Vilhjálmur segir Drífu hafa lagt fram tillögu um að fresta öllum launahækkunum

Frá­far­andi vara­for­seti ASÍ segir að for­seti sam­bands­ins hafi lagt fram til­lögu á föstu­dag um að taka tíma­bundnar launa­hækk­anir af fólki en hafi hafnað því að lækka mót­fram­lag atvinnu­rek­enda í líf­eyr­is­sjóð í sex mán­uði hið minnsta.

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, segir að hann lýsi undrun sinni á orðum Drífu Snædal, for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), sem sagði í við­tali á RÚV í morgun ekki væri hægt að lækka mót­fram­lag atvinnu­rek­enda í líf­eyr­is­sjóði starfs­manna tíma­bundið vegna þess að það væri „of alvar­leg aðgerð til að hægt sé að grípa til hennar.“

[links]Vil­hjálmur segir að Drífa hafi á fundi síð­ast­lið­inn föstu­dag lagt fram til­lögu um að fresta öllum launa­hækk­unum á íslenskum vinnu­mark­aði tíma­bundið. „Það vekur því for­undrun mína að telja það í lagi að leggja fram til­lögu um að fresta og taka allar launa­hækk­anir af launa­fólki á öllum íslenskum vinnu­mark­aði, en segja núna nokkrum dögum síðar að það sé of „alvar­lega aðgerð“ að lækka mót­fram­lag atvinnu­rek­enda tíma­bundið í líf­eyr­is­sjóð.[...]Mér finnst það þyngra en tárum taki að hafa lagt fram til­lögu um taka tíma­bundið launa­hækk­anir af launa­fólki í stað þess að fara þessa líf­eyr­is­leið sem skilar eins og áður hefur komið fram sama ávinn­ingi. En það virð­ist vera sem sumir í verka­lýðs­hreyf­ing­unni líti á líf­eyr­is­sjóð­ina sem „heilaga“ sem aldrei megi gagn­rýna né snerta.“

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu Vil­hjálms á Facebook. Hann ákvað fyrr í dag að segja af sér emb­ætti vara­for­seta ASÍ til að mót­mæla ákvörðun sam­bands­ins um að hafna því að mót­fram­lag atvinnu­rek­enda í líf­eyr­is­sjóð starfs­manna þeirra yrði lækkað um 3,5 pró­sentu­stig í sex mán­uði hið minnsta.

[adspot]Hann segir að það liggi fyrir að fjöl­margir atvinnu­rek­endur hafi óskað eftir við stétt­ar­fé­lögin að við þessar for­dæma­lausu aðstæður sem uppi eru yrðu launa­hækk­unum sem koma til fram­kvæmda í dag, og samið var um í Lífs­kjara­samn­ing­unum, frestað. „Ég hef alltaf sagt að það komi ekki til greina, enda þarf launa­fólk á þessum launa­hækk­unum á að halda. Hins vegar höfum við Ragnar Þór hjá VR viljað fara aðra leið vegna þess skelf­ingar ástands sem ríkir á vinnu­mark­aðnum vegna far­ald­urs­ins,“ skrifar Vil­hjálmur.

Aðal­mark­miðið með þeirri aðgerð væri að verja störf og ef hún myndi leiða til þess að okkur tæk­ist að verja 200, 400, 500 eða jafn­vel þús­undir starfa þá væri hún skyn­sam­leg að mati Vil­hjálms. „Það er ábyrgð­ar­laust að gera ekki neitt enda er vinnu­mark­að­ur­inn að breyt­ast í blóð­ugan víg­völl og það bitnar eins og alltaf á almennu launa­fólki eins og tölur Vinnu­mála­stofn­unar stað­festa.“

Vil­hjálmur seg­ist hafa skynjað á sam­tölum sínum við stjórn­völd á und­an­förnum dögum að það væri fullur vilji þeirra til að styðja við, ef verka­lýðs­hreyf­ingin og atvinnu­rek­endur næðu saman, með nokkrum „aðgerðum eins og að koma hlut­deild­ar­lán­unum í gegn sem Covid mál sem og að verja heim­ilin fyrir hugs­an­legu verð­bólgu­skoti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár