Spáir náttúrulegu atvinnuleysi í lok árs

Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands spáir því að atvinnu­leysi verði undir fjórum pró­sentum í lok árs­ins í nýrri hag­spá sinni. Spáin er mun bjart­sýnni en sam­bæri­legar grein­ingar Hag­stof­unnar og Seðla­bank­ans.

Atvinnuleysi verður undir fjórum prósentum í lok ársins, gangi spár Hagfræðistofnunar eftir.
Atvinnu­leysi verður undir fjórum pró­sentum í lok árs­ins, gangi spár Hag­fræði­stofn­unar eftir. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Gera má ráð fyrir að atvinnu­leysi nái hámarki í vor, en lækki svo fljótt eftir því sem líður á árið. Á síð­ustu mán­uðum árs­ins má svo búast við því að svo­kallað nátt­úru­legt atvinnu­leysi verði á vinnu­mark­aðnum, þar sem innan við fjögur pró­sent hans verði án atvinnu. Þetta kemur fram í nýrri hag­spá Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands, sem birt­ist í morgun.

Spáin gerir ráð fyrir að landið opn­ist fyrir ferða­mönnum í ágúst og að upp­taktur verði í efna­hags­líf­inu á mán­uð­unum þar á eftir. Þá er búist við að verð­bólgan lækki hratt á næstu mán­uðum og verði ríf­lega 2,5 pró­sent á milli jan­ú­ar­mán­aða 2021 og 2022, en það er í takt við spár Hagstofu, Seðla­bank­ans og Íslands­banka.

Hins vegar er mik­ill munur á spá Hag­fræði­stofn­unar og ann­arra grein­ing­ar­að­ila þegar kemur að vinnu­mark­aðnum. Að mati stofn­un­ar­innar má gera ráð fyrir að atvinnu­leysi vaxi fram á vor og nái níu pró­sentum, en falli í sumar og haldi svo áfram að minnka í haust ef landið opnar í ágúst.

Samkvæmt Hag­fræði­stofnun liggur svo­kallað „nátt­úru­legt atvinnu­leysi“ hér á landi á bil­inu þrjú til fjögur pró­sent. Búist er við að þessu bili verði náð á síð­asta fjórð­ungi þessa árs og að það hald­ist nokkuð stöðugt á fyrstu mán­uðum næsta árs.

Að jafn­aði er búist við að atvinnu­leysi verði um 5,7 pró­sent í ár, en það var 5,5 pró­sent í fyrra sam­kvæmt vinnu­mark­aðs­könnun Hag­stof­unnar. Þessi spá er þó mun bjart­sýnni en hjá Hag­stof­unni, þar sem búist er við 6,8 pró­senta atvinnu­leysi og hjá Seðla­bank­anum, þar sem búist er við því að það muni ná 7,3 pró­sentum.

Líklegt vanmat hjá Hagstofu

Á síð­ustu mán­uðum hafa atvinnu­leysis­tölur Hagstofu verið langt undir skráðu atvinnu­leysi hjá Vinnu­mála­stofnun. Samkvæmt Hag­fræði­stofnun er meg­in­skýr­ingin á þessum mun sú að upp­lýs­ingar um atvinnu­lausa eru bjag­aðar í vinnu­mark­aðs­könnum Hagstofu þar sem atvinnu­lausir svari síður spurn­ingum hennar. Þar af leið­andi má áætla að Hag­stofan van­meti atvinnu­leysi að öllum lík­indum.

Hins vegar bætir Hag­fræði­stofnun við að Hag­stofan beitir sömu aðferðum og aðrar hag­stofur erlendis og lík­legt sé að þær stríði einnig við svip­aðan vanda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár