Frambjóðandi segir börnum að þau ættu að vera styttra í skólanum: „Heimurinn er fullur af peningum“

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir er útnefnd sem tals­maður barna á Alþingi af hálfu Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hún segir börnum að mik­il­vægt sé að stytta tím­ann í skól­anum, því tím­inn sé tak­mark­aður og heim­ur­inn „fullur af fólki og pen­ingum“.

Leiðtogar flokksins
Leið­togar flokks­ins Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins, með Bjarna Bene­dikts­syni for­manni. Mynd: Pressphotos

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fram­bjóð­andi til Alþingis, hvetur börn til þess að vera styttra í skóla vegna þess að þau hafi lít­inn tíma og „heim­ur­inn er fullur af fólki og pen­ingum“.

Þetta eru skila­boð Áslaugar til barna í mynd­bandi á krakka­kosn­inga­vef krakk­aruv.is, þar sem fram­bjóð­endum fyrir Alþing­is­kosn­ingar 2016 býðst að kynna börnum stefnu sína. 

„Við eigum ekk­ert nógan tíma“

„Ég held að það sé nauð­syn­legt að stytta tím­ann sem við erum í skól­anum. Við erum búin að stytta hann um eitt ár og ég held að við megum stytta hann um fleiri ár. Af því að heim­ur­inn er fullur af fólki og pen­ingum og alls konar, en við eigum ekk­ert nógan tíma. Og það er bæði gaman að vera barn en það er líka gaman að vera full­orð­inn,“ segir Áslaug meðal ann­ars.

Stefna Sjálf­stæð­is­flokks­ins í mál­efnum barna er að auka áherslu á „gæða­mál og skil­virkni“ á grunn- og fram­halds­skóla­stigi og fjölga sjálf­stætt starf­andi skólum. „Markmið mennta­kerf­is­ins er að tryggja börnum okkar og ung­mennum bestu mögu­legu menntun til þess að und­ir­búa þau undir lífið. Það þarf að kenna þeim til verka, veita þeim fjöl­breyti­legan fróð­leik og kunn­áttu, og kveikja hjá þeim fróð­leiks­þorsta.“

Talsmaður barna á Alþingi

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn útnefnir Áslaugu Örnu sem „tals­mann barna“, sam­kvæmt svörum flokks­ins á kosn­inga­vef Krakk­arúv. „Það er t.d. styst síðan rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Áslaug Arna var barn svo að [það] væri t.d. góð hug­mynd,“ segir í svari flokks­ins við spurn­ingu um hvernig flokk­ur­inn ætl­aði að velja tals­mann barna á Alþingi. 

Vísar til ábyrgðar á börnumÁslaug Arna telur það til marks um rök­þrot gegn sölu áfengis í mat­vöru­versl­unum að vísa til hags­muna barna.  

Áslaug hefur áður tjáð sig um börn. Í umræðu um hvort leyfa ætti sölu áfengis í versl­unum gagn­rýndi hún þau við­horf að salan gæti valdið börnum tjóni, sagði þau vera rök­þrot og virt­ist vísa til þess að for­eldrar ættu að sjá um börn sín. „Hver er að hugsa um börnin? Já, ég spyr mig að því sama, getur eng­inn hugsað um þessi börn?“

Umboðs­maður barna skor­aði hins vegar á alþing­is­menn að hafna frum­varpi sem leyfa átti sölu áfengis í mat­vöru­versl­unum, þar sem það myndi skaða hags­muni barna, bæði vel­ferð þeirra og umönnun. 

„Umboðs­maður barna veltir fyrir sér hvaða hags­muna sé verið að gæta með ofan­greindu frum­varpi. Fjöl­margar rann­sóknir sýna að aukið aðgengi að áfengi auki neyslu í sam­fé­lag­inu, en slíkt hefur veru­legar nei­kvæðar afleið­ingar í för með sér fyrir börn, fjöl­skyldur þeirra og sam­fé­lagið allt. Fjöldinn allur af fag­að­ilum, bæði á sviði heil­brigð­is­vís­inda og félags­vís­inda, hafa stigið fram og varað við þeim skað­legu áhrifum sem ofan­greint frum­varp mun hafa í för með sér, ekki síst fyrir börn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár