46 sagt upp hjá Arion banka

46 manns var sagt upp í Arion banka í dag. Um hóp­upp­sögn er að ræða sem þarf að til­kynna til Vinnu­mála­stofn­unar sem slíka. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans dreif­ist fjöld­inn á margar deildir innan bank­ans. Um er að ræða fjöl­menn­ustu hóp­upp­sögn sem átt hefur sér stað á árinu 2016.

Alls hafa verið til­kynntar fimm hóp­upp­sagnir til Vinnu­mála­stofn­unar það sem af er ári. Síminn hefur tví­vegis til­kynnt slíka og sagt upp sam­tals 37 manns. Þá var 28 manns sem störf­uðu hjá fisk­vinnslu­fyr­ir­tæki sagt upp í febr­úar og 38 manns í sama geira sagt upp í mars. Í ágúst síð­ast­liðnum var síðan til­kynnt um að öllu starfs­fólki Plain Vanilla, 36 manns, hefði verið sagt upp störfum og að fyr­ir­tæk­inu yrði lokað.

Í til­kynn­ingu frá Arion banka segir að í hópi þeirra sem hafi verið til­kynnt um starfs­lok í dag hafi 27 starfað í höf­uð­stöðvum bank­ans en 19 í öðrum starfs­stöðvum. Alls munu um 840 manns starfa hjá bank­anum eftir upp­sagn­irnar. Vinnu­mála­stofnun hefur verið greint frá þeim.

Þar segir enn fremur: „Ýmislegt í umhverfi bank­ans kallar á breyt­ingar á starf­sem­inni. Veiga­mest er sú stað­reynd að fjár­mála­þjón­usta tekur umtals­verðum breyt­ingum um þessar mundir. Við­skipta­vinir kjósa í mun rík­ari mæli að nýta sér sjálfs­af­greiðslu­lausnir eins og banka­app, net­banka og hrað­banka í stað sam­svar­andi úti­búa­þjón­ustu. Notkun apps­ins og hrað­banka í úti­búum bank­ans hefur marg­fald­ast á und­an­förnum árum. Vegna þessa hefur spurn eftir afgreiðslu í úti­búum bank­ans dreg­ist saman um þriðj­ung á tveimur árum. Þessi þróun kallar á breyt­ingar og eru sam­hliða gerðar skipu­lags­breyt­ingar í úti­búum bank­ans, án þess þó að úti­búum fækki.

Breyt­ing­arnar nú eru liður í víð­tæk­ari aðgerðum til hag­ræð­ingar í rekstri bank­ans. Þrátt fyrir umfangs­miklar hag­ræð­ing­ar­að­gerðir und­an­farin ár og end­ur­skipu­lagn­ingu starf­sem­innar hefur fjöldi starfs­manna hald­ist nokkuð stöð­ugur vegna yfir­töku á öðrum fjár­mála­fyr­ir­tækjum og vegna auk­inna umsvifa. Fækkun starfs­fólks er þung­bært skref að stíga en nauð­syn­legt í ljósi breyttra áhersl­ana í starf­semi bank­ans og ytri aðstæðna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár