Halldóra sér fyrir sér stjórnarsamstarf Pírata við Samfylkingu og Viðreisn

Þing­flokks­for­maður Pírata segir að eng­inn flötur sé á rík­i­s­tjórn­ar­sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk eða Miðflokk. Aug­ljós­ustu kost­irnir fyrir slíkt sam­starf séu Sam­fylk­ingin og Viðreisn. Kosn­inga­banda­lag sé þó ekki í píp­unum.

Halldóra Mogensen er þingmaður Pírata.
Halldóra Mogensen er þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, segir að Sam­fylk­ingin og Viðreisn væru aug­ljósu kost­irnir fyrir Pírata í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi eftir næstu kosn­ingar, sem fram fara í sept­em­ber á næsta ári. „Það þyrfti vænt­an­lega að verða fjórði aðili. Ég veit ekki hver það yrði, bara hver það yrði ekki. Það yrði klár­lega ekki Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og ég sé engar for­sendur til að vinna með Mið­flokknum.“

Þetta kemur fram í við­tali við Halldóru í hlað­varps­þætt­inum Arn­ar­hóli sem fór í loftið í morgun.

Þar segir Halldóra að hún upp­lifi Pírata sem frjáls­lyndan félags­hyggju­flokk á miðj­unni. Hún sjái Sam­fylk­ing­una líka sem frjáls­lyndan flokk sem halli sér til vinstri og Viðreisn sem slíkan sem halli sér til hægri. Hún segir að hún þoli ekki þá for­ræð­is­hyggju sem henni finnst birt­ast víða í stjórn­málum. „Það er ástæðan fyrir því að ég á mjög erfitt með suma flokka. Þessi íhalds­semi felur í sér ofboðs­lega mikið stjórn­lyndi og for­ræð­is­hyggju.“

Embættið getur breytt fólki í róbóta

Halldóra segir að það standi ekki til að mynda sér­stakt kosn­inga­banda­lag flokka líkt og gert var skömmu fyrir kosn­ingar 2016. Það hafi ein­fald­lega verið mis­tök og þau verði ekki end­ur­tekin.

[adspot]Hún seg­ist hins vegar vera til­búin í að ræða við Sam­fylk­ingu og Viðreisn, sem Píratar eigi mest sam­eig­in­legt með, um að fara með sam­eig­in­lega sýn á ákveðna mála­flokka inn í kosn­ingar. Þannig yrði flokk­arnir ekki bundnir saman í blokk heldur gætu þeir ákveðið fyr­ir­fram ein­hver mál sem þeir myndu lofa að koma í gegn ef þessir flokkar myndu fá meiri­hluta atkvæða og gætu myndað rík­is­stjórn. Dæmi um slík mál væru breyt­ingar á sjáv­ar­út­vegs­kerf­inu, ný stjórn­ar­skrá og umhverf­is­mál. „Þarna gætum við þrír flokkar verið mjög skýr og heið­ar­leg um að ef við náum meiri­hluta og ef við náum að mynda rík­is­stjórn þá myndum við strax koma með þessar X breyt­ingar inn í þessa þrjá mála­flokka. En við myndum aldrei gera það nema að hafa hina flokk­anna með okkur í liði og að það væru allir sam­mála um að þetta væri góð hug­mynd.“

Halldóra tjáir sig líka um Katrínu Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra og for­mann Vinstri grænna, í hlað­varp­inu. Hún seg­ist ekki þekkja for­sæt­is­ráð­herra per­sónu­lega heldur ein­ungis í gegnum vinn­una og mögu­lega sé það emb­ættið sjálft sem breyti fólki í hálf­gerða róbóta. „Þegar fólk fer inn í þessi valda­emb­ætti þá er það alltaf í vörn. Það fer að tala eitt­hvað allt annað tungu­mál og nota ein­hvern tón sem mér finnst varla vera mennskur lengur. ég væri til í að sjá mann­eskju taka þetta emb­ætti sem gæti tæklað þetta á þann átt að mann­eskjan gæti breytt emb­ætt­inu frekar en að láta emb­ættið breyta sér.“

Samfylkingin vill sama samstarf

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur ítrekað talað fyrir rík­is­stjórn­ar­sam­starfi þar sem Sam­fylk­ingin, Píratar og Viðreisn séu uppi­staðan og að einn annar flokkur, annað hvort Vinstri græn eða Fram­sókn­ar­flokkur, bæt­ist við til að mynda meiri­hluta. Hann hefur sömu­leiðis ítrekað sagt að ekki sé mál­efna­legur grund­völlur fyrir sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk eða Miðflokk. Þá hefur Logi nefnt sömu mála­flokka og Halldóra sem mögu­legan grund­völl fyrir sam­starfi frjáls­lyndu flokk­anna þriggja.

Síðast gerði Logi þetta á lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar um liðna helgi þar sem hann sagði einu leið­ina að rík­is­stjórn þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri ekki með „fing­urna í fjár­málum rík­is­ins“ væri stuðn­ingur við Sam­fylk­ing­una. „Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn er sundr­aður og klof­inn, sem er reyndar hætt að sæta tíð­indum. Þau í­halds­söm­ustu ganga nú í Mið­flokk­inn, eitt af öðru og hörð­ustu mark­aðs­sinn­arnir eru farnir í Við­reisn. Það eru engin prinsipp eftir, bara varð­staða um þrönga sér­hags­muni. Milli­tekju­fólk og smærri at­vinnu­rek­endur eiga enga máls­vara þarna lengur – hvað þá tekju­lægstu hóp­arnir.“

Viðreisn varkár í yfirlýsingum

For­ystu­fólk Við­reisnar hefur lítið gefið upp opin­ber­lega um hvaða rík­is­stjórn­ar­sam­starf það sér sem eft­ir­sókn­ar­verð­ast eftir næstu kosn­ingar. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður flokks­ins, gaf þó skýrt til kynna í við­tali við Kjarnann hvert hugur hennar stefnir eftir næstu kosn­ingar, án þess að nefna sér­stak­lega flokka. „„Við þurfum fólk sem raun­veru­lega meinar það þegar það talar um gagn­sæi og um að miðla upp­lýs­ingum og situr ekki á skýrslum rétt fyrir kosn­ingar. Þess vegna þarf að vera þungi og alvara af okkar hálfu sem erum í stjórn­málum því við getum breytt hlut­unum. Það þýðir ekki að tipla á tánum í kringum þetta gamla. Það gamla varð til út af ákveð­inni ástæðu og allt í góðu með það en í dag er annar tími sem gerir kröfur og setur ábyrgð á herðar okkar sem eru í stjórn­málum að breyta – og upp­færa.“

[links]Þar vís­aði Þor­gerður í að fyrir kosn­ing­arnar 2016 hafi tvær skýrslur sem fjöll­uðu um mál sem voru á meðal stærstu álita­efna síð­ustu ára, afland­eignir Íslend­inga og skipt­ingu Leið­rétt­ing­ar­innar milli lands­manna, verið til­búnar. Þær voru hins vegar ekki birtar fyrr en eftir kosn­ing­arnar 2016. Báðar skýrsl­urnar voru unnar fyrir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið sem var, og er, stýrt af Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Þessir þrír flokkar: Sam­fylk­ingin, Píratar og Viðreisn fengu sam­an­lagt 28 pró­sent atkvæða í þing­kosn­ing­unum 2017. Í síð­ustu könnun Gallup mæld­ist sam­eig­in­legt fylgi þeirra 39,6 pró­sent og í síð­ustu könnun MMR mæld­ist það 38,4 pró­sent. Það fylgi ætti að duga til að geta myndað rík­is­stjórn að óbreyttu með annað hvort Vinstri grænum eða Framsókn.

Flokk­arnir þrír eru þegar í sam­starfi í næst stærsta stjórn­valdi lands­ins, Reykja­vík­ur­borg. Þar sitja Vinstri græn með þeim líka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár