Hættulegt heimsmet Íslendinga

Eignir íslenskra líf­eyr­is­sjóða á Íslandi nema um 115 pró­sentum af lands­fram­leiðslu. Áttu 43 pró­sent skráðra hluta­bréfa á Íslandi. Hætta á eigna­bólu segja sér­fræð­ingar. Stjórn­völd hafa ekk­ert gert til að bregð­ast við vand­anum.

Ekkert hefur verið gert
Ekkert hefur verið gert Íslensk stjórn­völd hafa ekk­ert gert til að bregð­ast við þeim vanda sem steðjar að líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu vegna gjald­þeyr­is­haft­anna en á hverju ári aukast inn­lendar eignir á kostnað erlendra eigna. Íslend­ingar eiga heims­met í inn­lendum eignum líf­eyr­is­sjóða. Mynd: AFP

Íslend­ingar eiga í dag heims­met í að minnsta kosti einu: Fjár­fest­ingum líf­eyr­is­sjóða á inn­an­lands­mark­aði. Þá er átt við fjár­fest­inga­eignir líf­eyr­is­sjóða á íslandi sem hlut­fall af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu. Íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerfið er það næst stærsta í heimi þegar litið er til eigna þess sem hlut­falls af þjóð­ar­fram­leiðslu, sam­kvæmt tölum frá OECD. 

Eign­irnar nema rúm­lega 140 pró­sentum af þjóð­ar­fram­leiðslu Íslands en þar af er um 115 pró­sent eign­anna á Íslandi. Einungis Holland er með stærra kerfi sem hlut­fall af þjóð­ar­fram­leiðslu eða rúm­lega 155 pró­sent en í því landi er um helm­ingur eign­anna erlendis. Ekkert annað líf­eyr­is­sjóða­kerfi er með 100 pró­sent eða meira af eignum sínum bundnar inn­an­lands. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár