Spá því að annað hvert nýtt heimili verði einstaklingsheimili

Íbúða­lána­sjóður spáir því að helm­ingur allra fjölg­unar heim­ila til árs­ins 2040 verði vegna ein­stak­lings­heim­ila. Sjóð­ur­inn spáir því vegna meðal ann­ars breytts fjöl­skyldu­mynsturs, minnk­andi barn­eigna og mik­illar fjölg­unar eldri borg­ara á næstu árum.

Íbúðalánasjóður spáir því að einstaklingsheimilum muni fjölga mest allra heimilisgerða á næstu árum. Nú eru aðeins 30 prósent allra heimila einstaklingsheimili en Íbúðalánasjóður spáir því að helmingur allra fjölgunar heimila til ársins 2040 verði vegna einstaklingsheimila. Ástæða þess er vegna breytts fjölskyldumynsturs, minnkandi barneigna og mikillar fjölgunar eldri borgara á næstu árum. Þær breytingar kalla á talsvert minni stærð íbúða hér á landi. Þetta kom fram á fundi Íbúðalánasjóðs í gær, þar sem ný skýrsla var kynnt um íbúðaþörf á Íslandi til ársins 2040.

Breytt fjölskyldumynstur og fjölgun eldri borgara kallar á fleiri einstaklingsíbúðir

Ólafur Heiðar Helgason, hagfræðingur í hagdeild Íbúðalánasjóðs, sagði á fundinum í gær að róttækar breytingar gætu átt eftir að sjást á eftirspurn eftir stærð íbúða, meðal annars vegna breytts fjölskyldumynsturs. „Nú eru um 30 prósent allra heim­ila ein­stak­lings­heim­ili en við áætlum að helm­ing­ur allr­ar fjölg­un­ar heim­ila til árs­ins 2040 verði vegna ein­stak­lings­heim­ila. Þetta er meðal annars vegna breytts fjölskyldumynsturs, minnkandi barneigna og mikillar fjölgunar eldri borgara á næstu árum. Mörg pör eignast nú aðeins eitt barn og margir eldri borgarar búa einir, auk þess sem algengt er að þeir sem eru tveir í heimili kjósi að minnka við sig húsnæði,“ segir Ólafur.

Í skýrslu Íbúðalánsjóðs segir að fjölskyldumynstur hafi verið að breytast á undanförnum árum og munu halda áfram að færast í sömu átt á næstu árum. Meðal annars vegna þess að fólk fer seinna í sambúð, eignast færri börn og seinna og lifir almennt lengur. Árið 2000 voru um 62 prósent þeirra sem voru þrítugir í ýmist hjónabandi eða sambúð en árið 2018 var þetta hlutfall aðeins 53 prósent. Fækkun fólks í hjónabandi eða sambúð í yngri aldurshópunum virðist ekki vera til komin vegna fjölgunar skilnaða heldur virðist helsta skýringin vera sú að fólk er að jafnaði eldra þegar það gengur í hjónaband eða stofnar til sambúðar. Meðalaldur þeirra sem gengu í sitt fyrsta hjónaband var um tveimur árum hærri árið 2011 en um aldamótin og meðalaldur fólks sem skráði sig í sína fyrstu sambúð var um þremur árum hærri.[adspot]

Ásamt því hefur frjósemi minnkað mikið hér á landi á undanförnum áratugum. Árið 1960 eignuðust konur um 4,3 börn að meðaltali á lífsleiðinni en árið 2017 var þessi tala komin niður í 1,7. Í mannfjöldaspá Hagstofu Íslands er gert ráð fyrir því að frjósemi haldi áfram að minnka næstu áratugina en sú þróun verður þó umtalsvert hægari en á undanförnum áratugum.

Samhliða því sem frjósemi hefur minnkað verður fólk sífellt eldra þegar það eignast börn. Meðalaldur mæðra og feðra við fæðingu hefur hækkað um um það bil eitt og hálft ár frá aldamótum og meðalaldur við fæðingu fyrsta barns hefur hækkað enn meira. Um helmingur þeirra kvenna sem eignuðust sitt fyrsta barn um aldamótin var eldri en 25 ára en helmingur þeirra kvenna sem eignuðust sitt fyrsta barn árið 2017 var eldri en 28 ára.

Meðalíbúð framtíðarinnar sé 100 fermetrar og þriggja herbergja

Mikil fjölgun ein­stak­lings­heim­ila hefur áhrif á sam­setn­ingu þeirra íbúða sem þarf að byggja til lengri tíma litið, segir í skýrsl­unni. Ein­stak­lings­heim­ili eru að jafn­aði í minna hús­næði en önnur heim­ili en þó að jafn­aði með fleiri fer­metra á hvern heim­il­is­mann en heim­ili þar sem fleiri en einn ein­stak­lingur búa. Tals­verður munur er á ald­urs­hópum í þessum efnum en ein­stak­lings­heim­ili fólks sem er yngra en 35 ára eru að jafn­aði um 70 fer­metrar en ein­stak­lings­heim­ili þeirra sem eru eldri en 55 ára eru að jafn­aði um 100 fer­metrar að stærð.

Í nýlegri spurn­inga­könnun Íbúða­lána­sjóðs kom í ljós að mest eft­ir­spurn væri eftir þriggja her­bergja íbúðum, 80 til 120 fer­metra. Aftur á móti eru þær íbúðir sem nú eru í bygg­ingu að með­al­tali á bil­inu 110 til 120 fer­metrar að stærð. „Það mætti kannski segja að með­al­í­búð fram­tíð­ar­innar sé 100 fer­metrar, þriggja her­bergja og með frá einum og upp í þrjá íbúa. Það er mikil breyt­ing. Um leið er þó rétt að minna á að enn vantar sár­lega íbúðir sem eru minni en 100 fer­metrar. Hag­kvæmar smá­í­búðir ekki síst. Þar er ennþá stórt gat á hús­næð­is­mark­aðnum sem þarf líka að upp­fylla,“ segir Ólafur.

10.000 íbúðir á næstu þremur árum

[links]Á und­an­förnum árum hefur íbúða­upp­bygg­ing ekki verið í takt við þörf og á tíma­bil­inu 2009 til 2017 var fjöldi full­gerðra íbúða undir lang­tíma­með­al­tali á hverju ári. Nú má hins vegar segja að vatna­skil séu að verða á íbúða­mark­aði þar sem nýbygg­ingum hefur fjölgað mikið og útlit er fyrir að sú þróun haldi áfram á næstu árum. Spá Íbúða­lána­sjóðs segir að byggðar verða rúm­lega 3.000 íbúðir hér á landi í ár og sam­tals um 10.000 íbúðir á árunum 2019 til 2021. Til sam­an­burðar voru byggðar um 6.000 íbúðir á lands­vísu á árunum 2016 til 2018.

Aftur á móti liggur það fyrir að mikið af þeim íbúðum sem nú eru í bygg­ingu henta ekki þeim hópum sem eru í mestum vand­ræðum á hús­næð­is­mark­aði, þ.e. tekju- og eigna­lágum. Til merkis um það er til að mynda stór hluti lít­illa íbúða sem eru í bygg­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í hverfum þar sem fer­metra­verð er hvað hæst. Í sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins þar sem fer­metra­verð er lægra eru hins vegar byggðar stærri íbúðir, sem henta við­kvæm­asta hópnum ekki heldur. Líkt og kom fram hér að ofan eru þær íbúðir sem nú eru í bygg­ingu eru að með­al­tali 110 til 120 fer­metrar að stærð. Á fyrstu 10 mán­uðum árs­ins 2018 var með­al­­­stærð nýrra seldra íbúða 103 fer­­metr­ar og með­al­­­fer­­metra­verð um 521 þús­und krón­­ur. Verð með­al­­­í­búðar var því um 54 millj­­ón­­ir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár