Bolfiskvinnsla verður haldið áfram á Akranesi

HB Grandi hefur selt bol­fisksvinnslu­hús sitt á Akranesi fyrir 340 millj­ónir króna. Vinna mun hefj­ast í hús­inu að nýju í byrjun næsta árs.

HB Grandi hf. hefur selt Ísfiski hf. bol­fisk­vinnslu­hús sitt að Bárugötu 8-10 á Akranesi. Söluverð húss­ins og hluta af vinnslu­línu er 340 millj­ónir króna. Ísfiskur mun hefja bol­fisk­vinnslu í hús­inu á Akranesi í byrjun næsta árs. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá HB Granda til Kaup­hallar Íslands.

HB Grandi til­kynnti það 11. maí síð­ast­lið­inn, á fundi með trún­að­ar­mönnum, að vinnsla á botn­fisk­vinnslu yrði aflögð á Akranesi. Botn­fisk­vinnslan yrði sam­einuð vinnslu félags­ins í Reykja­vík frá og með 1. sept­em­ber. Þetta leiddi til þess að 86 manns var sagt upp störfum. Í til­kynn­ingu vegna þess kom fram að sam­tímis yrði „starfs­fólki boðið að sækja um önnur störf hjá HB Granda og dótt­ur­fé­lögum í Reykja­vík og á Akra­nesi. Vonir standa til að hægt verði að bjóða öllu starfs­fólki sem þess óskar starf við hæfi.“

Þar sagði jafn­framt að starfs­fólk sem ekki fær vinnu við hæfi muni fá aðstoð við atvinnu­leit á vegum fyr­ir­tæks­is­ins. 

HB Grandi rekur einnig upp­sjáv­ar­vinnslu, fiski­mjöls­verk­smiðju og dótt­ur­fé­lögin Norð­an­fisk og Vignir G. Jóns­son á Akra­nesi. Félagið agði í vor að það myndi leggja kraft í að efla þessar rekstr­ar­ein­ingar og full­vinnslu sjáv­ar­af­urða á Akra­nesi.

Ekki kemur fram í til­kynn­ingu HB Granda hversu mörg störf verði til hjá Ísfiski þegar starf­semi hefst að nýju í bol­fisksvinnslu­hús­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár