Seðlabankastjóri hefur ekki áhyggjur af offramboði fasteigna

Áætlað er að um tíu þús­und íbúðir verði byggðar hér á landi á næstu þremur árum. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri seg­ist þó ekki hafa stórar áhyggjur af offram­boði á fast­eigna­mark­aði. Hann segir að fast­eigna­verð geti hæg­lega lækkað en það fari eftir ýmsu.

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri. Mynd: Hringbraut

Mikil íbúða­upp­bygg­ing er fyr­ir­huguð hér á landi á næstu árum en áætlað er að um tíu þús­und íbúðir verði byggðar á árunum 2019 til 2021. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri seg­ist þó ekki hafa stórar áhyggjur af offram­boði á fast­eigna­mark­aði ennþá, í sam­tali við Rík­is­út­varpið í dag. Már segir jafn­framt að fast­eigna­verð geti hæg­lega lækkað en það fari meðal ann­ars eftir því hvernig raun­tekjur þró­ist og gengi krón­unnar. Seðla­banka­stjóri segir að kólnun á fast­eigna­mark­aði sé við­búin eftir upp­sveifl­una.

10.000 íbúðir á næstu þremur árum

Á und­an­förnum árum hefur íbúða­upp­bygg­ing hér á landi ekki verið í takt við þörf og á tíma­bil­inu 2009 til 2017 var fjöldi full­gerðra íbúða undir lang­tíma­með­al­tali á hverju ári. Átaks­hópur sem for­sæt­is­ráð­herra skip­aði um hús­næð­is­mark­að­inn lét greina þörf fyrir íbúðir á lands­vísu. Nið­ur­staðan var sú að óupp­fyllt íbúða­þörf á land­inu öllu sé nú á bil­inu fimm til átta þús­und íbúðir. Nú má hins vegar segja að vatna­skil séu að verða á íbúða­mark­aði þar sem nýbygg­ingum hefur fjölgað mikið og útlit er fyrir að sú þróun haldi áfram á næstu árum. ­Spá Íbúða­lána­sjóðs segir að byggðar verða rúm­lega 3.000 íbúðir hér á landi í ár og sam­tals um 10.000 íbúðir á árunum 2019 til 2021. Til sam­an­burðar voru byggðar um 6.000 íbúðir á lands­vísu á árunum 2016 til 2018.

Aftur á móti liggur það fyrir að mikið af þeim íbúðum sem nú eru í bygg­ingu henta ekki þeim hópum sem eru í mestum vand­ræðum á hús­næð­is­mark­aði, þ.e. tekju- og eigna­lág­um. Til merkis um það er til að mynda stór hluti lít­illa íbúða sem eru í bygg­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í hverfum þar sem fer­metra­verð er hvað hæst. Í sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins þar sem fer­metra­verð er lægra eru hins vegar byggðar stærri íbúð­ir, sem henta við­kvæm­asta hópnum ekki held­ur. Á fyrstu 10 mán­uðum árs­ins 2018 var með­­al­­­­stærð nýrra seldra íbúða 103 fer­­­metr­ar og með­­al­­­­fer­­­metra­verð um 521 þús­und krón­­­ur. Verð með­­al­­­í­­búðar var því um 54 millj­­­ón­­­ir.

Rúv greindi frá því í síð­ustu viku að offram­boð sé á gæða­í­búðum í mið­borg Reykja­víkur. „Á mið­svæði er örugg­lega offram­boð á íbúðum. Íbúð­irnar eru dýrar og það er ekki mjög mikil eft­ir­spurn. Þetta er nátt­úru­lega staða sem er ekk­ert sér­stak­lega góð fyrir marga að það sé verið að byggja mjög mikið af ein­hvers konar íbúða­teg­undum sem fáir vilja,“ sagði Ari Skúlason, hag­fræð­ingar í hag­fræð­is­deild Lands­bank­ans í sam­tali við Rúv.

Seðla­banka­stjóri segir þó aðspurður ekki enn hafa áhyggjur af offram­boði af íbúðum hér á landi.. „Ég hef svo sem ekki stórar áhyggjur af því ennþá. Við áttum alltaf von á því þegar kæmi að því að það færi að hægja á í þjóð­ar­bú­inu og þá gæti hið sterka gengi eitt­hvað gefið eftir, að fast­eigna­mark­að­ur­inn kæmi þar með mót­vægi og það dragi veru­lega úr hækk­unum fast­eigna­verðs. Og það hefur gerst. Og verð­bólgan færi þar af leið­andi minna upp en ella þó að gengið hefði gefið eitt­hvað eftir,“ segir Már í sam­tali við RÚV.

Fasteignaverð geti hæglega lækkað

Jafn­framt segir Már að fast­eigna­verð geti hæg­lega lækkað. „En auð­vitað fer það svo­lítið eftir því hvað ger­ist varð­andi raun­tekjur, gengi krón­unnar og annað því um líkt. Ég ætla ekki að spá neinu nákvæm­lega um það en bara: Það er gert ráð fyrir því að hækkun fast­eigna­verðs myndi hjaðna veru­lega og kannski kannski veru­lega lág sem þýðir að raun­verðið gæti kannski verið byrjað að lækka en við erum kannski ekki alveg komin þangað,“ segir Már.

Samkvæmt upp­færðri þjóð­hags­spá Íslands­banka spáir bank­inn 1,6 pró­sent hækkun raun­verðs íbúð­ar­hús­næðis á þessu ári og 1,2 pró­sent raun­verðs­hækkun árið 2020. Til sam­an­burður hækk­aði íbúða­verð að jafn­aði um 5,2 pró­sent á síð­asta ári. Í spánni segir að helstu skýr­ingar á hægr­ari hækkun íbúða­verðs séu hæg­ari kaup­mátt­ar­aukn­ing, minni fólks­fjölgun og áfram­hald­andi aukn­ing á fram­boði nýrra íbúða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár