Fjármálaráðherra Noregs segir að DNB þurfi að leggja öll spil á borðið

Siv Jensen, fjár­mála­ráð­herra Noregs segir að rann­saka þurfi í kjöl­inn það sem norskir fjöl­miðlar hafa kallað stærsta pen­inga­þvætt­is­hneyksli í sögu þjóð­ar­innar. Það snýst um við­skipti rík­is­bank­ans DNB við íslenska fyr­ir­tækið Samherja.

Siv Jensen, fjár­mála­ráð­herra Noregs, segir að það þurfi að rann­saka DNB-pen­inga­þvætt­is­málið, sem snýst um með­höndlun bank­ans á fjár­munum frá íslenska fyr­ir­tæk­inu Samherja, af fullri alvöru. DNB, sem er að stórum hluta í eigu norska rík­is­ins, þurfi að leggja öll spil á borðið. Þetta kemur fram á á vef norska við­skipta­fjöl­mið­ils­ins Dagens Nær­ingsliv, eins mest lesna fjöl­mið­ils í Noregi.

Ummælin féllu í sam­tali Jensen við Dagens Nær­ingsliv eftir að hún hafði flutt ræðu á ráð­stefnu um pen­inga­þvætti. Hún minnt­ist ekki á mál DNB og Samherja í ræð­unni, en norskir fjöl­miðlar segja að það geti verið stærsta pen­inga­þvætt­is­hneyksli í banka­sögu lands­ins.

Jensen sagði að það væri ekki hennar hlut­verk að ákveða hvort að norska efna­hags­brota­deildin, Økokrim, eða aðrir rann­sókna­að­ilar ættu að rann­saka málið. Hennar hlut­verk væri að setja reglur fyrir fjár­málaum­hverfið en þegar þær væru brotnar blasi við að það þyrfti að skýra hvað hefði átt sér stað. „DNB verður að hjálpa okkur að kom­ast til botns í þessu. Ég held að það séu hags­munir DNB líka. Þeir eru stór banki sem upp­haf­lega naut mik­ils trausts í norsku sam­fé­lagi.“

Frétta­skýr­ing­ar­þátt­ur­inn Kveikur og Stundin greindu í síð­ustu viku frá því að ­Sam­herji hefði kom­ist hjá því að greiða skatta í Namibíu af þeim hagn­aði sem skap­að­ist af mak­ríl­veiðum fyr­ir­tæk­is­ins þar, meðal ann­­ars með því að færa hagn­að­inn til landa þar sem skattar voru litlir eða engir, til dæmis á Kýp­­ur, með við­komu á eyj­unni Mári­­tí­us. Allir pen­ingar Sam­herja voru hins vegar sagðir enda í Nor­egi, inni á reikn­ingum í DNB.

Í umfjöllun Stund­ar­innar um málið sagði að DNB hefði látið loka ­banka­reikn­ingum félags­ins Cape Cod FS í skatta­skjól­inu Mars­hall-eyjum í fyrra. Sam­kvæmt Stund­inni fóru 9,1 millj­arður í gegn án þess að DNB vissi nokkurn tím­ann hver ætti fyr­ir­tæk­ið. Fjár­mun­irnir voru m.a. not­aðir til að greiða laun sjó­manna Samherja í Namibíu. Málið er nú til skoð­unar innan DNB.

Stundin greindi frá því í morgun að félag­inu Cape Cod FS hefði verið slitið í byrjun þessa mán­aðar. Það gerð­ist í kjöl­far þess að stjórn­endum Samherja var gert ljóst að umfjöllun um ætl­aðar mútu­greiðslur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu væri í far­vatn­inu.

Í umfjöllun Stund­ar­innar hefur komið fram að DNB hafi lokað banka­reikn­ingum Cape Cod FS í maí í fyrra, í kjöl­far þess að banda­rískur banki hafði neitað milli­færslu frá félag­inu. „Ástæðan var meðal ann­ars sú að bank­inn fékk ekki upp­lýs­ingar um end­an­legan eig­anda félags­ins frá því félagi sem sagður var eig­andi þess, JPC Ship Mana­gement auk þess sem bank­inn sagði í áhættu­mati að áfram­hald­andi við­skipti við félagið fælu í sér „of mikla áhættu“ þar sem bank­inn vissi ekki hver end­an­legur eig­andi félags­ins var. Bankinn sagð­ist því ekki hafa „neina vit­neskju“ um end­an­legan eig­anda félags­ins en full­yrti þó að félagið væri „ekki lengur undir Samherja.““

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár