Fréttamál

Menntamál

Greinar

LÍN-frumvarp Illuga gæti bitnað harkalega á doktorsnemum, einstæðum foreldrum og fátæku fólki
FréttirMenntamál

LÍN-frum­varp Illuga gæti bitnað harka­lega á dokt­or­snemum, ein­stæðum for­eldrum og fátæku fólki

Fjórar stúd­enta­hreyf­ingar kalla eftir því að náms­lána­frum­varp mennta­mála­ráð­herra verði keyrt í gegnum þingið. Frum­varpið felur í sér að tekju­teng­ing afborg­ana er afnumin, vextir allt að þre­fald­aðir og náms­styrkur veittur öllum, óháð efna­hag og þörf. Stjórn­ar­and­staðan telur frum­varpið grafa undan lífs­kjörum stúd­enta, stuðla að ójöfn­uði og lægra mennt­un­ar­stigi í land­inu.
Háskóli Íslands gagnrýnir námslánafrumvarp Illuga harðlega: Gæti reynst samfélaginu dýrkeypt
FréttirMenntamál

Háskóli Íslands gagn­rýnir náms­lána­frum­varp Illuga harð­lega: Gæti reynst sam­fé­lag­inu dýr­keypt

„Ekki er nóg með að end­ur­greiðslur þyng­ist og mögu­leikar á lánum minnki í nýju kerfi hjá sumum hópum náms­fólks, heldur verða end­ur­greiðslur af fyrri lánum einnig þung­bær­ari,“ segir í skýrslu sem Hag­fræði­stofnun vann fyrir skól­ann. Alvar­legar athuga­semdir eru gerðar við frum­varpið í umsögn sem und­ir­rituð er af Jóni Atla Bene­dikts­syni, rektor Háskóla Íslands.
BHM: Grafið undan lífskjörum lágtekjufólks – óþarfi að færa afgreiðslu námslána til einkafyrirtækja
FréttirMenntamál

BHM: Grafið undan lífs­kjörum lág­tekju­fólks – óþarfi að færa afgreiðslu náms­lána til einka­fyr­ir­tækja

Bandalag háskóla­manna gerir alvar­legar athuga­semdir við náms­lána­frum­varp Illuga Gunn­ars­sonar, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og lýsir þungum áhyggjum af greiðslu­byrði lán­tak­enda sem til­heyra lág­launa­stéttum háskóla­mennt­aðra og hópum sem standa félags­lega veikt að vígi.

Mest lesið undanfarið ár