ESB borgar mun meira fyrir fiskveiðar heldur en íslenskar útgerðir

ESB mun greiða græn­lenska rík­inu tæpa þrjá millj­arða króna á ári fyrir fisk­veiðar í græn­lenskri lög­sögu. Ef miðað er við hvert veitt kíló er verðið lík­lega fjór­falt meira en það sem íslenska ríkið fær frá útgerð­unum í gegnum veiði­gjöld og tekju­skatt.

ESB keypti grænlenskan kvóta á háu verði.
ESB keypti græn­lenskan kvóta á háu verði. Mynd: Flickr

Samkvæmt nýjum fisk­veiði­samn­ingi á milli Græn­lands og Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) mun græn­lenska ríkið fá tæp­lega þrjá millj­arða króna frá ESB næstu tvö árin vegna veiða evr­ópskra skipa á Græn­lands­miðum. Greiðslur ESB nema tæpum 120 krónum á hvert kíló af fiski, sem er lík­lega fjórum sinnum hærra verð en íslensk fyr­ir­tæki greiða rík­inu í veiði­gjöld og tekju­skatt fyrir fisk­veiðar.

Greint var frá samn­ingnum á milli Græn­lands og ESB í frétta­til­kynn­ingu á heima­síðu græn­lensku rík­is­stjórn­ar­innar í síð­asta mán­uði, en sam­kvæmt henni munu greiðsl­urnar bæði inni­halda leyfi á afnot á veiði­heim­ildum og þró­un­ar­að­stoð til græn­lenska sjáv­ar­út­vegs­ins. Samn­ing­ur­inn gildir út næstu fjögur árin, en búist er við að Grænland fái um 141 milljón danskra króna fyrstu tvö árin, sem sam­svarar 2,95 millj­örðum íslenskra króna. Á tveimur síð­ustu árum samn­ings­ins er svo búist við að greiðsl­urnar hækki enn frekar.

119 krónur gegn 27

Greitt er fyrir veiði­heim­ildir á rúm­lega 32 þús­und tonnum af ell­efu teg­undum af fiski og rækjum. Ef verð­mæti hverrar teg­undar er reiknað eftir svoköll­uðum þorsk­sí­gild­is­stuðli fæst að græn­lenska ríkið fær um það bil 119 krónur á hvert kíló.

Þetta er tölu­vert hærra verð heldur en útgerðir greiða fyrir veiði­heim­ildir hér á landi með veiði­gjaldi, en miðað við úthlutun afla­heim­ilda í ár fær íslenska ríkið um það bil 14 krónur á hvert kíló í gegnum þau. Ef gert er ráð fyrir að útgerð­irnar greiði jafn­mikið í tekju­skatt vegna fisk­veiða og hún hefur gert að með­al­tali á síð­ustu átta árum mætti búast við að ríkið fái um 27 krónur á hvert veitt kíló af sjáv­ar­fangi frá þessum tveimur tekju­liðum.

Lengd og stærð samnings skiptir máli

Friðrik Þór Gunn­ars­son, hag­fræð­ingur hjá Samtökum fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), segir marga þætti geta útskýrt háa verðið sem ESB greiðir fyrir fisk­veiðar á Græn­lands­miðum.

Sem dæmi nefnir hann að ýmsar aðrar ástæður gætu legið að baki þessum greiðslum heldur en ein­göngu veiði­heim­ildir, en þró­un­ar­að­stoð er inni­falin í fisk­veiði­samn­ingnum. Einnig segir hann að magnið sem um ræðir er tak­markað og samn­ing­ur­inn til skamms tíma, en í slíkum aðstæðum sé ekki óal­gengt að veiði­rétt­indi á hvert kíló fari á mjög háum verðum sem nálg­ast end­an­legt sölu­verð. Heild­ar­kvót­inn á Græn­lands­miðum færi þó aldrei á jafn­háu verði, þar sem slíkt yrði of þungur biti fyrir fyr­ir­tækin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár