Óttast að „tveggja flokka kerfi“ myndist ef flokkar útiloki samstarf við aðra

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Logi Ein­ars­son eru sam­mála um að kjós­endur eigi að hafa skýra sýn á hvers­konar rík­is­stjórnir flokkar vilji mynda eftir kosn­ingar. Sig­mundur vill þó ekki úti­loka sam­vinnu með neinum og kallar Sam­fylk­ingu „úti­lok­un­ar­flokk.“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er orðin dálítið sér­kenni­leg staða þegar Sam­fylk­ingin er komin til vinstri við VG og virð­ist einnig vera búin að missa umboðið fyrir ESB á Íslandi til Við­reisnar,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins, er hann og Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ingar ræddu saman í dag, sem gestir í þjóð­mála­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni.

Þangað voru þeir fengnir til þess að ræða mögu­legar rík­is­stjórn­ar­mynd­anir eftir kosn­ing­arnar sem eiga að fara fram í lok sept­em­ber. Sem kunn­ugt er hefur for­maður Sam­fylk­ingar úti­lokað sam­starf við bæði Mið­flokk­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­inn að loknum kosn­ingum. „Minn val­kostur er græn félags­hyggju­stjórn,“ sagði Logi í þætt­inum.

Sig­mundur Davíð tók í kjöl­farið undir það með Krist­jáni Krist­jáns­syni þátt­ar­stjórn­anda að rétt væri að íslenskir kjós­endur hefðu lengi kallað eftir því að fá skýr­ari sýn á það hvaða flokkar gætu hugsað sér að vinna saman eftir kosn­ingar.

Miðflokkur ekki „útilokunarflokkur“

Hann vildi þó sjálfur ekki úti­loka sam­starf með neinum flokki, né segja hvaða flokkum Mið­flokkur hans vildi helst starfa með í rík­is­stjórn eftir kosn­ingar, þrátt fyrir að vera þrá­spurður.

„Ef fólk styður okkur, Mið­flokk­inn, þá getur það treyst því að við víkjum ekki frá þeim grund­vall­ar­lof­orðum sem við gefum í kosn­ingum,“ sagði Sig­mundur Davíð og nefndi meðal ann­ars að flokk­ur­inn myndi hvergi hvika frá áherslum sínum á full­veld­is­mál.

Þeir Logi tók­ust á um hvort það væri æski­legt að flokkar gæfu upp fyrir kosn­ingar með hverjum þeir hefðu hug á að starfa í mögu­legum rík­is­stjórnum.

„Við erum ekki úti­lok­un­ar­flokkur,“ sagði Sig­mundur Davíð. Þegar þeir Logi höfðu rætt málin um nokkra stund og tek­ist á um mis­mun­andi áherslur flokk­anna í hinum ýmsu stefnu­málum sam­sinnti Sig­mundur Davíð for­manni Sam­fylk­ingar þó þegar sá síð­ar­nefndi sagði að það væri „býsna lang­sótt hug­mynd“ að þeir tveir myndu sitja saman við rík­is­stjórn­ar­borð.

Logi sagð­ist bera fulla virð­ingu fyrir því að aðrir flokkar vildu fyrir fram ekki úti­loka mögu­leik­ann á sam­starfi með öðrum flokkum, en hann sagð­ist á sama tíma telja það heið­ar­legt að segja við kjós­endur að þeir sem settu X við Sam­fylk­ing­una væru ekki að setja X við hægri­st­jórn.

Hugnast ekki að kosningablokkir teiknist upp eins og á Norðurlöndunum

Fram kom í máli Sig­mundar Davíðs að ef farið yrði í ein­hvers­konar „blokka­myndun“ eins og við hefðum séð á Norð­ur­löndum, þar sem flokk­arnir til hægri og vinstri mynda rauðar og bláar blokkir sem í reynd eru sem kosn­inga­banda­lög, værum við „farin í tveggja flokka kerfi,“ sem hann teldi ekki æski­legt.

Logi neit­aði því alfarið að þetta væri ein­hver spurn­ing um að tveggja flokka kerfi myndi teikn­ast upp og benti á að flokk­arnir á Alþingi væru alls átta tals­ins. Hann sagð­ist hins vegar telja að á þessum tíma­punkti þyrfti sam­henta rík­is­stjórn sem væri í grund­vall­ar­at­riðum sam­mála um helstu mál­efni og þyrfti ekki að gera miklar mála­miðl­anir, sem síðan leiddu til kyrr­stöðu.

Sig­mundur Davíð tók að nokkru leyti undir þetta, en hann lagði þó frekar áherslu á að rík­is­stjórn­inni væri í reynd stjórnað af „kerf­inu.“ Áður hefur hann sagt að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hafi verið stofnuð um ráð­herra­stóla og útdeil­ingu gæða, en síðan fari emb­ætt­is­menn með völdin.

Spurði um „Reykjavíkurstjórn í landsmálunum“ sem utanríkisráðherra óttast

Sig­mundur Davíð spurði Loga að því hvort hann vildi mynda „Reykja­vík­ur­stjórn í lands­mál­unum.“ Logi sagði á móti að hann vildi koma að myndun rík­is­stjórnar frá miðju og til vinstri, en þar væri nóg af flokkum sem starfað gætu saman. Sig­mundur Davíð mætti kalla það hvað sem hann vildi.

Reykja­vík­ur­stjórn í lands­mál­unum hefur verið verið til umræðu víðar í fjöl­miðlum þessa helg­ina.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra sagði í ítar­legu við­tali við Sunnu­dags­blað Morg­un­blaðs­ins að „hættan“ væri sú að eftir kosn­ingar kæmi rík­is­stjórn „svipað sam­sett og borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­inn í Reykja­vík“ og tal­aði um það í sam­hengi við fjár­hags­stöðu Reykja­vík­ur­borgar.

„Það væri skelfi­legt ef sömu sömu sjón­ar­mið fengju að ráða í lands­stjórn­inni,“ er haft eftir utan­rík­is­ráð­herra í Morg­un­blað­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár