Súkkulaðifjallið verður ekki lengur „Toblerone of Switzerland“

Tobler­one er án efa eitt þekktasta vöru­merki súkkulaði­heims­ins og jafn­framt helsta ein­kenn­is­tákn sviss­neskrar sæl­gæt­is­gerðar. Slag­orðið „Tobler­one of Switzerland“ hverfur brátt af umbúð­unum en mynd af fjall­inu Matt­er­horn og lögun góð­gæt­is­ins halda sér.

Árið 2008, þegar hundrað ár voru liðin frá því að Toblerone kom á markaðinn, voru mikil hátíðahöld í Sviss. En brátt mun áletrunin „of Switzerland“ hverfa af pakkningum súkkulaðistykkjanna heimsþekktu.
Árið 2008, þegar hund­rað ár voru liðin frá því að Tobler­one kom á mark­að­inn, voru mikil hátíða­höld í Sviss. En brátt mun áletr­unin „of Switzerland“ hverfa af pakkn­ingum súkkulaði­stykkj­anna heims­þekktu. Mynd: Pexels

Vand­fundin er sú mat­vöru-, flug­vallar- eða sæl­gæt­is­verslun, að minnsta kosti í hinum vest­ræna heimi, sem ekki hefur til sölu hið sviss­neska Tobler­one, jafn­vel allt frá ,,mini“ stykkjum (í poka) upp í 500 gramma stykki. Sama hver stærðin er, lög­unin er ætíð sú sama: þrí­hyrn­ingur sem minnir á mynd­ina sem prýðir umbúð­irnar, Matt­er­horn.

Daniel Peter, og mjólkursúkkulaðið

Á árunum fyrir alda­mótin 1900 naut mjólk­ursúkkulaði vax­andi vin­sælda, en það var þá til­tölu­lega nýleg upp­finn­ing þótt súkkulaði sem slíkt væri miklu eldra.

Sviss­lend­ing­ur­inn Daniel Peter, sem var fæddur 1836, hafði korn­ungur stofnað kerta­verk­smiðju en sneri sér brátt að súkkulaði­fram­leiðslu. Hann gerði ýmsar til­raunir með að blanda mjólk saman við súkkulaðið, til að breyta áferð­inni og ná fram hinu eft­ir­sótta sætu­bragði. Daniel tókst með þess­ari aðferð að búa til bragð­gott súkkulaði en eitt vanda­mál skaut upp koll­inum; súkkulaðið vildi mygla. Daniel Peter kenndi vatn­inu í mjólk­inni um og setti sig í sam­band við Henri Nestlé sem fram­leiddi barna­mat. Hann hafði frétt að Henri Nestlé hafði fundið upp aðferð til fram­leiða mjólk­ur­duft (þurr­mjólk) með sér­stakri suðu­að­ferð og ná vatn­inu úr mjólk­inni. Daniel Peter samdi við Henri Nestlé um kaup á mjólk­ur­dufti til að nota í súkkulaðið. Árið 1875, eftir ára­langar til­raunir setti Daniel Peter mjólk­ursúkkulaði á mark­að­inn en hélt áfram til­raunum sínum við að betrumbæta fram­leiðsl­una. Árið 1887 var til fyr­ir­tækið Gala Peter sem seldi úrvals mjólk­ursúkkulaði einsog það var kallað í aug­lýs­ingum. Þá höfðu þeir Daniel Peter og Henri Nestlé hafið form­lega sam­vinnu, sú sam­vinna var grunn­ur­inn að stór­fyr­ir­tæk­inu Nestlé, sem flestir þekkja.

Á þessum árum, kringum alda­mótin 1900, varð sviss­neskt mjólk­ursúkkulaði þekkt um víða ver­öld og varð fyr­ir­mynd fram­leið­enda í mörgum löndum.

Emil Baumann og Theodor Tobler

Árið 1907 var Sviss­lend­ing­ur­inn Emil Baumann (1880 – dán­arár óljóst) einu sinni sem oftar, að dunda sér við að búa til súkkulaði í eld­hús­inu heima hjá sér í Bern. Emil hafði veitt því athygli að súkkulaði naut vax­andi vin­sælda, ekki síst hið svo­kall­aða mjólk­ursúkkulaði. Þótt nokkrir stórir sæl­gæt­is­fram­leið­endur væru þegar til staðar í Sviss þótt­ist Emil viss um að pláss væri fyrir fleiri. En til þess að „slá í gegn“ þyrfti eitt­hvað sem væri öðru­vísi en það sem fyrir væri á mark­aðnum. Emil gerði ýmsar til­raunir og dag einn próf­aði hann að bæta í súkkulaðið hun­angi, möndlum og núg­gat. Emil þótti blandan góð en hann vissi að það væri ekki nóg, varan yrði að vekja athygli. Emil hafði sam­band við Theodor Tobler (1876-1941) frænda sinn, sem líka bjó í Bern og bað hann að koma og smakka á súkkulað­inu. Faðir Theodors, Johann Jacob Tobler, sem lést árið 1905 hafði verið sæl­gæt­is­gerð­ar­maður og Theodor vissi því heil­mikið um slíkar vörur. Honum þótti súkkulaði­blanda Emils góð en var sam­mála því að til þess að ný vara vekti athygli dygði gott bragð ekki, eitt og sér. Þeir frændur urðu sam­mála um að stofna fyr­ir­tæki og fram­leiða súkkulaði eftir upp­skrift­inni sem Emil hafði sett saman.

Var fyrirmyndin fjall eða ballettdansarar?

Theodor Tobler stakk upp á að þetta nýja súkkulaði yrði ekki selt í plötum, eins og lang algeng­ast var heldur yrði það, og umbúð­irnar, eins­konar þrí­hyrn­ingur. Í hverjum pakka yrðu sam­hang­andi þrí­hyrn­ingar, sem auð­velt væri að brjóta í sundur. Emil þótti þetta góð hug­mynd, hann bjó til formin til að „steypa“ súkkulaðið í og Theodor tók að sér að hanna umbúð­irnar, sem hafa nær ekk­ert breyst frá upp­hafi. Óhætt er að segja að hug­mynd Theodors hafi heppn­ast vel, Tobler­one er öðru­vísi en annað súkkulaði, sker sig úr.

[adspot]

Það er trú margra að fjallið Matt­er­horn á landa­mærum Sviss og Ítalíu sé fyr­ir­myndin að þrí­hyrn­ings­bit­unum. Á umbúð­unum er nefni­lega mynd af tind­inum og ef að er gáð sjást útlínur bjarnar sem hluti fjalls­ins. En ekki er öruggt að þetta sé til­fellið. Sonur Theodors sagði hins­vegar frá því í við­tali að hug­mynd­ina að þrí­hyrn­ingnum hefði faðir sinn fengið eftir að hann sá ball­ett­sýn­ingu í París. Í loka­at­riði sýn­ing­ar­innar mynd­aði dans­flokk­ur­inn píramída sem Theodor Tobler þótti ein­stak­lega glæsi­legur. Líklega fæst aldrei úr því skorið hvort þessar til­gátur eigi við rök að styðj­ast. Rétt er að geta þess að í upp­hafi var ekki mynd af Matt­er­horn á umbúð­unum, hún kom fyrst síðar. Og björn­inn sem sést í fjall­inu er kannski vísun í Bern, heimabæ Tobler­one, sem stundum er nefnd Bjarna­borgin. Björninn er sömu­leiðis að finna í skjald­ar­merki borg­ar­innar.

Nafnið Toblerone

Þríhyrnt eða flatar plötur, súkkulaði verður að heita eitt­hvað. Þeir félagar Emil og Theodor voru sam­mála um að nafnið á þrí­hyrn­ingssúkkulað­inu þyrfti að vera ein­falt og gríp­andi. Og eftir að hafa rætt fram og til baka um málið urðu þeir sam­mála um að súkkulaðið skyldi heita Tobler­one. Nafnið er sam­sett úr eft­ir­nafni Theodors og hluta ítalska orðs­ins tor­rone, sem er sér­stök gerð hun­angs. Tobler­one.

Árið 1909 fengu þeir frændur skráð einka­leyfi á notkun nafns­ins og sam­setn­ingu súkkulaðs­ins.

Margar stærðir og mismunandi gerðir, en alltaf þríhyrnt

Í upp­hafi var ein­ungis ein gerð af Tobler­one í boði, 100 gramma stykki og upp­skriftin sem Emil Baumann setti saman árið 1907. Síðar komu fleiri stærðir, enn síðar dökkt súkkulaði og einnig hvítt. Umbúð­irnar um þessi „til­brigði“ voru og eru í mis­mun­andi litum, en formið og letrið alltaf hið sama.

Þekkt um allan heim

Hafi þeir frænd­urnir Emil Baumann og Theodor gert sér vonir um að þrí­hyrn­ingssúkkulaðið myndi „slá í gegn“ hafa þær vonir sann­ar­lega ræst.

Skrifari þessa pistils sá sagt frá því í erlendum net­miðli að á síð­asta ári hefðu verið fram­leiddir sjö millj­arðar Tobler­one stanga, eins og það var orðað. Þar kom líka fram að Tobler­one væri selt í að minnsta kosti 120 löndum.

Árið 2008, þegar hund­rað ár voru liðin frá því að Tobler­one kom á mark­að­inn, voru mikil hátíða­höld í Sviss. Talið er að meira en hálf milljón íbúa lands­ins hafi tekið þátt í skemmt­unum og upp­á­komum af ýmsu tagi. Haldnar voru keppnir um bygg­ingu turna úr Tobler­one umbúðum og í flug­stöðvum lands­ins voru haldnar sýn­ingar um sögu þrí­hyrn­ingssúkkulaðs­ins. Þáver­andi borg­ar­stjóri í Bern, Alex­ander Cheppet, líkti í hátíð­ar­ræðu upp­finn­ing­unni Tobler­one við afstæð­is­kenn­ingu Albert Einstein. Og upp­skar kröft­ugt lófatak við­staddra.

Verður ekki lengur „Toblerone of Switzerland“

Sviss­lend­ingar eru hreyknir af landi sínu og standa vörð um allt sem sviss­neskt er. Ströngum lögum varð­andi höf­und­ar­rétt og allt sem hann varðar er fylgt eftir. Ekki er til dæmis leyfi­legt að merkja vörur, eða gefa til kynna að þær séu sviss­neskar nema þær séu að öllu leyti fram­leiddar þar í landi.

Og þetta leiðir til þess að nú eru breyt­ingar framundan varð­andi Tobler­one. Á pökk­unum sem nú eru í búðum stendur stórum stöfum Tobler­one og fyrir neðan, með minna letri, of Switzerland. Frá og með árs­byrjun 2023 kemur ný merk­ing á pakk­ana, Tobler­one heitið verður vita­skuld áfram en í stað of Switzerland, mun standa á pökk­unum að Tobler­one sé upp­runnið, eða frá, Schweiz. Hvernig þetta verður nákvæm­lega orðað hefur ekki verið gert opin­bert. Og ástæðan fyrir þess­ari breyt­ingu? Jú, núver­andi eig­andi Tobler­one, Mondelez (áður Kraft Foods) hefur ákveðið að reisa verk­smiðju í Slóvakíu. Tobler­one verður þó áfram fram­leitt í Bern en það breytir engu, þessi tvö orð, of Switzerland, mega ekki vera á pökk­unum eftir næstu ára­mót.

Í lokin má geta þess, þótt það sé eig­in­lega utan umfjöll­un­ar­efnis þessa pistils, að Tobler­one rataði eitt sinn nokkuð óvænt inn í sænsk stjórn­mál. Haustið 1995 greindi sænska dag­blaðið Expressen frá því að Mona Sahlin hefði til eigin inn­kaupa notað greiðslu­kort, sem ein­göngu skyldi notað vegna starfs­ins, en ekki einka­notk­unar. Mona Sahlin var á þessum tíma stað­geng­ill, og tal­inn lík­legur arf­taki Ingvars Carlsons for­sæt­is­ráð­herra. Upphæðin sem um var að ræða var rúm­lega 50 þús­und sænskar krónur sem jafn­gildir í dag 665 þús­und íslenskum krónum. Mona Sahlin dró sig tíma­bundið út úr stjórn­málum en sneri eftir að sak­sókn­ari úrskurð­aði að notkun greiðslu­korts­ins gæti ekki talist lög­brot. Mona Sahlin end­ur­greiddi upp­hæð­ina alla og sekt að auk. Meðal þess sem Mona Sahlin hafði keypt og borgað með umræddu korti var Tobler­one súkkulaði. Svíar köll­uðu, og kalla þetta enn, Tobler­one málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár