kynn­ing for­sæt­is­ráð­herra um að allur minka­stofn­inn skyldi sleg­inn af var því þungt högg, einkum fyrir bænd­urna.

Ákveðið í flýti og án lagaheimildar

Ákvörð­unin um aflífun danska minka­stofns­ins var tekin í miklum flýti, enda lá, að mati ráð­herra, mikið við. Að kvöldi 4. nóv­em­ber 2020, sama dag­inn og Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra fyr­ir­skip­aði aflífun minkanna, til­kynnti mat­væla­ráðu­neytið dóms­mála­ráðu­neyt­inu að ráðu­neytið og mat­væla­stofn­unin teldu að laga­heim­ild til að fyr­ir­skipa aflífun minka­stofns­ins væri ekki til staðar. Daginn eftir lýsti dóms­mála­ráðu­neytið sig sam­mála því áliti.

Lög sem heim­il­uðu förgun minka­stofns­ins voru sett í miklum flýti, eft­irá. Mogens Jensen mat­væla- og land­bún­að­ar­ráð­herra varð marg­saga í við­tölum varð­andi laga­heim­ild­ina og sagði að lokum af sér. Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra og Nick Hækkerup dóms­mála­ráð­herra sögðu síðar að orð for­sæt­is­ráð­herr­ans um aflífun minkanna hefðu verið til­mæli en ekki til­skipun. Stjórn­mála­skýrendur sögðu þetta yfir­klór. Mælt var fyrir frum­varp­inu um aflífun minka­stofns­ins 13. nóv­em­ber en það varð ekki að lögum fyrr en 21. des­em­ber 2020, löngu eftir að búið var að farga stofn­inum.

Hótað með bótamissi

Lög­reglan fékk fyr­ir­mæli um að til­kynna bændum sím­leiðis frá ákvörðun stjórn­valda um að dýr­unum skyldi lógað. Bændum var jafn­framt til­kynnt að ef þeir yrðu ekki sam­starfs­fúsir og færu sjálf­vilj­ugir að fyr­ir­skip­unum stjórn­valda gætu þeir átt á hættu að fá engar bætur fyrir bústofn­inn. Bændum var jafn­framt til­kynnt að nán­ari upp­lýs­ingar um alla til­högun varð­andi fram­kvæmd­ina kæmu von bráðar.

Að urða eða brenna

Ákveðið var að hræ minkanna, sem voru sam­tals rúm­lega 15 millj­ónir (ekki 17 eins og fyrst var talið) skyldu urðuð. Rökin voru þau að allt þyrfti að ger­ast með hraði og allt of langan tíma tæki að brenna öll hræin. Stórar gryfjur voru grafnar á svæðum sem talin voru örugg út frá meng­un­ar­sjón­ar­miðum og hræin urðuð þar. Ekki tókst það verk eins og til stóð.

[adspot]Gryfj­urnar reynd­ust allt of grunnar og vegna gas­mynd­unar í hræj­unum tók jarð­veg­ur­inn sem mokað var yfir gryfj­urnar að lyft­ast. Svo kom í ljós að brennslu­stöðvar í land­inu hefðu sem best getað brennt öll hræin sem voru á and­anum fjar­lægð úr gryfj­unum og brennd.
„Urð­unaræv­in­týrið“ eins og einn þing­maður komst að orði kost­aði stórfé.

Lofað bótum

Þegar ákveðið var að farga minka­stofn­inum, á einu bretti, var ljóst að tjón bænda yrði mikið. Þeim var lofað bótum og marg­ít­rekað að þeir myndu ekki bera skarðan hlut frá borði. „Við höfum heyrt slíkar yfir­lýs­ingar áður en orð og efndir fara ekki alltaf saman“ sagði for­maður sam­taka danskra minka­bænda. Nokkuð dróst að hefja útborgun bót­anna til bænda, en sam­kvæmt útreikn­ingum stjórn­valda nema greiðsl­urnar millj­örðum danskra króna. 20 millj­arðar króna (380 millj­arðar íslenskir) er upp­hæð sem nefnd hefur verið en hún er þó ekki end­an­leg. Gæti orðið hærri.

Stærsta niðurrifsverkefni í sögu Danmerkur tekur sex ár

Hvað á að gera við minka­húsin spurðu margir eftir að mink­arnir voru horfnir. Þessari spurn­ingu var ekki auðsvarað. Eftir að danska mann­virkja­stofn­unin hafði skoðað húsa­kost­inn á öllum minka­búum lands­ins var nið­ur­staða stofn­un­ar­innar að öll minka­hús í land­inu skuli rifin.
Danska mann­virkja­stofn­unin kynnti nið­ur­rifs­á­ætl­un­ina fyrir minka­bændum, og fjöl­miðlum, fyrir hálfum mán­uði. Ætlunin er að verkið hefj­ist í byrjun næsta árs og ljúki árið 2028. Þegar spurt var hvers vegna þetta tæki svona langan tíma var svarið að verkið væri umfangs­mikið. Um væri að ræða lang stærsta verk­efni af þessu tagi í sögu Dan­merkur. Til að útskýra nánar umfangið var nefnt að stærsta nið­ur­rifs­verk­efni í land­inu til þessa hefði verið nið­ur­rif 5 háhýsa (hvert um sig 16 hæðir) á Brøndby strönd­inni, nið­ur­rif minka­bú­anna sam­svar­aði 1214 húsum af sömu stærð.
Bændur þurfa að sækja um að húsin á landi þeirra verði rifin og þegar hafa borist 1246 slíkar umsóknir.
Mörg minka­hús­anna sem á næstu árum verða rifin eru gömul og þegar þau voru reist var asbest mikið notað. Asbestið þótti hent­ugt, það fún­aði ekki, ryðg­aði ekki og brann ekki. Auk þess fremur ódýrt miðað við mörg önnur bygg­inga­efni. En það hefur líka ókosti sem ekki var vitað um fyrr en í kringum 1970 og var þá bannað að nota það í íbúð­ar­hús­næði. Síðar kom svo algjört bann við notkun þess. Asbestryk er krabba­meins­vald­andi og fyr­ir­séð að nið­ur­rifi minka­hús­anna fylgi mikil ryk­myndun. Þess vegna þarf sér­stakan tækja­búnað þegar húsin verða rifin og meðal ann­ars af þeim sökum verður nið­ur­rifið tíma­frekt.
Eins og áður sagði á nið­ur­rif­inu að ljúka árið 2028. Miðað er við að rífa árlega hús á um það bil 240 búum. Sú áætlun er birt með fyr­ir­vara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár