Engin þriggja flokka ríkisstjórn í kortunum

Ef tekið er til­lit til þeirra flokka sem hafa úti­lokað sam­starf með öðrum í aðdrag­anda kom­andi kosn­inga þá bendir nið­ur­staða nýrrar könn­unar til að næsta rík­is­stjórn þurfi að inni­halda að minnsta kosti fjóra stjórn­mála­flokka.

Núver­andi rík­is­stjórn myndi fá 31 þing­mann miðað við könnun MMR og væri því fallin. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fengi flesta, eða 16 tals­ins. Það er sami fjöldi og flokk­ur­inn fékk 2017.

Vinstri græn myndu tapa fjórum þing­mönnum og fá sjö en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stæði í stað og væri áfram með átta.

Stjórn­ar­flokk­arnir fengu 35 þing­menn í kosn­ing­unum 2017 en síðan þá hafa tveir þing­menn Vinstri grænna gengið úr skaft­inu og farið í stjórn­ar­and­stöðu­flokka.

Þeir flokkar sem næðu kjörnum full­trúum inn á Alþingi sem bættu flestum þing­mönnum við sig, yrði nið­ur­staða MMR það sem kæmi upp úr kjör­köss­unum, væru Sam­fylk­ingin sem myndi bæta við sig fjórum þing­mönnum og Píratar og Viðreisn sem myndu bæta við sig sitt­hvorum þremur. Þing­manna­fjöldi þess­ara þriggja flokka myndi því fara úr 17 í 27 og stækka um um 59 pró­sent.

[adspot]Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins fengu sam­tals ell­efu þing­menn í októ­ber 2017. Þeim myndi fækka í fimm og þeir fimm yrðu allir á vegum Mið­flokks­ins.

Hvorki Flokkur fólks­ins né Sós­í­alista­flokkur Íslands næðu manni inn á þing miðað við nið­ur­stöðu MMR.

Útilokun útilokar þriggja flokka stjórn

Ómögu­legt yrði að mynda þriggja flokka rík­is­stjórn eftir næstu kosn­ingar ef nið­ur­staða þeirra væri sú sem nýjasta könnun MMR sýnir. Þar kemur fram að næstum tíu pró­sent atkvæða gætu fallið niður dauð – þ.e. verið greidd flokkum sem ná ekki manni inn á þing – og það myndi ýkja árangur þeirra sjö flokka sem myndu mynda næsta Alþingi umtals­vert.

[links]Í ljósi þess að Sam­fylk­ingin og for­svars­menn Pírata hafa þegar úti­lokað að mynda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki eða Mið­flokki eftir kosn­ing­arnar 25. sept­em­ber næst­kom­andi, getur stærsti flokkur lands­ins, Sjálf­stæð­is­flokkur, mest náð að mynda 31 manns meiri­hluta með núver­andi stjórn­ar­flokkum. Þeim vantar því einn flokk með sér til við­bótar til að ná meiri­hluta.

Einn mögu­leiki í þeirri stöðu væri að kippa annað hvort Mið­flokki eða Viðreisn um borð og mynda þar með 36 til 38 manna stjórn­ar­meiri­hluta.

Fleiri mögu­leikar eru til staðar til að mynda fjög­urra flokka stjórn. Þeir flokkar sem sitja nú saman í meiri­hluta Í Reykja­vík (Sam­fylk­ing, Píratar, Viðreisn og Vinstri græn) mæl­ast til að mynda saman með 34 þing­menn og rúman meiri­hluta. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn gæti líka komið í stað ein­hvers þeirra þriggja síð­ar­nefndu og úr yrði stjórn með 33 til 35 manna meiri­hluta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár