Hvetur verkalýðshreyfinguna til að standa saman og vinna af yfirvegun við úrlausn mála

Formaður Eflingar hefur gefið út yfir­lýs­ingu vegna óróa í verka­lýðs­hreyf­ing­unni eftir að Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, sagði af sér emb­ætti vara­for­seta ASÍ.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, seg­ist harma að Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, hafi sagt af sér sem fyrsti vara­for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) í dag. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem hún birti á Facebook-síðu sinni í kvöld.

„Vil­hjálmur hefur verið óþreyt­andi bar­áttu­maður fyrir bættum hag verka­fólks og heim­ila og öfl­ugur banda­maður minn og Eflingar á síð­ustu árum. Mikill missir er að honum úr sæti vara­for­seta Alþýðu­sam­bands­ins,“ skrifar hún.

Sam­tök atvinn­u­lífs­ins (SA) og ASÍ höfðu átt í ófor­m­­legum við­ræðum um nokk­­urt skeið um mála­­leitan sam­tak­anna um að leita leiða til að draga tíma­bundið úr launa­­kostn­aði fyr­ir­tæki. Á mánu­dag sendi SA for­m­­legt erindi þess efnis til samn­inga­­nefndar ASÍ, sem var í dag hafnað með því afdrátt­­ar­­lausa svari að verka­lýðs­hreyf­­ingin léði ekki máls á tíma­bund­inni lækkun launa­­kostn­að­­ar. Vil­hjálmur var ósam­mála því að hafna leið SA og sagði af sér emb­ætti í kjöl­farið.

[links]Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, sagði sig úr mið­stjórn ASÍ strax á mánu­dag­inn og sagði hann í sam­tali við Kjarnann í dag að hann teldi að kröftum sínum væri að svo stöddu ekki vel varið í að taka þátt í starfi innan sam­bands­ins.

Hafnaði að frekari byrgðum yrði velt yfir á vinnandi fólk

Sólveig Anna segir í yfir­lýs­ingu sinni að vegna vís­unar í umræður á vett­vangi samn­inga­nefndar ASÍ vilji hún taka fram að hún hafi fyrir hönd Eflingar hafnað því með öllu að frek­ari byrðum vegna Covid-19 far­ald­urs­ins, umfram það sem þegar er, verði velt yfir á vinn­andi fólk.

„Afstaða mín er sú að ef frek­ari stuðn­ings­að­gerða við vinnu­mark­að­inn sé þörf þá eigi ríkið að standa við fyr­ir­heit sín um við­bót­ar­að­gerðir, til dæmis með frek­ari rýmkun hluta­bóta­leið­innar eða tíma­bund­inni lækkun trygg­inga­gjalds. Mikið svig­rúm er til staðar í fjár­málum hins opin­bera og núver­andi aðgerða­pakki enn tals­vert minni en það sem sést hefur hjá nágranna­löndum. Meðan svo er get ég ekki fall­ist á að verka­lýðs­hreyf­ingin gefi afslátt af kjörum sinna félags­manna, allra síst lág­launa­fólks sem nú þegar berst í bökkum og hefur gert lengi. Ég hafna því að verka­lýðs­hreyf­ingin taki frum­kvæði að til­lögum um slíkt. Þessu hef ég komið skýrt á fram­færi á vett­vangi Alþýðu­sam­bands­ins,“ skrifar hún.

Þá bendir hún á að engum dylj­ist að miklir gallar séu á mörgum þáttum íslenska líf­eyr­is­kerf­is­ins, „en það getur ekki þýtt að lág­launa­fólk sem þiggur smán­ar­lega lágar líf­eyr­is­greiðslur við starfs­lok eigi að nota þær greiðslur til að kaupa atvinnu­rek­endur frá kostn­aði við að standa við kjara­bætur sem unn­ust með harðri bar­áttu verka­fólks.“

Sólveig Anna hvetur í yfir­lýs­ing­unni til þess að verka­lýðs­hreyf­ingin standi saman og vinni af yfir­vegun við úrlausn þeirra miklu verk­efna sem við okkur blasa vegna Covid-19 veiru­far­ald­urs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár