Tilgangurinn að fórna litlum hagsmunum fyrir mikla

Formaður VR segir að svokölluð líf­eyr­is­leið hafi aldrei kom­ist í mál­efna­lega umræðu innan samn­inga­nefndar ASÍ.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, gerir grein fyrir afstöðu sinni á Facebook í dag varð­andi svo­kall­aða líf­eyr­is­leið sem Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) báru á borð fyrir Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) á dög­unum en ASÍ hafn­aði leið­inni í vik­unni. Ragnar Þór sagði sig úr mið­stjórn ASÍ á mánu­dag­inn.

„Svo því sé haldið til haga þá hafa hug­myndir okkar um svo­kall­aða líf­eyr­is­leið, sem við lögðum til, ekk­ert að gera með að launa­fólk borgi sínar eigin hækk­anir og hefur ekk­ert með skoð­anir SA eða við­horf Við­skipta­ráðs að gera.

Þessi hug­mynd var fyrst og fremst okkar inn­legg í mögu­legar aðgerðir við að verja kaup­mátt launa, heim­ilin, verja fleiri störf og lífs­kjör okkar félags­manna og almenn­ings,“ skrifar Ragnar Þór á Facebook.

Vill forðast misskilning og rangtúlkanir

Hann segir að með þess­ari leið hafi alltaf staðið til að fá stjórn­völd að borð­inu. Stórn­völd sem hafi verið til­búin að skoða aðgerðir varð­andi þak á vísi­tölu verð­tryggðra lána og fleiri mik­il­væg atriði sem skipti fólkið þeirra öllu máli. Það hafi jafn­framt staðið til að ræða við opin­beru félögin og að ræða kosti og galla allra leiða sem lagðar eru fram til að milda höggið sem framundan er.

En málið hafi aldrei kom­ist í mál­efna­lega umræðu innan samn­inga­nefndar ASÍ. „Þess vegna vil ég gera grein fyrir því, með ítar­legum hætti, til að forð­ast mis­skiln­ing og rang­túlk­anir,“ skrifar Ragnar Þór.

Verst að gera ekki neitt

Hann segir að versta leiðin í þess­ari stöðu sé að gera ekki neitt. „Það þýðir lítið að benda á ríkið í þessum efnum þar sem við sjálf erum ríkið. Það er alveg sama hver skrifar reikn­ing­inn, hann fer inn um lúgu skatt­greið­enda hvernig sem fer. Í formi skerð­inga á rétt­indum, tapi rík­is­sjóðs, verð­bólgu og lægri kaup­mætti.

Ég tek það fram að rétt eins og flestir lands­menn hef ég veru­legar áhyggjur af mörgum þeim úrræðum sem rík­is­stjórnin hefur sett fram, í ábyrgð skatt­greið­enda, og hvernig fjár­mála­kerf­inu sé treyst i blindni fyrir 350 millj­arða útlána­svig­rúmi svo eitt­hvað sé nefnt,“ skrifar hann.

Hugmyndin gekk út á kaupmáttartryggingu

[links]Ragnar Þór greinir frá því að hug­mynd VR hafi gengið út á kaup­mátt­ar­trygg­ingu. „Í dag er mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóði 11,5 pró­sent. Samið var um hækkun á mót­fram­lagi árið 2016. Það hækk­aði úr 8 pró­sent í 11,5 pró­sent í þrepum síð­asta hækkun var 1. júlí 2018. Í stað þess að fresta launa­hækk­unum er hægt að fara í aðrar aðgerðir sem munu hafa mun minni áhrif á eft­ir­spurn í hag­kerf­inu, það er að lækka tíma­bundið mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóði úr 11,5 pró­sent í 8 pró­sent.“

Með slíkri aðgerð væri verið að auka ráð­stöf­un­ar­tekjur launa­fólks og þar með einka­neysl­una en skerða tíma­bundið fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða sem hafi fáa fjár­fest­inga­kosti þar sem mark­aðir séu frjálsu falli.

Skilyrði að verðlag væri stöðugt á tímabilinu

Skilyrði fyrir því að stétt­ar­fé­lög væru til­búin að gefa slíkt eftir sé að verð­lag verði stöðugt á tíma­bil­inu, hækki ekki meira en sem nemur verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands eða 2,5 pró­sent á ári. Í raun sé ekki verið að gefa eftir mót­fram­lag heldur að kaupa trygg­ingu fyrir því að launa­fólk verði ekki fyrir kaup­mátt­ar­skerð­ingu.

Ef verð­bólgan fari af stað þá verði engin breyt­ing á mót­fram­lagi í líf­eyr­is­sjóði og það greitt að fullu. Ef verð­bólga verði lág þá sé kaup­máttur tryggður með tíma­bund­inni lækkun á iðgjaldi í líf­eyr­is­sjóði. Auk þess sem færa megi fram mjög sterk rök fyrir því að lækkun á launa­kostn­aði leiði af sér minna atvinnu­leysi í þeirri kreppu sem Íslend­ingar eru á ganga í gegnum þessa dag­ana.

Sagan sýnir hvernig niðursveiflur hafa leikið launafólk

„Skerðing á líf­eyri sjóða­fé­laga líf­eyr­is­sjóða miðað við 3 mán­aða lækkun væri um 0,16 pró­sent eða um 772 krónur á mán­uði miðað við 40 ára gamlan ein­stak­ling sem er með 650.000 krónur í laun á mán­uði. Ef kaup­máttur myndi skerð­ast um 1 pró­sent þá væri það að kosta launa­fólk um 4.300 kr. á mán­uði miða við 650.000 kr. laun á mán­uði. Ef kaup­máttur myndi skerð­ast um 3 pró­sent eins og gerð­ist í nið­ur­sveifl­unni árið 2001 myndi það kosta launa­fólk um 12.900 kr. á mán­uði miðað við sömu for­sendur,“ skrifar Ragnar Þór.

Hann veltir því fyrir sér hvort og hvenær væri hægt að ná aftur þeim kaup­mætti sem mögu­lega tap­ast í þeirri efna­hags­nið­ur­sveiflu sem við sjáum fram á. Sé litið til sög­unnar sjá­ist vel hvernig nið­ur­sveiflur hafi leikið launa­fólk.

Frá 1913 hafi verið átta nið­ur­sveiflur. Í öllum nema einni hafi kaup­máttur launa dreg­ist saman. Í sein­ustu þremur: 1991 til 1992, 2001 og svo 2008 hafi kaup­máttur lækkað um -8, -3 og -15 pró­sent. Saga sein­ustu 100 ára standi því ekki með launa­fólki um þessa mundir.

Alltaf tilbúin að koma aftur að samningaborðinu

„Að þessu sögðu ætti öllum að vera ljóst að til­gangur okkar var að verja kaup­mátt og hags­muni félags­manna okkar fyrst og síð­ast. Að fórna litlum hags­munum fyrir mikla.

Við erum alltaf til­búin að koma aftur að samn­inga­borð­inu en sættum okkur ekki við að gera ekki neitt,“ skrifar Ragnar Þór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár