Víðtæk tengsl Sjálfstæðisflokksins við GAMMA: KOM lét fjarlægja myndbandið

„Við skiptum okkur ekki af hvaða skoð­anir fólk setur fram á Facebook,“ segir í svari KOM við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar. Almanna­tengsla­fyr­ir­tækið er meðal ann­ars í eigu fyrr­ver­andi aðstoð­ar­manna Bjarna Bene­dikts­sonar og Illuga Gunn­ars­sonar en GAMMA hefur einnig umtals­verð tengsl við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Víðtæk tengsl Sjálfstæðisflokksins við GAMMA: KOM lét fjarlægja myndbandið

Almanna­tengsla­fyr­ir­tækið KOM krafð­ist þess að mynd­band um tengsl Sjálf­stæð­is­flokks­ins við fyr­ir­tækið GAMMA yrði fjar­lægt af Facebook. 

„Við skiptum okkur ekki af hvaða skoð­anir fólk setur fram á Facebook. Hins vegar þarf fólk leyfi til að nota myndir í eigu ann­arra í fram­setn­ingu sinni,“ segir Björgvin Guð­munds­son, einn af eig­endum KOM, í tölvu­pósti til Stund­ar­innar.   

Jæja-hóp­ur­inn svo­kall­aði, sem skipu­lagði mót­mæli á Aust­ur­velli síð­asta vor eftir að upp­lýst var um aflands­fé­lög þriggja ráð­herra, birti mynd­bandið um helg­ina. Um 10 þús­und manns höfðu horft á mynd­bandið þegar það var fjar­lægt, en skömmu seinna var það birt aftur, án mynda, og hafa nú um 70 þús­und manns horft.

Í mynd­band­inu er bág staða leigj­enda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hátt leigu­verð sett í sam­hengi við inn­reið GAMMA inn á hús­næð­is­mark­að­inn. Þá eru umdeildar til­raunir sjálf­stæð­is­manna til að breyta íslensku náms­lána­kerfi tengdar við nýtil­komna náms­lána­starf­semi GAMMA. Umsvif fyr­ir­tæk­is­ins eru gríð­ar­leg, en und­an­farin ár hafa sjóðir þess eign­ast hund­ruð fast­eigna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. 

Víðtæk tengsl við Sjálfstæðisflokkinn

GAMMA styrkti Sjálf­stæð­is­flokk­inn um 199 þús­und krónur árið 2013, 400 þús­und krónur árið 2014 og aftur um 400 þús­und krónur í fyrra.

Jón­mundur Guð­mars­son, fram­kvæmda­stjóri sölu og við­skipta­þró­unar hjá GAMMA, er fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins og var jafn­framt bæj­ar­stjóri á Sel­tjarn­ar­nesi um ára­bil fyrir hönd flokks­ins. 

Gísli Hauksson, fram­kvæmda­stjóri GAMMA, er í mið­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður fjár­mála­ráðs. Þá hefur hann aðstoðað Hannes Hólm­stein Giss­ur­ar­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor við að boða frjáls­hyggju á Íslandi í gegnum svo­kallað Rann­sókn­ar­setur um nýsköpun og hag­vöxt. 

Ingvi Hrafn Ósk­ars­son, lög­fræð­ingur hjá GAMMA, var skip­aður stjórn­ar­for­maður RÚV af Illuga Gunn­ars­syni mennta­mála­ráð­herra í upp­hafi kjör­tíma­bils­ins og hefur setið í banka­ráði Seðla­bank­ans fyrir hönd flokks­ins. Þá er hann fyrr­ver­andi for­maður og vara­for­maður Sambands ungra sjálf­stæð­is­manna. Illugi Gunn­ars­son skip­aði Ingva sem for­mann fjöl­miðla­nefndar í mars síð­ast­liðnum.

Eiríkur Finnur Greips­son, verk­efna­stjóri hjá GAMMA, hefur einnig setið í stjórn Rík­is­út­varps­ins fyrir hönd Illuga Gunn­ars­sonar. Hann var aðstoð­ar­spari­sjóðs­stjóri Spari­sjóðs Vest­firð­inga þegar sjóð­ur­inn veitti Illuga Gunn­ars­syni og konu hans tals­verða fyr­ir­greiðslu til að forð­ast fjár­nám um og eftir hrun. Eiríkur Finnur gagn­rýndi fjöl­miðla harð­lega fyrir umfjöllun um tengsl Illuga við fyr­ir­tækið Orku Energy og Hauk Harð­ar­son, stjórn­ar­for­mann þess.

„Ég hef unnið með og þekkt Illuga frá ung­lings­árum hans og Bryn­hildi hef ég þekkt frá fæð­ingu. Þau eru reyndar miklir vinir okkar hjóna og verða. Ég verð að við­ur­kenna að ég skil ekki hversu lág­kúru­legum vinnu­brögðum er unnt að beita til þess eins að afla sér tekna og lífs­við­ur­væris af útgáfu frétta­mið­ils eins og Stund­ar­innar, og skeyta í engu um mann­orð heið­ar­legs og dug­legs fólks. Hver skyldi verða næstur fyrir aftöku­sveit­ina?“ skrif­aði Eiríkur þegar Orku Energy-málið stóð sem hæst.

GAMMA í samkeppni við LÍN

Samkvæmt nýjasta árs­reikn­ingi GAMMA hagn­að­ist fyr­ir­tækið um 416 millj­ónir króna árið 2015 og greiddi hlut­höfum 100 millj­ónir króna í arð.

Und­an­farin miss­eri hefur GAMMA fært sig inn á náms­lána­mark­að­inn með því að bjóða háskóla­nemum fram­færslu- og skóla­gjalda­lán í gegnum nýjan sjóð, Fram­tíð­ina. Þannig er fyr­ir­tækið komið í sam­keppni við Lánasjóð íslenskra náms­manna. Um svipað leyti hafa Illugi Gunn­ars­son og sjálf­stæð­is­menn beitt sér fyrir því að sam­þykkt verði nýtt frum­varp til laga um náms­lán og náms­styrki sem fæli meðal ann­ars í sér að vaxta­pró­senta náms­lána hjá LÍN myndi allt að þre­fald­ast. Stjórn­ar­and­staðan og Háskóli Íslands mót­mæltu áformunum harð­lega og töldu að í þeim fælist aðför að jafn­rétti til náms.

„Á þetta að vera skref í einka­væð­ingu mennta­kerf­is­ins? Að gera náms­lán svo lág að það borgar sig í raun­inni ekki að fá sér rík­is­náms­lán svo maður fari í einka­rekið náms­lána­við­skipti?“

Fyrr á árinu tóku nýjar úthlut­un­ar­reglur hjá LÍN gildi, en sam­kvæmt þeim lækk­uðu lán til fram­færslu náms­manna erlendis um allt að 20 pró­sent á yfir­stand­andi skóla­ári. „Á þetta að vera skref í einka­væð­ingu mennta­kerf­is­ins? Að gera náms­lán svo lág að það borgar sig í raun­inni ekki að fá sér rík­is­náms­lán svo maður fari í einka­rekið náms­lána­við­skipti?“ sagði Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­kona Pírata, þegar fjallað var um breyt­ing­arnar fyrr á árinu. 

Lán­veit­ingar Fram­tíð­ar­innar falla undir lög um neyt­enda­lán nr. 33/2013, sömu lög og smá­lána­fyr­ir­tæki starfa eftir. Í stjórn Fram­tíð­ar­innar sitja Hlíf Sturlu­dóttir, Sig­ur­geir Örn Jónsson og Ellert Arnarson. 

KOM nátengt Illuga og Sjálfstæðisflokknum

Almanna­tengsla­fyr­ir­tækið KOM hefur einnig tals­verð tengsl við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Magnús Ragn­ars­son, sem starf­aði um tíma sem aðstoð­ar­maður Illuga Gunn­ars­sonar í mennta­mála­ráðu­neyt­inu, er stjórn­ar­for­maður KOM sam­kvæmt gild­andi skrán­ingu í hluta­fé­lags­skrá og jafn­framt hlut­hafi í fyr­ir­tæk­inu í gegnum félagið PT 109 ehf. á móti Friðjóni R. Frið­jóns­syni og Björg­vini Guð­munds­syni. 

Friðjón R. Frið­jóns­son, er áhrifa­maður í Sjálf­stæð­is­flokknum, hefur boðið sig fram í próf­kjörum hjá flokknum og gegndi um tíma starfi aðstoð­ar­manns Bjarna Bene­dikts­sonar á kjör­tíma­bili vinstri­st­jórn­ar­innar. Hann situr fyrir hönd Illuga í stjórn Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands.

Björgvin Guð­munds­son hefur áður starfað sem rit­stjóri Við­skipta­blaðs­ins og sem rit­stjóri við­skipta­f­rétta Morg­un­blaðs­ins. 

KOM styrkti Sjálf­stæð­is­flokk­inn um 235.312 krónur á árinu 2014. Í því fólst að fyr­ir­tækið gaf flokknum vinnu, meðal ann­ars vegna vand­ræða Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra þegar leka­málið stóð sem hæst.

Fyr­ir­tækið hefur fengið ýmis verk­efni hjá hinu opin­bera á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili, enda um eitt stærsta almanna­tengsla­fyr­ir­tæki lands­ins að ræða. Í fyrra var greint frá því að KOM hefði fengið hátt í milljón frá hinu opin­bera fyrir aðstoð við að bæta ímynd lög­reglu og lög­reglu­stjóra vegna leka­máls­ins og mis­taka við birt­ingu skýrsl­unnar um Bús­á­halda­bylt­ing­una.

Mennta­mála­ráðu­neytið fól jafn­framt KOM að ann­ast kynn­ingu vegna Hvít­bókar Illuga Gunn­ars­sonar um mennta­mál og greiddi rúma milljón fyrir. Þá var fyr­ir­tæk­inu falið að boða fjöl­miðla á kynn­ing­ar­fund um skýrslu nefndar Eyþórs Arnalds um rekstur Rík­is­út­varps­ins síð­asta haust. 

Áður hefur KOM aðstoðað Geir H. Haarde, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, að rétta hlut sinn í fjöl­miðlum vegna lands­dóms­máls­ins og hjálpað athafna­mann­inum Víglundi Þor­steins­syni að bera emb­ætt­is­menn og stjórn­mála­menn þungum sökum í fjöl­miðlum vegna aðgerða sem gripið var til við end­ur­skipu­lagn­ingu banka­kerf­is­ins í tíð síð­ustu rík­is­stjórnar. 

Myndband Jæja-hóps­ins um tengsl GAMMA og Sjálf­stæð­is­flokks­ins var tekið niður að kröfu KOM vegna þess að þar voru myndir af starfs­mönnum GAMMA not­aðar í leyf­is­leysi. Samkvæmt svari fyr­ir­tæk­is­ins við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar hefur krafan ekk­ert að gera með þær skoð­anir sem er viðr­aðar eru í mynd­band­inu.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármál stjórnmálaflokka

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár