Mesta aukning atvinnuleysis á Norðurlöndunum

Atvinnu­leysi hefur auk­ist um þrefalt meira hér á landi en á hinum Norð­ur­lönd­unum á síð­ustu tveimur árs­fjórð­ungum, miðað við sama tíma­bil árið á undan, sam­kvæmt tölum úr vinnu­mark­aðs­könnun land­anna.

Hlutfall atvinnu­lausra hér á landi var rúmum þremur pró­sentu­stigum hærra síð­asta vetur heldur en á sama tíma fyrir ári síðan, sam­kvæmt vinnu­mark­aðs­könnun Hagstofu. Þetta er rúm­lega þrefalt meiri aukn­ing atvinnu­leysis en átt hefur sér stað í Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finn­landi.

Þetta kemur fram þegar vinnu­mark­aðs­tölur land­anna fimm eru bornar saman. Samkvæmt þeim var atvinnu­leys­is­hlut­fallið hér á landi 3,8 pró­sent á síð­asta árs­fjórð­ungi 2019, og var það svipað og í Noregi og í Danmörku.

Á sama tíma var atvinnu­leysið í Svíþjóð og Finn­landi þó tölu­vert hærra, eða í rúmum sex pró­sentum. Líkt og sjá má á mynd hér að neðan hefur atvinnu­leysið í Svíþjóð, Finn­landi, Danmörku og Noregi auk­ist síðan þá, þó mun minna en Ísland. Að með­al­tali var atvinnu­leysið á síð­asta árs­fjórð­ungi í fyrra og fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs í lönd­unum rúmu pró­sentu­stigi meira en það var á sama tíma árið á undan.

Á Íslandi hefur atvinnu­leysið hins vegar auk­ist um 3,6 pró­sent á sama tíma, en það var að með­al­tali 7,7 pró­sent á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins sam­kvæmt vinnu­mark­aðs­könnun Hagstofu. Þó er atvinnu­leysið ekki orðið jafn­hátt og í Svíþjóð, þar sem það mæld­ist 9,7 pró­sent á árs­fjórð­ungnum, eða í Finn­landi, þar sem það nam 8,3 pró­sentum.

Nokkur munur hefur verið á mæl­ingum Hagstofu og Vinnu­mála­stofn­unar á atvinnu­leysi frá því að yfir­stand­andi efna­hags­sam­dráttur hófst í fyrra. Samkvæmt grein­ingu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands er meg­in­skýr­ingin á þessum mun sú að upp­lýs­ingar um atvinnu­lausa eru bjag­aðar í vinnu­mark­aðs­könnun Hagstofu þar sem atvinnu­lausir svari síðar spurn­ingum hennar. Þar af leið­andi mætti áætla að atvinnu­leysi sam­kvæmt Hag­stof­unni sé van­metið.

Hins vegar bætir Hag­fræði­stofnun við að Hag­stofan beitir sömu aðferðum og aðrar hag­stofur erlendis og lík­legt sé að þær stríði einnig við svip­aðan vanda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár