Sársaukafull hagræðing og milljarða arðgreiðslur

Bæj­ar­yf­ir­völd á Akranesi ótt­ast afleið­ingar þess ef starfs­fólki verður sagt upp í stórum hópum á Akranesi. Útlit er fyrir að svo verði vegna hag­ræð­ingar í botn­fisksvinnslu fyr­ir­tæk­is­ins.

HB Grandi til­kynnti um það í dag, að fyr­ir­tækið hygð­ist hætta botn­fisk­vinnslu á Akranesi og sam­eina hana vinnsl­unni í Reykja­vík. Samtals starfa 93 við botn­fisk­vinnslu á Akranesi og 270 í allt hjá fyr­ir­tæk­inu á Akranesi.

Á blaða­manna­fundi í dag sagði for­stjór­inn, Vil­hjálmur Vil­hjálms­son, óljóst hve mörgum verði sagt upp á Akranesi eða hvort ein­hver störf verði færð til Reykja­víkur. Bæj­ar­stjór­inn, Sævar Freyr Þrá­ins­son, og for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, Vil­hjálmur Birg­is­son, eru ugg­andi vegna þró­unar atvinnu­mála á Akranesi, að því er fram kemur í við­tölum við þá á vef RÚV.

Vil­hjálmur segir að helsta ástæðan fyrir þess­ari stefnu­breyt­ingu hjá fyr­ir­tæk­inu sé styrk­ingin krón­unnar, hækkun á inn­lendum kostn­aði - þar með talið launum - og þá hefur verð á botn­fiski staðið í stað í næstum tvö ár, sé horft til þeirra afurða sem unnar hafa verið á Akranesi.

Gengi hluta­bréfa HB Granda lækk­aði um ríf­lega fimm pró­sent í dag en mark­aðsvirði þessa næst­stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tækis lands­ins, á eftir Samherja, er nú tæp­lega 59 millj­arðar króna.

Hagnaður félags­ins í fyrra um þrír millj­arðar króna, eða um 26,2 millj­ónir evra, en hagn­að­ur­inn árið 2015 var 5,3 millj­arðar króna, eða 44,5 millj­ónir evra, sé miðað við gengi evru gagn­vart krónu nú (evra = 120 ISK).

HB Grandi rekur, auk botn­fisk­vinnsl­unnar, skipa­verk­stæði, fiski­mjöls­verk­smiðju, loðnu­vinnslu og tvö dótt­ur­fyr­ir­tæki, Norð­an­fisk og Vignir G. Jónsson á Akranesi. Stefnt er að frek­ari upp­bygg­ingu og efl­ingu þess rekstrar á Akranesi, að því er segir í til­kynn­ingu til kaup­hallar. „Í dag er hvorki hafn­ar­að­staða né aðstaða til vinnslu alls botn­fisk­afla ísfisk­tog­ara HB Granda á Akranesi en for­svars­menn félags­ins og Akra­nes­bæjar eiga í við­ræðum um mögu­legar breyt­ingar á því,“ segir í til­kynn­ingu HB Granda.

Stærsti eig­andi HB Granda, með ríf­lega þriðj­ungs­hlut, er Vogun hf., félag þar sem Kristján Loftsson er stærsti eig­andi. Líf­eyr­is­sjóðir eiga einnig stóran hluta. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna er þeirra stærstur, en hann á 13,1 pró­sent hlut.

Aðal­fundur HB Granda verður hald­inn föstu­dag­inn 5. maí í mat­sal félags­ins við Norð­ur­garð í Reykja­vík og hefst klukkan 17:00.

Stjórn félags­ins leggur til að á árinu 2017 verði vegna rekstr­ar­árs­ins 2016 greiddar 1 kr. á hlut í arð til hlut­hafa, eða 1,8 millj­arðar króna, (um 15,3 millj. evra á loka­gengi árs­ins 2016), eða 3,8% af mark­aðsvirði hluta­fjár í lok árs 2016. Arðurinn verði greiddur 31. maí 2017, að þvi er segir til í til­kynn­ingu félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár